Oregano olía gegn flensu
7th February 2022Mikilvægi þess að setja sig í forgang og hvernig á að fara að því
25th April 2022Oregano olía gegn flensu
7th February 2022Mikilvægi þess að setja sig í forgang og hvernig á að fara að því
25th April 2022Núna styttist í Bolludaginn og mér datt því í hug að deila með ykkur uppskriftinni að hollu bollunum sem ég bý alltaf til.
Bestar finnst mér bollurnar frá henni Sollu hjá Himneskt enda er hún meistari í eldhúsinu þegar kemur að sykurlausum og bragðgóðum sætindum! Bollurnar eru að auki vegan.
Með bollunum nota ég svo alltaf heimagerða kókosrjómann minn og bæti jafnvel smá dökku súkkulaði við.
–
–
Dásamlegar Bolludags-bollur
Gefur um 15 bollur
–
Bollurnar:
474 ml jurtamjólk
50g kókosolía eða vegan smjör
3 msk hlynsíróp
1 pakki þurrger
1 tsk vanilludropar
600g fínt spelt eða heilhveiti (ég nota spelt)
1/2 tsk sjávarsalt
–
Súkkulaði:
100 gr dökkt súkkulaði brætt, einnig má bræða saman við 2 tsk af kókosolíu fyrir örlítið mýkra krem.
–
1. Skerið jurtasmjörið í litla bita og setjið í pott með jurtamjólkinni, hlynsírópinu og vanillu. Hrærið í á meðan smjörið bráðnar, takið af hellunni og kælið svo þessi blanda verði um 37°C.
2. Þegar blandan hefur kólnað niður í 37°C hellið henni í hrærivélaskál, stráið þurrgerinu yfir og látið standa í um 15 mín..
3. Blandið speltinu og saltinu út í og hrærið saman. Látið standa á frekar hlýjum stað með viskastykki yfir skálinni svo það geti hefast í um 20-30 mín.
4. Þar sem þetta deig er klístrað þá finnst okkur gott að nota ískúluskeið til að móta um 15 bollur sem eru settar á bökunarpappír á ofnplötu.
5. Látið bollurnar hefast aftur í svona 20 mín á plötunni áður en þær eru settar í ofninn.
6. Bakast við 190°C í um 20 mínútur. Leyfið að kólna áður en súkkulaðið er sett yfir.
Uppskriftin er frá Sollu hjá Himneskt.
–
Lesa einnig:
Hreinsandi gulrótarmúffur sem hafa aldrei farið eins hratt!
Páskakonfekt
Vanillubollakökur með hindberjasmjörkremi (vegan og glútenlausar)
–
–
Kókosrjómi
Kókosrjómi er afar einfaldur og kom sem bjargvættur eftir að ég breytti um lífstíll, enda er ég mikið fyrir ís og rjóma!
Ein dós kókosmjólk
2 steviudropar með vanillu
1. Kælið kókosmjólkina í ísskáp yfir nóttu. Hellið mestum vökvanum úr dósinni, þar til bara hnausþykki parturinn situr eftir og setjið í matvinnsluvél ásamt steviudropum. Hrærið eins og þið mynduð hræra venjulegan rjóma þar til áferðin minnir á hefðbundinn rjóma.
Að lokum er gott að bræða dökkt súkkulaði í vatnsbaði og setja ofaná bollurnar.
–
Ef þér líkaði þessi færsla, endilega deildu henni með vinkonu eða öðrum sem þú veist að elskar bollur
Mundu svo að taggaðu okkur á Instagram @lifdutilfulls – við elskum að sjá ykkar útfærslur!
Gleðilegan bolludag elsku vinir.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!