Sælgætis íspinnar með kókos og jarðaberjum fyrir 17.júní
15th June 2016Þrír æðislegir sumarkokteilar
28th June 2016Sælgætis íspinnar með kókos og jarðaberjum fyrir 17.júní
15th June 2016Þrír æðislegir sumarkokteilar
28th June 2016Um daginn deildi ég með þér þeim æðislegu heilsuvávinningum sem við fáum úr kryddjurtum þar á meðal með sterkara ónæmiskerfi og minni bólgum og hvernig ég planta þeim. Í dag langar mig að deila með þér hvernig ég geymi þær svo þær endist sem lengst og útí hvað ég nota þær.
Kryddjurtir hafa æðislega hreinsunareiginleika og ég nota þær mikið í uppskriftum í væntanlegu bók minni, sem kemur út núna í september! Ef þú ert með mig á snapchat: lifdutilfulls veistu að ég bíð spennt eftir að deila þessari bók með þér!
Ég er mjög hrifin af heimagerðum (DIY) leiðum að hugsa um húðina, geyma matvæli og nota ég gjarnan krukkur til að geyma jógúrt, dressingar eða kryddjurtir!
Hér kemur skref fyrir skref leið að geyma kryddjurtir lengur:
Skref 1. Sótthreinsið krukkur
Skref 2. Botnfyllið af vatni
skref 3. Skolið og þurrkið af kryddjurtunum
Skref 4. Setjið kryddjurtirnar í krukkurnar og geymið í ísskápshurð
Þar er fátt meira hressandi en að hefja daginn á ferskri myntu útí búst, bættu þeim svo næst útí salatið þitt í hádeginu og ljúktu deginum með andoxunarríkum sumar kokteil (meira um það í næsta bréfi)!
Notið kryddjurtir útá:
- Salöt
- Búst
- Te (t.d mynta með grænu te)
- Heimagerða Pizzu (t.d basilikka er æðisleg)
- Pestó (kasjúhnetur, olífuolía, salt og ferskar kryddjurtir eins og basilikka)
- Vegan ost
- Súpur
- Kínóa
- Léttkolsýrt vatn með sítrónu
- Frystið sem klaka
Segðu mér í spjallið að neðan
Hvernig geymir þú kryddjurtir og í hvað notar þú þær?
Deildu svo heilsunni áfram með vinum á facebook
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!