16 kílóum léttari og uppgötvaði leyndarmálið að hinni fullkomnu húð!
16th December 2020Súkkulaði uppskriftir fyrir Valentínusardaginn!
9th February 202116 kílóum léttari og uppgötvaði leyndarmálið að hinni fullkomnu húð!
16th December 2020Súkkulaði uppskriftir fyrir Valentínusardaginn!
9th February 2021Þetta hlýlega vetrarsalat varð fljótt eitt af mínu uppáhalds.
Það er með elduðu graskeri og skallot-lauk fyrir hlýju og sætleika, mjúkum linsubaunum, grænkáli, íslenskum geitaosti og ristuðum pistasíuhnetum.
En best af öllu, það er fljótlegt og bragðgott!
—
—
Vetrarsalat með graskeri, linsubaunum og grænkáli
1 skammtur, þú getur auðveldlega tvöfaldað uppskriftina og borið fram fyrir 2
Grænmeti:
½ eða minna af miðlungs graskeri
3-4 miðlungs gulrætur
1/2 rauð paprika (valfrjálst)
1 skalott-laukur (eða notaðu annan lauk en skalott-laukur gefur góða sætu)
Ólífuolía eftir smekk
Krydd að eigin vali: Ég hef notað 1 tsk grænmetiskryddblöndu og ½ tsk reykta papríku frá kryddhúsinu. Einnig má nota ½ tsk rósmarín, ½ tsk papriku, svartan pipar, himalayasalt, og rautt chillikrydd.
Linsubaunir:
1 bolli soðnar brúnar linsubaunir (um það bil 1/4 bolli þurrkaðir linsubaunir soðnir í vatni eða notið í kringum 1/3 linsubaunir sem eru forsoðnir í dós)
Salatbotn:
3-5 grænkálsblöð, fjarlægðu stilkinn (ef grænkál fæst illa, notið spínat eða klettasalat)
⅓ af gúrku (í kringum 100gr, það er ráðlagt magn, en ekki hika við að bæta við það)
1 tómatur (ráðlagt magn, ekki hika við að bæta við það)
Dressing:
1-2 msk af majónesi (vertu viss um að það sé ekki viðbættur sykur. Ég nota gjarnan avocadó majóness sem fæst í costco.)
1-2 msk kreistur sítrónusafi (notið meira fyrir þynnri dressingu)
Svartur pipar eftir smekk (ég set nóg af svörtum pipar)
Ofaná, skreytingin er það sem gerir þetta salat fullkomið:
50gr ristaðar, ósaltaðar pistasíuhnetur (ekki hika við að setja meira ef þú vilt)
30gr geitaostur
Fersk mynta eða steinselja
—
Lesa einnig:
Kinosalat með rauðrófum eplum og myntu
Fyllt sæt kartafal með hvútlaussóus
Heitt Chaga kakó
—
—
Aðferð:
1. Linsubaunir: Til að elda linsubaunir settu 1/4 bolla þurrkaðar ósoðnar linsubaunir í pott. Bættu a.m.k 3x meira vatni en linsum (1:3) eða 3/4 -1 bolla af vatni í pottinn. Láttu sjóða og lækkaðu hitann í lága suðu. Bættu meira vatni út í ef þörf er á, horfðu bara á pottinn af og til til að sjá hvort linsubaunirnar þurfa meira vatn. Láttu malla í u.þ.b 15-20 mínútur eða þar til þú getur auðveldlega kreist eina linsu! Ef þú ert að nota forsoðnar linsubaunir í dós þarftu ekki að elda þær, hitaðu þær aðeins ef þú vilt.
2. Grænmeti eldað: Skerðu graskerið og gulræturnar í ca 2 cm bita. Ef þú vilt elda í bakarofni, setjið á bökunarpappír, kryddið og setjið olíu yfir og eldið í ofni á 180-200 °c í u.þ.b 25-30 mín, hrærið öðru hvoru svo grænmetið eldist jafnt.
Ef þú vilt grilla grænmetið á útigrilli mæli ég með að sjóða grænmetið í vatni fyrst. Fylltu þá pott 3/4 af vatni og láttu sjóða, settu grænmetinu í pottinn í um það bil 10 mínútur eða þar til þú nærð gafflinum auðveldlega í gegn. Fjarlægðu grænmeti úr sjóðandi vatni og setjið í skál. Kryddaðu og settu olíu yfir. Settu grænmeti á grillbakka og grillaðu í c.a 15 mín eða þar til það fer að verða stökkt og ristað.
3. Salatið: Rífðu grænkálslaufin, kreistu 1/2 sítrónu yfir, skerðu gúrku, tómata og settu ofan á grænkálið. Setja til hliðar.
4. Dressing: Blandaðu mæjónesið og sítrónusafa saman og settu til hliðar.
5. Borið fram: Núna ættu linsubaunir þínar að vera tilbúnar! Kryddaðu með salti og pipar eftir smekk og settu linsubaunir og því næst grænmetið yfir salatið. Skreyttu með pistasíuhnetum, steinselju og geitaosti. Njóttu!
—-
—
Nú væri gaman að heyra frá þér
Ég vona að þú prófir þetta hlýlega vetrarsalat og endilega deildu með vinum þín á Facebook svo fleiri geta notið góðs af þessari lúffengu hollustu.
Ef þú prófar, ekki hika við að segja mér hvernig smakkast hér undir blogginu!
Þú finnur fleiri uppskriftir, ráð og innblástur af breyttum lífstíll með því að fylgja okkur á samfélagsmiðlum hér á Facebook og Instagram.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!