10 mín detox kvöldrútína fyrir betri svefn
3 skálar fyrir sumarið
16th May 2022
súkkulaðilöngun
Magnesíum og súkkulaðilöngun
30th May 2022
3 skálar fyrir sumarið
16th May 2022
súkkulaðilöngun
Magnesíum og súkkulaðilöngun
30th May 2022
Show all
Deildu á facebook
Facebook

10 mín detox kvöldrútína fyrir betri svefn

detox

Svefn hefur verið töluvert í umræðunni upp á síðkastið og því fannst mér kjörið að deila með þér einfaldri kvöldrútínu sem hjálpar þér að sofa betur.

Kvöldrútína þessi styður við náttúrulega hreinsun líkamans og hjálpar þér að gíra þig niður eftir langan dag og fara í algjöra slökun.

Ávinningar þessarar kvöldrútínu geta verið bætt melting, minni bjúgur eða uppþemba, fleiri klukkustundir í djúpsvefni sem eykur orku og einbeitingu, minni sykurþörf og stilling á matarlöngunum.

Af hverju að taka inn mjólkursýrugerla?

Mjólkursýrugerlar stuðla að hreinsun líkamans og hjálpa meltingunni. Flestir taka inn mjólkursýrugerla á tóman maga, annaðhvort 30 mín fyrir máltíð eða 2 klukkustundum eftir. 
Að taka inn mjólkursýrugerla á kvöldin getur hjálpað líkamanum að losa út eiturefni og halda þarmaflórunni heilbrigðri. Gerlar fást víða og getað verið missterkir eða þjónað mismunandi tilgangi. Margir góðir gerlar fást t.d í heilsubarnum.

Lesa einnig:

2 mín æfing sem hjálpar þér að elska líkama þinn

Fæðutegundir sem auka kynhvötina náttúrulega

Meltingagerlar sem hjálpa við bólgur og hægðatregðu

Hvers konar te á að drekka?

Hreinsunarte getað virkað sérlega vel til að hjálpa okkur að sofna og slaka betur á. Hreinsunarte fást víða og upplagt að prufa sig áfram og finna hvað manni finnst best. Kamillu eða Lavender te eru sérstaklega þekkt fyrir slökun. 

Einu sinni til tvisvar í viku er einnig sniðugt að breyta til og taka inn Magnesíum carbonante, einnig þekkt sem magnesíum slökun eða calm, og það er sett í heitt vatn. Mér þykir best að fylla ¼ bolla af heitu vatni saman við duftið til að virkja magnesíumið og síðan hella köldu vatni. Þá get ég drukkið þetta hraðar. Þetta er talið styðja við vöðvaþreytu og bættan og dýpri nætursvefn.

Af hverju heit sturta eða bað?

Heit sturta getur hjálpað þér að slaka betur á og róa taugakerfið. Einnig getur hún hjálpað þér að tæma hugann og losa þig við áhyggjur dagsins. Að skrúbba líkamann vel fyrir svefninn getur líka verið góð rútína en slíkt getur örvað blóðrásina og komið hreyfingu á sogæðakerfið. Svitaholur líkamans opnast og líkaminn nær að losa sig við ýmis eiturefni. 

Til að fá álíka áhrif á styttri tíma er hægt að skola af tánum og fótum með sturtuhaus með heitu vatni og síðan þvo andlitið með þvottapoka. Þetta getur verið róandi og endurnærandi tími, hafðu kerti á eða róandi tónlist og gefðu þér smá “me-time”.

Er í lagi að vera í símanum á kvöldin?

Skjátækin gefa frá sér blátt LED-ljós sem hamlar melatónín framleiðslu. Það tekur tíma fyrir melatónín framleiðslu líkamans að byggjast upp og því er mikilvægt að eyða ekki síðustu klukkustundunum fyrir svefn með augun upplýst af skjám. Sími, spjaldtölva, sjónvarp og tölva eru allt dæmi um tæki sem við ættum að minnka eða forðast alveg þegar fer að líða á kvöldið. Sniðugt getur verið að setja sér áminningar t.d kl 21 á kvöldin þegar hætta á notkun á slíkum tækjum. Einnig er hægt að nota gul skjágleraugu sem loka fyrir allt að 75% af bláu ljósi sem berast til augna.

Ekki gleyma svefngrímunni!

Rannsóknir hafa sýnt að líkaminn framleiði melatonin aðeins þegar það er dimmt, en melatonin er lykilatriði þegar kemur að djúpsvefni. 

Myrkur hjálpar framleiðslu að melatonin

Líkami okkar býr einnig yfir náttúrulegri líkamsklukku sem vekur okkur þegar sólin rís á morgnanna. Við á Íslandi þurfum því að leita lausna á þeim tímum árs þegar sólin rís allt of snemma en besta lausnin að mínu mati er svefngríma.

Ég sef með svefngrímu allan ársins hring þrátt fyrir að vera með myrkvunargardínur að auki, því þá vekur nætursólin mig ekki og lífsklukkan helst í betra jafnvægi. Hægt er að kaupa svefngrímur víða,  í öllum litum og gerðum. Silkugrímur eru í uppáhaldi hjá mér.

Aukin orka og minni sykurþörf. Ókeypis fyrirlestur – í beinni

Í tilefni sumarsins býð ég þér að hitta mig á ókeypis net- fyrirlestri þar sem ég mun deila með þér ráðum til að fara inn í sumarið með aukna orku og betri stjórn á sykurþörfinni

Þú munt læra:

  • Hvaða fæðu eykur orku
  • Hvaða sætugjafar eru betri og verri
  • Hvernig kunna sér á hóf í sumar  
  • Ráð til að léttast á náttúrulegan hátt 
  • Hvernig á að velja hollt á bensínstöðvum og í útileigunni

Veglegir vinningar verða gefnir í beinni frá Sóley Organics á þessari einstöku upplifun frá netinu. 

Smelltu hér fyrir ókeypis fyrirlestur með mér

Góður svefn er lykil að góðri heilsu og vona ég að þessi einfalda rútína geti hjálpað þér að ná góðum og djúpum nætursvefni.

Endilega láttu vita í spjallinu hér að neðan hvernig þú nærð góðum svefni og hver af þessum ráðum höfða til þín?
Miðlaðu heilsunni áfram með því að smella hér og deila þessu bloggi á Facebook.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *