Páskakonfekt
20th March 2024Candida og sykur
8th April 2024Páskakonfekt
20th March 2024Candida og sykur
8th April 2024Þessi rjómakenndi hnetusmjörs- og banana þeytingur slær á sykurþörfina, eykur orku og náttúrulega hreinsun líkamans.
Hann er einnig fljótlegur og því kjörin að gera sér í morgunmat, hádegismat eða einfaldlega þegar sykurþörfin kallar. Í þeytingnum má finna næringarríka fæðu sem gefur okkur góða orku, heldur blóðsykri stöðugum og eins og slær á sykurþörfina.
Próteinið í drykknum kemur frá Kollagen duftinu og hnetusmjörinu, kanilinn eykur brennslu náttúrulega og svo kemur bananinn og hnetusmjörið með sæta bragðið.
–
–
Hnetusmjörs og banana þeytingur
1 banani afhýddur og frosin
½ bolli frosið blómkál
1-2 msk ósætað hnetusmjör
1 tsk hörfræ möluð
1 bollu ósætuð möndlu- eða önnur hnetumjólk
2 skúppur Kollagen frá Feel Iceland (val)
¼-½ tsk Kanil, eða meira eftir smekk
–
Setjið öll hráefni í blandara og hrærið þar til silkimjúkt og rjómakennt.
–
Athugasemdir:
Ef þið gleymið að frysta banana er auðvelt að bæta við klökum í drykkinn.
Blómkál fæst frosið í mörgum matvöruverslunum. Sjálf finnst mér best að gufusjóða blómkál og frysta enda nota ég það mikið í búst drykki. Það má sjálfsagt sleppa blómkálinu ef þið finnið það ekki og nota þá ½ banana á móti eða prófa ykkur áfram með frosið grænkál, spínat eða annað grænmeti fyrir auka næringu.
Hægt er að skipta út hörfræjum fyrir möluðum chia fræjum í sömu hlutföllum eða nota 1-2 msk chia fræ sem hafa verið út bleytt.
–
Lesa einnig:
Berjabúst fyrir breytingaskeiðið
Bleikur þeytingur fyrir bleikan október
Himneskur Mangó Lassi drykkur
–
Ertu orðin leið á skyndilausnum og ruglandi upplýsingum fjölmiðla?
Þá er heppnin með þér
Því nú er opið fyrir 3 og 6 mánaða einkastuðning með heilsumarkþjálfun og í því tilefni bjóðum við ókeypis 15 mín viðtalstíma án bindingar.
Í símtalinu færðu skýrleika í því hvað stendur í vegi fyrir árangri þínum, hver fyrstu skrefin eru til að byrja að sjá breytingar og hvernig við leiðum okkar konur að árangri með einstaklingsmiðaðri nálgun í einkastuðning.
Fá ókeypis 15 mín viðtalstíma um heilsu mína.
Láttu vita í athugasemdum hér að neðan ef þú prófar og hvernig smakkast!
Ef greinin vakti lukku hjá þér ekki gleyma að deila þessari slóð til vinkonu eða birta á samfélagsmiðlum svo fleiri geta notið góðs af.
Mundu svo að fylgja okkur á Instagram og Facebook til að fá innblástur af bættum lífsstíl og fleiri girnilegum uppskriftum.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!