Túrmerik hummus með steinseljusalati
Chiagrautur með himneskum chai kókosrjóma
24th January 2017
lúxus hafragrautur
Lúxus hafragrautur með bananamjólk
6th February 2017
Chiagrautur með himneskum chai kókosrjóma
24th January 2017
lúxus hafragrautur
Lúxus hafragrautur með bananamjólk
6th February 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Túrmerik hummus með steinseljusalati

Túrmerik hummus

Eitthvað sem ég geri reglulega er góður hummus

Auðvelt er að bera hann á nýbakað súrdeigsbrauð, hrökkbrauð, gulrætur og gúrkusneiðar sem millimál eða léttan hádegisverð.

Þessi túrmerik hummus er ólíkur öðrum sem þú hefur prófað. Þetta er uppskrift sem leikur aldeilis vel við bragðlaukana með krydduðu kjúklingabaununum og steinseljunni mun þér líða eins og þú sért á framandi veitingastað. Ég tók hann með í matarboð um daginn, allir þar töluðu um hvað hann væri góður og kláraðist hann nánast strax!

DSC_0627

Byrjið að baka kjúklingabaunir í ofni.

Lesa einnig:

Hollt Hrökkbrauð
Himneskur Mangó Lassi drykkur
Fyllt sæt kartafla með hvítlaukssósu

DSC_0651-min

Næst má gera Túrmerik hummusinn. Túrmerik er æðisleg kryddjurt sem getur dregið úr bólgum. Túrmerik er frábært gegn liðagigt og inniheldur það öflug andoxunarefni.

DSC_0621

Steinselja og allar kryddjurtir innihalda öflug andoxunarefni sem hjálpar líkamanum að losa sig við eiturefni og fríska upp á heilsuna. Þegar líkaminn er hreinsaður af eiturefnum reglulega er blóðsykurinn stöðugri sem leiðir til minni sykurlöngunnar.

DSC_0669-min

Túrmerik hummus

240 gr. eða 1 dós soðnar kjúklingabaunir
3 msk tahini
1 sítróna, kreist
1-2 hvítlauksrif
3 msk olífuolía
1/4 bolli vatn (eða meira)
1 tsk tamarisósa
2 tsk túrmerikduft
1 tsk papríkuduft
1 tsk svartur pipar
1/2 tsk kúmen
salt eftir smekk
örlítið af engiferdufti (val)

Kryddaðar kjúklingabaunir

240 gr eða 1 dós kjúklingabaunir soðnar
1/2 tsk papríkuduft
1/2 tsk chilli
salt og pipar eftir smekk
1 msk olífuolía

Steinseljusalat

Handfylli steinselja
Handfylli klettasalat
Handfylli konfekttómatar
1/4 bolli rauðlaukur
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1 msk sítrónusafi
1 msk ólífuolía
Salt og pipar

Glúteinlaust kex (Ég notaði frá Simple Mills með sólþurrkuðu tómatbragði)

Aðferð:

1. Bakið kjúklingabaunir í ofni. Forhitið ofninn við 180 gráður. Skolið af kjúklingabaunum og setjið í eldfast mót eða á ofnplötu með bökunarpappír. Kryddið, hellið olíu yfir og hrærið örlítið svo allar kjúklingabaunirnar taki við kryddum. Eldið í ofni í 40 mín eða þar til þær eru stökkar og góðar.

2. Setjið öll hráefni nema túmerikduft í matvinnsluvél og maukið vel. Hellið í skál og hrærið túrmerik kryddinu vel saman við með sleif. Hummusinn geymist vel í kæli (það þarf að fara varlega með túrmerikduftið og bæta því eftir á því annars festist liturinn í blandaranum) 

3. Saxið steinselju, rauðlauk og tómata smátt og sameinið í skál með rest af innihaldsefnum. Blandið saman í skál. Salatið geymist ferskt í 2 daga í kæli.

4. Setjið hummus á disk, bætið kjúklingabaunum og steinseljusalati yfir og borðið með glúteinlausu kexi.

Njótið sem veislumat eða fyrir saumaklúbbin. Einnig má gera þrefalt steinseljusalat og njóta sem léttan rétt eða meðlæti.

Láttu mig vita í spjallinu hér að neðan, 

Hefur þú prófað túrmerik? Segðu mér endilega frá í spjallinu hér að neðan hver reynsla þín er.

Það er ávallt gaman að heyra frá þér

Ekki gleyma svo að deila færslunni yfir á Facebook, sérstaklega ef þú átt vinkonu/vin sem elskar góðar hollar uppskriftir! 
Og taggaðu okkur endilega á Instagram ef þú útbýrð góðan burger í sumar!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *