Hár blóðþrýstingur: Einkenni og hvað er til ráða?
Árlega blóðprufan
4th March 2024
Páskakonfekt
20th March 2024
Árlega blóðprufan
4th March 2024
Páskakonfekt
20th March 2024
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Hár blóðþrýstingur: Einkenni og hvað er til ráða?

Hefur þú fengið það staðfest hjá lækni að þú glímir við of háan blóðþrýsting?

Hár blóðþrýstingur er nokkuð algengt vandamál og í raun mun algengara en þig grunar!

Margir glíma við of háan blóðþrýsting án sinnar vitundar enda eru einkennin fá og jafnvel engin. Þó koma sum einkenni upp, þar á meðal:

  • Sjóntruflanir
  • Mæði
  • Blóðnasir
  • Uppköst
  • Höfuðverkur, einkum á morgnanna
  • Erfiðleikar með öndun

Algengi háþrýstings er 30-45 % hjá einstaklingum eldri en 18 ára og hlutfallið eykst með hækkandi aldri.

Hvað er eðlilegur blóðþrýstingur?

Eðlilegur blóðþrýstingur er undir 135 í efri mörkum og undir 85 í þeim neðri. 

Þegar blóðþrýstingur er kominn yfir 140 í efri mörkum og yfir 90 í neðri mörkum er talað um háan blóðþrýsting.

Hvað veldur háum blóðþrýsting?

Algengur orsakavaldur að of háum blóðþrýsting er m.a ofsaltað eða fituríkt mataræði, yfirþyngd, hreyfingarleysi, streita eða mikil áfengisneysla (meira en 1-2 glös á dag). Ef þú tengir við eitthvað af þessum atriðum er ekki vitlaust að kanna hjá lækni hvort blóðþrýstingurinn sé í lagi.

Stundum er þó undirliggjandi sjúkdómur eða veikindi sem valda honum eins og t.d. skjaldkirstilsvandamál, ofvirkni í nýrnahettu eða þrengsli í nýrnaslagæð. Einnig getur hár blóðþrýstingur verið ættgengur eða komið með aldrinum. 

Háþrýstingur er óæskilegt ástand því því hann eykur hættuna á heilablóðföllum, kransæðastíflu, hjartabilun og nýrnabilun.

Lesa einnig:
Bestu bætiefnin eftir fertugt (uppfært)
6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið
5 ráð fyrir konur sem vilja fasta

Hver er lausnin?

Ein áhrifaríkasta og heilbrigðasta leiðin sem talin er getað lækkað blóðþrýsting til langri tíma er breyttur lífsstíll. Þá er meðal annars átt við hreina fæðu, minni neysla á salti og óhollri fitu, hreyfing og minna áfengi. Einnig er mikilvægt að léttast.

Sem dæmi um mat sem mikilvægt er að neyta í hófi gegn háum blóðþrýsting er: 

  • Sykur
  • Koffín
  • Áfengi
  • Slæm jurta- og dýrafita sem finna má í snakki og tilbúnum mat til upphitunar
  • Sódíumrík fæða á borð við soyasósu, unnar kjötvörur og niðursoðinn matur. 

Hins vegar eru margar fæðutegundir sem gott er að borða gegn háum blóðþrýsting m.a. 

  • Omega-3 fitusýrur t.d. Lýsi, lax og chia fræ
  • Pottassíumríkur matur t.d. melónur, bananar og avókadó
  • Hvítlaukur
  • Trefjar sem finna má í ávöxtum, grænmeti og fræjum
  • Dökkt súkkulaði (t.d lífrænt og sykurlaust)
  • Kalíumríkur matur á borð við tómata, sætar kartöflur, ferskjur og fiskur.

Er hægt að laga háan blóðþrýsting með breyttum lífsstíl?

„7 kg farin og laus við blóðþrýstingslyfin!“

„Ég er 7 kg léttari og laus við blóðþrýstingslyf sem ég hef tekið að staðaldri í 20 ár!“ – Halldóra Gísladóttir



Árangur Halldóru er frábært dæmi um það sem hægt er að áorka þegar rétt mataræði og lífsstíll er fundin fyrir þig. Halldóra var hjá okkur í einkastuðning í heilsumarkþjálfun.

Með einkastuðning flýtur þú leiðina að árangri, vegna þess að þar mótum við lífsstíl sem hentar þér.
Saman vinnum við að því að finna mataræði sem þér líkar og sem skilar þér árangri. Einnig aðstoðum við þig að vinna í þeim heilsubrestum sem þú glímir við og þannig mótum við lífsstíl og rútínu handa þér sem leyfir þér að njóta og viðhalda áreynslulaust.

Nú bjóðum við upp á 15 mín ókeypis símtal, þar sem við förum saman yfir heilsuna þína og heilsumarkþjálfun.

Engin binding fylgir símtalinu og það ætlað að komast að því ef heilsumarkþjálfun sé rétt fyrir þig.


Vakti greinin áhuga þinn?

Tengir þú við einkennin við of háum blóðþrýsting?

Ég hlakka til að kafa dýpra mér þér í spjallinu.

Ef greinin vakti athygli þína máttu endilega deila með á Facebook og Instagram og sérstaklega til vinkonu eða vin sem gæti átt við þennan vanda að stríða.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *