Svartbauna brownie úr sykuráskorun!
hvítur sykur
Af hverju þú ættir að sleppa sykri með mér!
27th May 2014
sykurlausar uppskriftir
Ert þú með? Yfir 500 konur ætla að vera sáttar og sykurlausar frá næstu viku!
10th June 2014
hvítur sykur
Af hverju þú ættir að sleppa sykri með mér!
27th May 2014
sykurlausar uppskriftir
Ert þú með? Yfir 500 konur ætla að vera sáttar og sykurlausar frá næstu viku!
10th June 2014
Show all

Svartbauna brownie úr sykuráskorun!

svartbauna brownie

Ert þú að velta fyrir þér af hverju þú sækist í sykurinn?

Ég hef fundið 4 mjög nákvæmar ástæður sem vert er aðskoða til að vinna bug á sykurlönguninni, allar sem við krifjum í 14 daga “sátt og sykurlaus” áskoruninni sem byrjar 16.júní!

Skráðu þig á 14 daga áskorunina hér og sjáðu sýnishorn úr uppskrift að neðan!

4 ástæður fyrir því að líkami þinn kalli á sykur

Ójafnvægi í lífi þínu, líkama, umhverfi og á matardisknum hefur áhrif áþví hvort þú sækir í sykur eða upplifir fullnægju.

Einnig geta aðrar ástæður eins og skortur á nánd og ekki næg vatnsinntaka verið orsökin, en ég hef tekið eftir því að það er mikilvægt að muna eftir hjá konum sem hafa verið í þjálfun hjá mér.

4 ástæður sem valda sykurlöngun:

  1. Ekki nægt prótein
  2. Ekki næg fita
  3. Ójafnvægi í vítamínum og næringu frá fæðu og bætiefnum (t.d frá magnesíum)

Þegar við erum vön vissu magni af sykri í kerfinu okkar sárþörfnumst við sykur þegar magnið er er lágt

Svo þetta er það sem við getum gert!

Taktu sykur út úr líkamanum og skiptu á nærandi fæðu sem líkami þinn er raunverulega að þrá!

En hér er það erfiða við þetta

Sykurþörf tekur lengri tíma en 2 daga til að minnka. Áhrif sykurs mun taka að minnsta kosti 2 vikur til að yfirgefa kerfið.

Svo ég skora á þig að sleppa sykri með mér í 14 daga! við byrjum 16 júní

Leyfðu mér að sýna þér hvernig þú getur tekið á sykurlöngun þinni með fæðu og réttri næringu! Við munum drekka græna drykki með náttúrulegri sætu, borða girnileg salöt og meira segja eftirrétti!

Hér er sýnishorn af einni girnilegri og góðri frá sykuráskoruninni!

 

Þessar eru mjúkar, sætar og ein af bestu “brownies” sem ég hef smakkað! Ekki bara það að þær séu stútfullar af trefjum, próteini, omega 3 og helling af góðri næringu, þá slá þær líka á sykurþörfina hjá þér!

Hollar, auðveldar og gómsætar, betri eftirrétt færðu ekki.

 

Svartbauna brownies frá “sátt og sykurlaus” 14 daga áskorun

 

1 dós svartar baunir (eða 1 3/4 bolli eldaðar)

2 hörfræegg (2.5 teskeiðhörfræ + 6 teskeiðar vatn)

3 teskeiðar kókosolía (bráðnuð, krukka lögð í heitt vatn)

3/4 bollar lífrænt kakóduft

1/4 teskeið salt

1 teskeið vanilludropar

1/2 bolli hunang eða annað óskandi náttúrulegt sætuefni

1 1/2 teskeið vínsteinslyftiduft

valhnetur til að toppa

 

 

  1. Hitið ofnin við 180 gráður
  2. Smurðu muffins form með olíu
  3. Útbúðu hörfræeggin með því að sameina hörfræ og vatn í matvinnsluvél. Settu vélina í gang nokkrum sinnum og leyfðu innihaldinu síðan að bíða í nokkrar mínútur. Bættu þá við eftirstandandi innihaldsefnunum og hrærðu saman í 3 mínútur. Þú villt hafa þetta frekar mjúkt og slétt. Ef þetta lítur út fyrir að vera of þykkt bættu þá við 1-2 msk af vatni og settu matvinnsluvélina aftur í gang. Þetta á ekki að vera þykkt en samt ekki þannig að þetta leki út um allt.
  4. Deildu þessu jafnt í muffins form og notaði skeið eða fingur til að ýta létt ofan á kökurnar.
    Valfrjálst: Stráið muldum valhnetum yfir og bakið í 20-26 mínútur eða þar til toppurinn eru þurr og brúnirnar byrjaðar að losna í burtu frá hliðunum.

 

Fjarlægið úr ofninum og látið kólna í 30 mínútur áður en þið fjarlægið af ofnplötu. Þær geta verið linar, svo fjarlægið varlega með gaffli. Þær eiga að vera mjög mjúkar, svo verið ekki áhyggjufull ef þær virðast of rakar – það er málið.

Mér finnst þessar bestar með glasi af möndlumjólk (eitthvað sem ég mun einnig deila með þér í 14 daga áskoruninni) en ekki hika við að setja ofan á þær fersk ber eða bæta við fleiri valhnetum!

Skráðu þig hér í 14 daga áskoruninna


En þangað til, bakaðu þessar brownies og segðu engum innihaldið. Ekki fyrr en þau smakka og grátbiðja þig um uppskriftina.

Mundu síðan að like-a og deila með vinum þínum á facebook ef greinin vakti athygli þína!

 

Láttu vita hvernig smakkast! Það er alltaf gaman að heyra frá þér.

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Sara Dögg says:

    Nammi namm 🙂 brosi hringinn!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *