Himneskar vanillukökur
12th December 2017Hvað þarf til að sleppa sykri?
9th January 2018Himneskar vanillukökur
12th December 2017Hvað þarf til að sleppa sykri?
9th January 2018Vá það er bara vika til jóla! Ég trúi þessu varla. Þetta er uppáhalds vikan mín yfir árið enda fagna ég afmælinu mínu í dag! (Sjá afmæliskökuna mína hér)
Það eru fleiri afmælisbörn hér hjá Lifðu til Fulls og dömurnar Hrönn og Hulda sem hjálpa Lifðu til Fulls að blómstra og vera starfandi eiga afmæli þennan mánuð.
Það er því vægast sagt að það ríki mikil jólagleði hér hjá okkur og því ákváðum við að setja saman algjöra jólasprengju og deilum með ykkur í dag öllum hátíðaruppskriftum Lifðu til Fulls! Við höfum einnig sett þetta upp í skemmtilegt jóladagatal sem “ein uppskrift á dag til jóla” sem birtist daglega á Facebook síðu okkar!
Og þá að matnum! Því við þurfum öll að borða eitthvað gott þessari viku ekki satt?
Eitt sem við viljum koma á framfæri, sérstaklega í tilefni hátíðanna, er hversu þakklát við erum fyrir ykkur lesendur, fyrir áhugan sem þið sýnið heilbrigðum lífsstíl og stuðninginn! Eigið dásamleg og ljúffeng jól!
Smákökur og heitt kakó með kókosrjóma
Kanilristaðar möndlur
Súkkulaðiþynnur með myntufyllingu
Vanillukökur
Dásamleg sætkartöflumús með ristuðum pecanhnetum
Jólakonfekt
Ostakökubrownie
Piparkökudrykkur
Karamellukaka og jólabúst
Acai jólaskálin
Heilsa og hamingja,
Júlía og afmælisbörnin hjá Lifðu til Fulls
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!