Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
1st April 2020Rútína mín í samkomubanni
26th May 2020Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
1st April 2020Rútína mín í samkomubanni
26th May 2020Hér koma nokkur ráð sem hjálpa okkur að minnka ferðir á nammibarinn, minnka streytu og hætta ofáti. Allir þessir þættir styrkja ofnæmiskerfið okkar líka sem er mjög mikilvægt á tímum Covid! Ráðin hjálpa okkur að vera í toppformi bæði líkamlega og andlega og ég vona að þau eigi eftir að koma sér vel!
Magnesíum drykkur gegn sykurþörf á kvöldin
Hver kannast ekki við að detta meira í nammiskápinn á kvöldin? Ástæðan fyrir því gæti verið skortur á magnesíum. Þessi saðsami drykkur er kjörinn þegar sykurþörfin grípur um þig, og hjálpar þér að sofa betur. Sjá uppskrift hér.
Einföld og orkurík millimál til að eiga heima
Þegar maður er meira heima hjá sér en vanalega, eins og nú á tímum Covid, þá getur verið auðvelt að detta í nart og óhollustu yfir daginn. Þess vegna er kjörið að eiga heima tilbúið hollt og orkuríkt millimál sem maður getur gripið í þegar nartþörfin gerir vart við sig.
Smelltu hér fyrir 7 hugmyndir af hollu og góðu millimáli.
Minnkaðu streituvalda
Það er skiljanlegt að ástandið í heiminum í dag vekji upp streitu hjá mörgum einstaklingum og því er mikilvægt að temja sér leiðir til að koma í veg fyrir að streitan hafi áhrif á heilsu okkar og vellíðan.
Lesa einnig
5 ráð gegn streitu
Ertu að brenna út? Svona setur þú heilsuna aftur í forgang
Svona lítur hreinsunardagurinn minn út
Fæðutegundirnar sem efla ónæmiskerfið
Vegna kórónuvírussins hefur landlæknir tekið fram mikilvægi þess að efla ónæmiskerfið. Að sjálfsögðu ættum við alltaf huga að ónæmiskerfi okkar og stuðla að heilbrigðu varnarkerfi líkamans en á tímum sem þessum er það einstaklega mikilvægt. Þær 7 fæðutegundir sem styðja við ónæmiskerfið eru m.a. hvítlaukur, brokkolí, túrmerik, rauð paprika o.fl..
Meðvitað át til að stoppa ofát
Meðvitað át snýr að því að virkja öll skilningarvit okkar þegar við borðum og þannig komast í betri tengslum við hver raunverulegi matarskammtur okkar er. Þegar við borðum með sjónvarpskjá eða síma fyrir framan okkur eða því okkur einfaldlega leiðist eða langar að líða betur er auðvelt að borða meira en við þurfum. Í staðinn getur meðvitað át hjálpað okkur að átta okkur á því þegar við erum södd og líka njóta matarins betur.
Kynntu þér betur um meðvitað át og hvernig þú getur tileiknað þér það hér.
Segðu mér í spjallið að neðan hvað af þessum ráðum þú vilt tileinka þér?
Ekki gleyma svo að deila færslunni með vinum á Facebook og endilega taggaðu okkur á Instagram Lifðu til fulls ef þú prófar einhverjar uppskriftir eða ráð!
Viltu ráð að meiri orku og minni sykurþörf?
Skráðu þig á ókeypis fyrirlesturinn minn á netinu “3 einföld skref til að tvöfalda orkuna, losna við sykurlöngun og auka brennslu náttúrulega” en þar fer ég yfir þær leiðir sem ég notast við til að viðhalda orku, vellíðan og jafnvægi alla daga og gef betri innsýn í mataræði, sætugjafa sem eru góðir og ráð sem koma orkunni strax af stað!
Smelltu hér til að skrá þig á ókeypis fyrirlesturinn – þú færð uppskrift sem svínvirkar á sykurpúkann!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!