
Súkkulaðibita smákökur fyrir jólin
25th November 2024
Kanilhjúpaðar jólamöndlur
9th December 2024
Súkkulaðibita smákökur fyrir jólin
25th November 2024
Kanilhjúpaðar jólamöndlur
9th December 2024Ef þú elskar ís þá ertu á réttum stað!
Eftir ótal tilraunir deili ég með ykkur að mínu mati hinum fullkomna vegan jólaís. Hann er fullkominn með ídýfu og kurli, góðum félagskap eða huggulegri jólamynd!
Hér á landi erum við vön að borða ís með alls kyns sósum og kurli. Þess vegna langar mig að deila með ykkur nokkrum hollari hugmyndum hér að neðan sem gera ísinn enn betri.
–
–
Ég nota kókosmjólk og hlynsíróp, sem gefur milt bragð og fer mun betur í meltinguna en t.d. agave.
Sem bindiefni notum við örvarótina, og kýs ég hana fremur xanthan gum, þar sem bragðið er milt og maður finnur ekkert fyrir því.
Mér finnst hann bestur þegar hann er ferskur en auðvitað geymist hann einnig vel í frysti.
–
Lesa einnig:
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
Súkkulaðibitaklattar með heslíhnetum og höfrum
Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís
–
Hinn fullkomni vegan jólaís
Ísinn
1 kæld kókosdós (sjá athugasemdir)
1/4 bolli hlynsíróp
1/2 tsk örvarrót (arrowroot) eða 1 tsk maísterkja (sjá athugasemdir)
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk vanilluduft (sjá athugasemdir)
Súkkulaðisósa, heit eða köld
2 msk kakóduft
4 msk kókospálmanektar/hlynsíróp
2-4 dropar stevia
2 msk kókosolía, brædd í vatnsbaði og 1 msk vatn
salt eftir smekk
Gott með ísnum:
- Myntusúkkulaði t.d. frá Green&Black’s organic og hindber
- Lakkrísduft
- Salt karamella. Notið þá karamellu sósu frá snickers köku í uppskriftabók Lifðu til fulls og bætið við með súkkulaðispænum og söxuðum möndlum. Þetta er hreint lostæti.
- Klassíska heita súkkulaðisósu og jarðaber
- Súkkulaðisósa og mórber
- Hvítt súkkulaði og rabbari
Kvöldið áður: kælið kókosmjólkina og ef þið eigið ísvél kælið þá ílátið
1. Hrærið öll innihaldsefnin saman í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Smakkið til og bætið meiri vanillu við ef þið viljið meira vanillubragð en hlynsíróp ef þið viljið ísinn sætari.
2. Ef þið notið ísvél má setja ísblönduna í ísvélina samkvæmt leiðbeiningum vélarinnar og láta vinna í kringum 20 mín. Þegar ísinn er klár er hann settur í stál frystibox eins og brauðform.
3. Takið ísinn út og leyfið að standa við stofuhita í 5-10 mín áður en þið berið hann fram.
4. Ef þið eigið ekki ísvél má setja ísinn í stálílát (sjá athugasemdir) og frysta. Fyrir bestu niðurstöður og rjómkenndan ís má taka ísinn úr frysti og hræra í honum í forminu og setja aftur í frysti. Þetta er gert á klukkustundarfresti næstu 4-6 tíma. Þetta hleypir lofti að ísnum sem hjálpar til við að gera hann rjómkenndari.
5. Berið fram eins og ykkur þykir best og leyfið hugmyndafluginu að ráða. Til að gera súkkulaðisósuna setjið þá hráefnin í blandara og vinnið á lágri stillingu þar til silkimjúkt. Bragðið og bætið við sætu eftir þörfum. Hitið upp í potti eða notið sem kalda sósu.
Athugasemdir vegna ísgerðar:
- Mér finnst gott að nota kókosmjólk frá Coop þar sem hún er alltaf silkimjúk. Kókosrjómi virkar einnig vel.
- Eftir smá rannsókn og prófun komst ég að því að besta ílátið að nota til að frysta ísinn eru stálílát og hef ég notað gamalt brauðform sem hefur dugað vel. Plast og glerílát virka illa og hafa áhrif á hvernig áferðin verður á ísnum.
- Ég nota þessa ísvél hér sem ég keypti frá USA og nota straumbreytir sem kostaði álíka mikið og ísvélin.
- Mér þykir örvarótin mikilvæg til að halda ísnum saman og þykkja. Einnig má nota maíssterkju sem fæst í Bónus og Nettó sem dæmi.
- Í staðinn fyrir vanilluduftið má nota meira af vanilludropum en vanilluduftið gefur gott bragð og litlar svartar doppur í ísinn sem bættir útlitið á ísnum.
Ég vona virkilega að uppskriftin komi að góðum notum og óska ykkur gleðilegrar hátíðar!
Endilega deilið með á samfélagsmiðlum!
Látið svo vita í spjallið ef þið eruð með frekari spurningar eða viljið deila hvernig tókst til og hvernig smakkast!

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
