Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís
Hinn fullkomni vegan ís
5th December 2018
Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum
17th December 2018
Hinn fullkomni vegan ís
5th December 2018
Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum
17th December 2018
Show all

Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís

DSC_0676

Ef það er eitthvað sem einkennir hátíðirnar þá er það smákökur og konfekt! 

Hér kemur uppskrift af Syndsamlegaum Súkkulaði trufflum með lakkrís….Þú bara verður að smakka!

Þessar trufflur… Hvað get ég sagt, þær eru trufflaðar! Allir sem hafa smakkað trúa ekki að þetta skyldi geta kallast hollt og sykurlaust. Það mætti líkja trufflunum við hráfæðisútgáfu af þrist.

Þessir konfektmolar krefjast ekki baksturs sem er afar þægilegt og má njóta sektarlaust enda ekki með neinu hveiti eða hvítum sykri.

Heppnin er með þér í dag vegna þess að ég hef verið að deila sykurlausum jólauppskriftum með ykkur á hverri aðventu á samfélagsmiðlum og hefur það vakið mikla lukku og því langaði mig einnig að deila þeim með ykkur hér í dag. 

Smelltu hér fyrir Marsípan konfekt

Smelltu hér fyrir súkkulaðibita kökur

Ekki gleyma að fylgja mér á Instagram og Facebook til að fá fá og síðustu uppskriftina… hún er bilað góð!

DSC_0765

Ég held þú munir elska þessar trufflur, enda eru þær

  • Ljúffengar
  • Fágaðar
  • Fallegar
  • Saðsamar
  • Einfaldar og skemmtilegar

DSC_0587


Ég útbjó eins konar “álfaduft” úr náttúrulegum innihaldsefnum eins og jarðaberjum, túrmerik, matcha te og ekki skal gleyma 100% lakkrís dufti sem tekur trufflurnar á næsta stig.

DSC_0620

Þær eru einnig fallegt konfekt til að gefa.

Ég mæli með að geyma trufflurnar í kæli, þar sem þær endast í u.þ.b. viku, og þú getur auðveldlega nælt þér í eina og eina trufflu! 

Lesa einnig:
Súkkulaðibitaklattar með heslihnetum og höfrum
Jólasmákökurnar mínar
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa

DSC_0824

Ekta súkkulaði truffur með lakkrís

Uppskrift gefur 35-40 trufflur, fer eftir stærð

Súkkulaði trufflurnar:

1 bolli (130 gr) möndlur

1 ¼ bolli (150 gr) mjúkar döðlur

⅛ tsk vanilluduft eða 1 tsk vanilludropa

salt á hnífsoddi

smá vatn

¼ bolli (40 gr) kakó

rétt undir ¼ bolla (60 gr) kakósmjör

Marsipan lakkrísinn:

1/4 bolli afhýddar möndlur 

1 ½  msk hlynsíróp

⅛ tsk vanilluduft eða ¼ tsk vanilludropar

1 tsk hreint lakkrís duft 

10 klípur himalaya salt  eða í kringum 1 tsk

¼ tsk activated charcoal powder (valfjálst að nota þar sem þetta bætir bara svarta litinn)

Súkkulaðihjúpur:

75% dökkt súkkulaði sætað með kókospálmasykri eða annað náttúrulegt súkkulaði 

Álfaduft:

pistasíur, túrmerik og sítrónubörkur

frostþurrkuð jarðaber

pistasíuhnetur og matcha duft

100% fínt lakkrís duft 

kókosmjöl eða kókoshveiti

hraun útgáfa með kakónibbum

Kvöldið áður:
Ef þið kaupið afhýddar möndlur fyrir lakkrísinn er óþarfi að leggja þær í bleyti.  Ef þið finnið ekki afhýddar möndlur má leggja venjulegar möndlur í bleyti í 5-8 klst eða yfir nóttu, og taka hýðið síðan af þeim. Sjá hér hvernig hýðið er tekið af þeim.

1. Byrjið á að leggja kakósmjör í vatnsbað svo það sé klárt fyrir trufflurnar

2. Útbúið lakkrísinn með því að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í afar fínt mjöl. Bætið við restinni af hráefnum og vinnið þar til blandan myndar deigáferð. Setjið í skál og geymið í kæli á meðan þið útbúið súkkulaðitrufflurnar.

3. Fyrir súkkulaði trufflurnar má byrja á að mala möndlur í afar fínt mjöl fyrst, svipað og gert var með lakkrísnum. Bætið þá döðlum, vanillu og salti þar til silkimjúkt og kekkjalaust deig myndast. Bætið útí örlitlu vatni ef þið þurfið, c.a 1-2 msk. Kakó og brætt kakósmjör er næst bætt útí og hrært örlítið. Geymið í skál og kælið aðeins.

4. Takið næst1 tsk af súkkulaðideiginu og þekjið út flatt í lófa, myndið litla kúlu af lakkrísdeiginu (c.a ¼ tsk að stærð) og setjið ofaná súkkulaðideigið, rúllið upp og leggið til hliðar. Kælið í c.a. klst eða yfir nóttu.

5. Bræðið súkkulaði og gerið duftin ykkar klár ef þið notið þau.

6. Leggið bökunarpappír á eldhúsborðið. Hafið brædda súkkulaðið til hliðar og duft í skálum. Dýfið súkkulaði trufflunni í súkkulaðið, veiðið uppúr með skeið og rúllið uppúr því dufti sem þið viljið. Leggið á bakka með hreinum bökunarpappír og setjið það síðan í kæli eða frysti. Kælið í amk 1-2 klst áður en borið er fram!

DSC_0756

– 


Ég vona að þú prófir og ekki gleyma að segja mér hvernig smakkast hér undir í spjallinu eða tagga mig undir @lifdutilfulls á instagram!

Endilega deildu síðan á facebook ef þessar vekja lukku hjá þér!

Á meðan ætla ég að næla mér í eina trufflu…

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *