Afmælistertan mín: Súkkulaðibrownie með ostaköku- og jarðaberjakremi!
13th December 2016Karamellukaka fyrir jólin
22nd December 2016Afmælistertan mín: Súkkulaðibrownie með ostaköku- og jarðaberjakremi!
13th December 2016Karamellukaka fyrir jólin
22nd December 2016Desembermánuður er í miklu uppáhaldi hjá mér!
Ég elska snjóinn og að hlýja mér við bolla af heitu sykurlausu kakói á köldum vetrardögum. Jólatónlistin kemur mér alltaf í hátíðarskapið og ég elska að matreiða holla og góða hátíðarrétti.
Þessi mánuður hefur verið sérstaklega annríkur við tökur, en hef ég tekið upp þætti með ÍNN sjónvarpi sem verða frumsýndir í kvöld! í þáttunum sýni ég þér mínar uppáhalds hátíðaruppskriftir eins og heit kakó og smákökur, karmelluköku og svo jólabúst til að koma til móts við hátíðarkræsingarnar.
Hér að neðan má sjá fyrri jólaþáttinn með mér og girnilegar uppskriftir!
Dásamlegar súkkulaðibita-smákökur
Gefur 25-28 smákökur
1/2 bolli vegan smjör, ég nota frá Earth Balance (keypt í Gló Fákfeni)
1/4 bolli hlynsíróp og 1 tsk stevia frá Via Health (eða notið 1/2 bolla Sweet like sugar stevia duft)
¼ cup kókosmjólk kæld í ískáp
2 tsk vanilludropar
–
2 bollar möndlumjöl, fínt
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 bolli dökkt súkkulaði, saxað
Forhitið ofninn við 180 gráður.
Setjið smjör, sætuefni, kókosmjólk og vanillu í skál og þeytið með handþeytara þar til silkimjúkt. Bætið við þurrefnum útá og hrærið saman við miðlungshraða. Bætið við súkkulaði undir lok með sleif.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu og skammtið matskeið af deiginu og mótið örlítið, kökurnar munu dreifa úr sér svo hafið pláss á milli.
Bakið í 10 mínutur, snúið ofnplötunni við svo kökurnar bakist jafnt og eldið í 10 mínútur til viðbótar. Leyfið smákökum að kólna í 15-20 mínútur og njótið með kaldri möndlumjólk eða ilmandi hlýju kakói.
Heitt kakó með kókosrjóma
Það jafnast ekkert á við heitan kakóbolla á köldum vetrarmorgni.
2 msk lífrænt dökkt kakó
2 bollar möndlu- eða kasjúhnetumjólk
2-4 dropir stevia / hlynsíróp
2 lífrænir vanilludropar
salt
1 tsk kanill eða einn kanilstöng
Hitið allt saman í potti. Hrærið með töfrasprota eða písk þar til blandan er orðin vel heit. Berið fram með kókosrjóma.
Kókosrjómi
Kókosrjómi er afar einfaldur og kom sem bjargvættur eftir að ég breytti um lífstíll, enda er ég mikið fyrir ís og rjóma!
Ein dós kókosmjólk
2 steviudropar með vanillu
Kælið kókosmjólkina í ísskáp yfir nóttu. Hellið mestum vökvanum úr dósinni, þar til bara hnausþykki parturinn situr eftir og setjið í matvinnsluvél ásamt steviudropum. Hrærið eins og þið mynduð hræra venjulegan rjóma þar til áferðin minnir á hefðbundinn rjóma.
Jólahefðir má alltaf hagræða á hollari máta og þurfum við ekkert að óttast breytingarnar. Á þessum uppskriftum má sjá að það er hægt að útbúa hollari kosti á laufléttan hátt, sem eru sko ekkert síðri!
Þangað til næst vona ég að þið njótið hátíðanna með fjölskyldu og vinum og verðið endurnærð eftir jólafríin.
Láttu endilega vita í spjallið hverjar þínar jólahefðir eru:)
Ef þér líkaði greinin, deildu yfir á facebook og segðu vinum frá.
Næsti jólaþátturinn verður birtur á morgun, miðvikudaginn 21.nóvember á ÍNN!
Gleðileg jól elsku vinir!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!