Sumar matarskipulag fyrir ferðalagið og uppskriftir
Sólskins túrmerikdressing sem mun breyta lífi þínu!
19th June 2018
Svona kemur þú þér í form í sumar – Viðtal við Önnu Eiríks einkaþjálfara
10th July 2018
Sólskins túrmerikdressing sem mun breyta lífi þínu!
19th June 2018
Svona kemur þú þér í form í sumar – Viðtal við Önnu Eiríks einkaþjálfara
10th July 2018
Show all

Sumar matarskipulag fyrir ferðalagið og uppskriftir

Með rétta skipulaginu og undirbúningnum er hægt að vera hollur í ferðalaginu líka!

DSC_5270small

Það er greinilegt að þið elskið matarskipulag svo ég ákvað að gefa ykkur smá framhald af því með áherslu á undirbúning máltíða, í von um að auðvelda ykkur hollustu og heilbrigðan lífsstíl í sumar! (sérstaklega á ferðalögum og í útilegum).

Smá skipulag og undirbúningur í matargerðinni sparar þér gífurlegan tíma í gegnum vikuna og þarf alls ekki að vera tímafrekt eða flókið!

Lesa einnig:
Sumarsalat með jarðaberjadressingu
Sumarið er BESTI tíminn til þess að taka heilsuna í gegn
Þrír æðislegir sumarkokteilar

DSC_5266small

Skothelt matarskipulag er jafnframt lykillinn að halda sér við hollt mataræði og falla síður fyrir freistingum og skyndibita.

DSC_5235small

Það er heldur ekkert unaðslegra en að opna ísskáp eða kæli fullan af hollum mat í snyrtilegum ílátum sem bíður eftir að fylla þig orku og ljóma! Þannig viljum við mæta sumrinu ekki satt?

DSC_5314small

Í matarskipulagið hef ég sett saman nákvæmlega hvað ég geri þegar ég á sérstaklega annríkar vikur með uppskriftum fyrir morgunmat, hádegismat og kvöldmat sem endast í allt að 5 dögum! Allt á klukkustund!

Fáðu skipulagið og uppskriftir ókeypis hér eða neðar á síðunni! Hentar það vel fyrir annríkar vikur heima, útilegur, ferðalög eða lautarferðir!

Hollráð fyrir matar- undirbúning vikunnar:

  • Lax, kjúkingabringur eða tófú er gott prótein til að eiga í gegnum vikuna og geymist í kæli í allt að 3-4 dögum ef þú geymir það rétt. Hægt er að bæta því útí eldað kínóa, grænmeti og ferskt salat fyrir fljótlegan hádegisverð eða kvöldmat.
  • Laxasalat er eitthvað sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og góð leið að nýta afgangs lax! Þetta set ég helst í vefjur eða raw samlokur mínar (uppskrift af laxasalati finnst í matarskipulaginu).
  • Sætkartöflumús með engiferrót er æðisleg frábær með öllum grillmat og auðvelt að hita upp í litlum potti!
  • Niðurskorið ferskt grænmeti er góð leið að minna okkur á að borða meira grænmeti og tilvalið dýfa í tahini dressinguna mína (sem er uppskrift af í skipulagsskjalinu) og hafa með í göngur eða bílferð.
  • Grillsósur eru nauðsynlegar, það geta flest okkar verið sammála um ekki satt? Ég geri oft tvær mismunandi sósur eða/og dressingar klárar fyrir vikuna sem er þá auðvelt að grípa í með kvöldmatnum (uppáhalds grillsósu mína má finna í matarskipulaginu).
  • Súkkulaðiprótein-hafragrautarnir mínir eru fullkomnir ferðafélagar í göngur eða útilegurnar. Ég geri einn skammt og hann endist mér í 5 krukkur sem hægt er að borða í morgunmat eða sem millimál.

Hér setti ég saman einfalt laxasalat með grillsósunni, blómkálsvængjum og salati. Ótrúlega saðsöm og góð blanda.

DSC_5286small

Skráðu þig hér eða neðar á síðunni fyrir skipulagið – og uppskriftir sem ég deili hvergi annarstaðar!

Í matarskipulaginu finnur þú að auki sniðug ráð frá mér um geymslutíma og geymsluaðferðir!

Lautarferðir eru skemmtilegar í sumar. Ég tek gjarnan með mér þessa rétti í góðri kælitösku fyrir matinn.

DSC_5338small

Ég vona að þú eigir hollt og skemmtilegt sumar! Það þýðir ekkert annað!

Segðu mér frá í spjallinu að neðan, hvaða hollustu grípur þú með þér í ferðalagið eða þegar þú átt annríkt?

Það er alltaf ánægjulegt að heyra frá þér!

DSC_5305small

Lesa einnig
Bilað góðir blómkálsvængir með Ranch sósu!
15 mínútna Fettuccine “osta”pasta með stökku blómkáli
Sumarskál sem skorar!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Lóa Helgadóttir says:

    Glæsilegt .Hlakka til að skipuleggja ískápinn minn. Kveðja Lóa Helgadóttir.

  2. Lóa Helgadóttir says:

    Sæl kæra Júlía mín. Ég hef aðeins flett þessu. Mér líst rosalega vel á þetta hjá þér,eins og allt annað sem að þu hefur lagt upp hérna fyrir okkur á námskeiðinu .Þú ert frábær!! Ég reikna ekki með að fara að ferðast innanlands,en aldrei að segja aldrei ? Ég ætla samt að skoða þetta flotta skipulag þitt,og vitna í það þegar að svo ber undir…Gleðilegt summar og njóttu.Kær kveðja.❤

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *