15 mín. fettucine “osta”pasta með stökku blómkáli
Hvernig á að þekkja sykur í matvælum og góðir staðgenglar
2nd April 2018
Mættu sumrinu fit og frískleg með þessum sumardagsgjöfum
17th April 2018
Hvernig á að þekkja sykur í matvælum og góðir staðgenglar
2nd April 2018
Mættu sumrinu fit og frískleg með þessum sumardagsgjöfum
17th April 2018
Show all
Deildu á facebook
Facebook

15 mín. Fettuccine “osta”pasta með stökku blómkáli

fettuccine

 –
Suma daga er nauðsynlegt að hafa eitthvað mjög fljótlegt og hollt í matinn.

Þá er þetta 15 mín fettuccine pasta með rjómkenndri “osta” sósu og stökku blómkáli rétturinn sem bjargar málunum.

Hann er ekki bara hollur og fljótlegur heldur einnig réttur sem allir í fjölskyldunni kunna að meta.

Ég geri stundum stóran skammt og borða í hádeginu daginn eftir.

fettuccine


Það kemur flestum á óvart að það sé hægt að finna gott “osta” bragð án þess að það innihaldi mjólkurafurðir eða sykur. Sósan og rétturinn er vegan og léttara í maga en hefðbundin ostapasta .

Ég nota næringarger og vegan parmesan ost í sósuna sem gefur gott “osta” bragð. 

Næringarger er óvirkt ger sem er ekkert líkt hefðbundu bakstursgeri. Það er gríðarlega ríkt af B-vítamínum og B-12 sérstaklega. En B-vítamín getað aukið orkuna yfir daginn, engin hætta er þó á því að þú borðir næringarger að kvöldi til og verðir vakandi frameftir. Er hægt að nota það yfir popp, salöt eða allt sem þú vilt fá gott ostabragð á á næringarríkan hátt.

fettuccine


Ég notaði glúteinlaust fettuccine pasta sem ég keypti í Nettó. Síðan nota ég kúrbít sem ég sker í þunna langa strimla sem kemur sérlega vel út á disknum.

fettuccine


Byrjið er á því að hræra hráefni í sósuna saman í blandara og sjóða pastað. Svo er grænmetið léttsteikt á pönnu og sósunni hellt yfir ásamt pastanu. Einfaldara verður það ekki.

Lesa einnig:
Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu!
Vegan lasagna úr 5 hráefnum
Djúsí vegan BLT samloka

fettuccine


15 mín. fettuccine “osta” pasta með stökku blómkáli

Fettuccine Pasta (ég notaði glúteinlaust soybauna fettuccine pasta frá a la eco)

Vegan “osta” sósan:

1 bolli kókosmjólk  (ég nota frá coop í nettó)

1/2 bolli rifin vegan parmesan eða parmesan

1 msk næringarger

1 hvítlauksrif (ég notaði einn perlulauk)

chili á hnífsodda

1 tsk dijion 

klípa af salt

nokkrir dropar stevia eða kókospálmanektar

Grænmetið:

1 msk olífuolía

2 hvítlauksrif (ég notaði tvo perlulauka)

1/2 blómkál

1/2 kúrbútur

handfylli ferskt rósmarín

Borið fram með:

spínati

valhnetum/furuhnetum

ferskri steinselju

sítrónusneiðum

rifin vegan parmesan eða parmesan

1. Setjið öll hráefni sósunar í blandarann og vinnið þar til silkimjúkt.

2. Sjóðið vatn í potti og leyfið suðu að koma upp. Bætið pasta útí vatnið, lækkið undir og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka c.a 6-8 mín.

3. Hitið pönnu. Steikjið hvítlauk, blómkál, kúrbít og kryddjurtir á pönnu og hrærið í nokkrar 5-7 mínútur.

4. Hellið sósunni yfir pönnuna ásamt pastanu og hrærið örlítið. Leyfið að malla í nokkrar mínútur.

5. Berið fram með því sem þið kjósið og njótið!


Hollráð:
Ef þú vilt hafa blómkálið enn stökkara má setja það í ofnin við 180 gráður með örlítið af olíu og salt og pipar í 25 mín. Þá er gott að snúa við blómkálinu eftir c.a 15 mín af eldunartímanum.
Til að flýta fyrir má gera vegan “osta” sósuna yfir helgi eða kvöldið áður og geyma í kæli. Einnig má frysta sósuna sem ég tel þó ólkílegt að gerist þar sem sósan er svo bragðgóð að hún klárst yfirleitt strax.


Ég vona að þú prófir, því rétturinn er svo einfaldur og bragðgóður! Svipað uppskriftunum sem eru í “Frískari og orkumeiri á 30 dögum” námskeiðinu hjá mér. Til að læra meira um námskeiðið getur þú farið hér.

Nú langar mig að heyra frá þér…prófaðir þú uppskriftina, hvernig fannst þér ?

Láttu vita í spjallinu hér að neðan!

Mundu síðan að tagga Lifðu til fulls á instagram í story hjá þér eða þegar þú póstar með #lifdutilfulls. Við elskum að sjá ykkar útgáfur af matnum.

Áttu vinkonu sem gæti gagnast af þessari færslu? Deildu þessu bloggi endilega yfir til þess að við getum náð til fleiri og haldið áfram að deila uppskriftum til ykkar.

 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *