Sælgætis íspinnar með kókos og jarðaberjum fyrir 17.júní
Hvernig á að rækta þinn eigin kryddjurtagarð
8th June 2016
Besta leiðin að geyma og nota kryddjurtir
21st June 2016
Hvernig á að rækta þinn eigin kryddjurtagarð
8th June 2016
Besta leiðin að geyma og nota kryddjurtir
21st June 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Sælgætis íspinnar með kókos og jarðaberjum fyrir 17.júní

DSC_8865-2

Það er fátt meira hressandi en ískaldur íspinni á sólríkum degi sem bráðnar uppí munni þínum og kætir bragðlauka og skap.

Þessi 17.júní ís er svolítið þannig. Hann hefur rjómakennda áferð líkt og úr kúamjólkurís og gefur sætleika frá ferskum íslenskum berjum. Algjör Draumur!

Þessi íspinni er laus við unnin og hvítan sykur og mjólkurafurðir og hægt er að útbúa vegan ís með því að skipta út hunangi fyrir hlynsíróp.

Ég vel alltaf hrein hráefni jafnvel þegar ég útbý sætubita, eins og þú eflaust hefur tekið eftir með uppskriftum af súkkulaði fudge og fleiri ómótstæðilegum hér. Kemur það flestum á óvart hversu sætt og ljúft það er hægt að hafa það án sykurs!

 

Sælgætis íspinnar með jarðaberjum og kókos 

Ísinn:

½ bolli kókosmjólk

¼ bolli kókosmjöl (einnig má nota möndlu- eða hnetumjólk)

2-3 tsk hunang eða hlynsíróp

stevia með vanillubragði eða vanilludropar (einnig má nota piparmyntudropa)

Ávextir:

Fersk íslensk jarðaber

Fersk íslensk bláber

  1. Setja  innihaldsefni fyrir ísinn í skál eða blandara og hrærið saman.
  2. Raðið ávöxtum í formin
  3. Hellið yfir í íspinnaform upp að 3/4. Setjið íspinna og frystið yfir nóttu.

 

DSC_8840

Nokkur hollráð fyrir íspinnagerð:

  • Skiptu út berjum fyrir kiwi, mangó, hindber, banana, melónu eða ferskjum.
  • Bættu við 1/2 msk chia fræjum
  • Bættu við 1 msk kakó fyrir súkkulaði draum! namm!

Ég fékk þessi ísbox í byggt og búið og pinnana í Sostrene Grene!

DSC_8838

Vertu viss um að skrá þig að neðan fyrir fleiri uppskriftir sem ég sendi vikulega og sýnishorn úr nýju uppskriftabók minni þegar hún kemur út bráðlega! Lifðu til fulls uppskriftabókin er að mínu mati sú sem allir ættu að grípa sér eintak af þar sem hún gefur einfaldar, fljótgerðar uppskriftir sem líkaminn og bragðlaukar kunna að meta.

Ef þér líkaði greinin deildu áfram á facebook með vinum, samstarfsfélögum eða  hverjum þú telur vilja svala þorstanum með þessum sykurlausa ís!

Þar til næst

heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

p.s  Þarftu á hreinsun að halda?

Ég tek reglulega hreinsun og finn vellíðan sem fylgir því. Taktu hreinsunarprófið hér og tryggðu þér ókeypis matseðill fyrir 1 dag í saðsamri hreinsun. Með skráningu færðu tækifæri á að vera með í  5 daga hreinsun mína sem kemur þér í bikiniformið fyrir sumarið.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *