Himneskur Mangó Lassi drykkur
5 ráð til að setja þér markmið sem þú nærð
15th January 2019
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
29th January 2019
5 ráð til að setja þér markmið sem þú nærð
15th January 2019
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
29th January 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Himneskur Mangó Lassi drykkur

Þessi  himneski mangó Lassi drykkur  slær á sykurlöngun, vinnur gegn bólgum og er ekkert smá frískandi!

Uppskriftin er innblásin af ferðum mínum til Indlands en þar varð ég algjörlega ástfangin af mangó. Ég komst einnig að því að það eru til 300 tegundir af mangó og borðaði það allra safaríkasta mangó sem ég hef á ævinni smakkað.

Þar fengum við hjónin líka að smakka Mangó Lassi drykk sem er algjört lostæti og auðvitað þurfti ég að útbúa minn eigin! 

lassi drykkur

lassi drykkur

Vissir þú að ein helsta orsök sykurlöngunar er ójafnvægi á steinefnum, góðri fitu og próteinum?

Hráefni drykkjarin vinna á sykurlöngun og koma líkamanum aftur í jafnvægi. Þessi Mangó Lassi drykkur kemur bragðlaukum skemmtilega á óvart og er ferskur í morgunsárið.

Lesa einnig:
Túrmerik latter á tvo vegu 
Ferskir sumarkokteilar
Heitt Chaga Kakó

lassi drykkur

Þér gæti þótt öðruvísi að setja svona mörg krydd í drykkinn, en engifer, túrmerik og kanill draga sérstaklega úr bólgum, bjúgsöfnum, jafna blóðsykur og eru talin vinna á kviðfitu!

lassi drykkur

Drykkurinn fyllir líkamann sannarlega af ljósi og vellíðan. Enda er túrmerik talið..

  • vera sérlega bakteríudrepandi
  • vinna á liðverkjum
  • efla meltingu og ónæmiskerfið
  • geta létt á depurð og aukið hamingju

lassi drykkur

Himneskur Mangó Lassi drykkur

1 ½  bolli möndlu-, hafra- eða kasjúhnetumjólk

½ bolli kókosmjólk (einnig má nota ½ bolla af möndlu-, hafra- eða kasjúhnetumjólk í stað möndlu- og kókosmjólkur, en kókosmjólkin þykkir vel. Ég mæli með að nota kókosmjólk frá Coop sem fæst í Nettó)

1 bolli mangó ferskur eða frosinn (sjá athugasemdir)

1 tsk hvítt tahini eða kasjúhnetusmjör (t.d. frá Monki)

mangó lassi kryddblanda

½  tsk karamellustevia frá Good good brand

1 stór medjool daðla (eða notið ½ tsk til viðbótar af karamellusteviu eða steviu)

2 msk hemp fræ*

Mangó Lassi kryddblanda:

1  tsk túrmerik duft

¼ tsk maca

¼ tsk  kanill

¼  tsk malaðar kardimommur

¼ tsk saffran

örlítill svartur pipar (bætir upptöku túrmeriks)

salt á hnífsoddi


Skreytt með..
kókosmjöli, túrmerikdufti, kanil, rósapipar, pistasíuhnetum

1.   Mælið út mangó lassi kryddblöndu í litla skál. Þetta fyrirbyggir að óvart sé sett of mikið af kryddum í drykkinn.
2.  Setjið næst öll hráefni drykkjarins fyrir utan kryddblönduna í blandara og hrærið þar til silkimjúkt. Bætið kryddblöndunni við og hrærið.

Athugasemdir:

Drykkurinn geymist vel í kæli í 2-3 daga.

Fyrir heitan drykk má sleppa frosnu mangó og hita blönduna upp í potti.

Mér þykir ferskt lífrænt mangó taka drykkinn á næsta stig og mæli ég með því frekar en frosnu mangó ef það er hægt.

Láttu vita í athugasemdum hér að neðan ef þú prófar og hvernig smakkast og endilega deilið áfram á samfélagsmiðlum ef þið prófuðuð drykkinn!

 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

4 Comments

  1. Júlía heilsumarkþjálfi says:

    Sæl Sigríður

    Þú ert skráð í 14 daga sykurlausu áskorunina – hlökkum til að hefjast handa með þér! 🙂

  2. Júlía heilsumarkþjálfi says:

    Sæl kæra Sigríður

    Ég er búin að skrá þig í 14 daga áskorun, þú færð tölvupóst frá okkur á morgun með fyrstu uppskriftum og innkaupalista. Gaman að fá þig með! 🙂

  3. Júlía heilsumarkþjálfi says:

    Sæl Margrét

    Það er ekkert mál að byrja bara þegar þú kemur til baka ef þú vilt, áskorunin er alveg til 11.feb. Áskorun snýst bara um að hver og einn geri sitt besta 🙂

  4. Júlía heilsumarkþjálfi says:

    Sæl Lilja

    Ég er búin að skrá þig í áskorun, þú færð póst eftir nokkrar mínútur með uppskriftum og innkaupalista fyrir viku 1. Gaman að fá þig með í áskorun 🙂

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *