Við erum 7 ára! Afmælistilboð og árangurssögur
29th October 2019Fæðutegundir sem auka kynhvötina
11th November 2019Við erum 7 ára! Afmælistilboð og árangurssögur
29th October 2019Fæðutegundir sem auka kynhvötina
11th November 2019Túrmerik latte er eitthvað sem ég elska að drekka á köldum morgnum sem krefjast kósýheita, inni!
Ég hef verið að gera mér þetta túrmeriklatte því ég drekk ekki kaffi (og drykkurinn er aðeins of ljúffengur!)
Túrmeriklatte-ið er bólgueyðandi og gott til að halda flensu burt enda hefur túrmerik verið notað í lækningarskyni í mörg ár.
Drykkurinn er koffínlaus og því hægt að njóta hans bæði á morgnana og kvöldin. Ég útfærði drykkinn líka sem íslatte fyrir þá sem eru ekki hrifnir af heitum drykkjum (eins og maðurinn minn og mágkona) og kemur hann skemmtilega á óvart!
Ég mæli því með að prófa bæði!
Þessi latte er..
- fljótlegur
- úr fáum hráefnum
- rjómkenndur og seðjandi
- sætur
–
–
Í drykkinn nota ég lífrænt túrmerikduft. Ég byrja á að hita mjólkina í potti eða Vitamix blandara.
–
–
Næst hræri ég saman túrmerik, sætunni, svörtum pipar og kókosolíu. En svartur pipar eykur upptöku líkamans á túrmerik. Kókosolían vinnur sem fituforði og veitir því langvarandi seddu.
Lesa einnig:
Himneskt Chai boost
Matcha Orka í tveimur útgáfum
Túrmerikdressing sem mun breyta lífinu þínu!
–
–
Svo er það þitt val hvort þú berð drykkinn fram sem heitan drykk (mín útgáfa) eða hressandi og kaldan latte drykk (útgáfa mannsins míns).
–
–
Kaldur latte finnst mér betri seinnipart dags eða eftir líkamsræktartíma í heitum sal eins og hot yoga!
–
–
Túrmerik latte
Einföld útgáfa:
1 ½ bolli haframjólk eða kókosmjólk (sjá athugasemdir)
½ tsk túrmerik duft (sját athugasemdir)
1 msk hunang eða 1 msk kókossykur
klípa af svörtum pipar
1 tsk kókosolía (eða notið MCT duft)
Fyrir kryddaða útgáfu bætið við:
engifer á hnífsoddi
kanil á hnífsoddi
negul á hnífsoddi
1. Hitið mjólk í potti í nokkrar mínútur. Bætið við hráefnum og hrærið með písk þar til kekkjalaust. Einnig er hægt að setja hráefni í blandara ef þið eruð ekki að ná að hræra þessu nægilega vel saman.
2. Smakkið til og kannið hvort þið viljið meiri sætu.
3. Ef þið viljið bera fram heitt, notið mjólkurfreyðara til að flóa efsta lagið á mjólkinni. Þetta er val en gefur fallega áferð.
4. Ef þið viljið gera íslatté, setjið klaka í glas og hellið drykknum yfir.
Athugasemdir:
*Kókosmjólkin mun gefa rjómkenndari latte og verður auðveldara að flóa. Ég nota kókosmjólk frá Koko í fernu og haframjólkin frá Ecomil er í miklu uppáhaldi. Bæði fæst í Nettó.
*Ef þið eigið Vitamix blandara má setja öll hráefni í blandara og stilla hann á súpu/heita drykki stillingu og leyfa blandaranum þannig að hita drykkinn fyrir þig. Bætið við kókosolíu undir lokin.
*Ég nota túrmerikduft frá Sonnetor heilsu, lífrænt og frábært.
*Prófið ykkur áfram með tilbúna blöndu frá Vivolife fyrir enn fljótlegri útgáfu. Eingöngu þarf að bæta við vökva og hita.
*Drykkurinn geymist vel í kæli.
Hvort ert þú meira fyrir, kalda eða heita drykki? Hefur þú prófað túrmerik?
Láttu vita í spjallið að neðan.
Munið svo að deila kærleikanum yfir á Facebook og ef þið búið þennan til taggið @lifdutilfulls á Instagram, ég elska að sjá myndir frá ykkur.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
4 Comments
Er að fá mér þennan notalega og góða drykk. ???? Takk fyrir! Stella A
En gaman að heyra Stella! :* vonum að þú njótir hans vel 😉
Er að fara versla í þennan flotta drykk takk fyrir
Ætla prufa þessa uppskrift,
takk fyrir ráðin.. ??