Ég er flutt til LA!
sykurlaus sætindi
Auka námskeið í sykurlausum sætindum og uppskrift!
11th October 2016
mataræði og Crossfit
Plöntumiðað mataræði og Crossfit. Viðtal við Önnu Huldu..
25th October 2016
sykurlaus sætindi
Auka námskeið í sykurlausum sætindum og uppskrift!
11th October 2016
mataræði og Crossfit
Plöntumiðað mataræði og Crossfit. Viðtal við Önnu Huldu..
25th October 2016
Show all

Ég er flutt til LA!

Næsti kafli í lífi mínu…

Hráfæðiskóli!

Ég mun halda áfram að skrifa þér frá sólríku Venice, Kaliforníu þar sem ég mun flytja í mánuð og fara í matreiðsluskóla hjá Matthew Kenney, en þar verð ég daglega að bralla í eldhúsinu og að drekka kókosvatn á ströndinni.

Untitled design (1)

Ég hlakka svo til að koma aftur og deila með þér því sem ég lærði í fréttabréfum og með námskeiði á Gló.

Næstu vikur tek ég skemmtileg viðtöl við skemmtilega aðila í heilsugeiranum sem ég deili með þér!

Ég býð þér að fylgjast með mér á facebook, instagram og snapchat: lifdutilfulls þar sem ég deili með þér lífinu í LA! 

Eitt það helsta sem ég er spurð að þegar kemur að því að viðhalda heilbrigði er; hvernig er best að flýta fyrir og hagræða vikunni? Svo mér datt þá í hug að deila með þér hvað ég geri og ég vona að þú munir nýta þér næstu vikurnar,  hér eru nokkur ráð að því hvað ég geri vikulega til að flýta fyrir eldamennskunni og halda hollustunni gangandi.

Hvernig má flýta fyrir  Lifðu til fulls lífsstílnum

Nýta sunnudaga í undirbúning.

Ef þú fylgist með mér á snapchat veistu að ég tek alltaf klukkustund eða svo fyrir undirbúning. Þetta bjargar mér algjörlega þegar ég á mjög annríkt í gegnum vikuna en þá geri ég gjarnan baunir, kínóa, dressingu og jógúrt eins og þetta eða múslí upp úr uppskriftabókinni til að eiga og grípa í. Að auki geri ég ofboðslega oft sæta kartöflu og kínóa burritoið mitt sem má finna í uppskriftabók minni og á það til í gegnum vikuna.

 

DSC_8724 copy

DSC_3106 copy

Góður búrskápur.

Lykilatriði þykir mér að eiga góðan búrskáp. Ég á alltaf kínóa, tamari sósu, tahini (sesammauk) sem ég nota í dressingar og búst drykki, hágæða kókosolíu, kaldpressuð olífuolía, einhverjar baunir, næringarger (óvirt ger sem er sérlega ríkt af b-12 og gefur orku og ostabragð), eplaedik, hnetur eins og möndlur og þá er auðvelt að skella hollum rétt saman eins og t.d úr uppskriftum bókarinnar.

 

DSC_2172 copy

Elda einu sinni og borða tvisvar.

Fyrir þá rétti sem þægilegt er að frysta þykir mér gott að elda meira og njóta aftur síðar. Súpur og pottréttir eru góð dæmi um mat sem gott er að frysta. Það sem mætti frysta úr réttum bókarinnar væri jafnvel mexíkósúpa, kjúklinganaggar og kínóapizzubotn. Einnig finnst mér gott að eiga pizzusósu og Enchiladas sósu, þá er ég snögg að sameina réttinn.

 

DSC_5770 copy

Afgangar af kvöldmatnum í hádegisverð.

Til að tryggja hollan og fljótlegan hádegisverð má nýta afganga í hádeginu. Ef þú hefur sótt matseðilinn og innkaupalistann frá mér sem fylgdi uppskriftabókinni sérðu að ég geri þetta gjarnan. í hádeginu má líka gera eitthvað létt eins og grænkálsvefjur eða salat með kínóa, sjá þrjár fljótlegar útfærslur hér og taka með í vinnuna. Salat úr krukkum eða pestó pasta frá uppskriftabókinni eru einnig afar vinsæl hjá mér sem nesti

 

DSC_4338 copy

 

Að taka þér tíma í undirbúning fyrir vikuna tel ég vera eitt það mikilvægara sem þú getur gert heilsunni og með því ert þú að setja þig og heilsu þína í forgang.

Hvað gerir þú í vikunni og ef þú átt uppskriftabókina hvað hefur þú gert í henni?

Láttu mig vita í spjallinu að neðan.

Hlakka til að vera með þér á samfélagsmiðlum næstu daga frá LA og hér í fréttabréfum.

Ef greinin vakti áhuga, deildu með á facebook 🙂

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

4 Comments

  1. Mér finst bara allt bránært það sem þú ert að gera .

  2. Dalrós Halldórsdóttir says:

    Sæl Júlía og takk fyrir frábært og lifandi blogg. Uppskriftirnar þínar eru alveg unaðslegar 🙂 Mig langar hins vegar að spyrja þig hvað næringarger er og hvar er hægt að fá það ?

    • Júlía heilsumarkþjálfi says:

      Takk æðislega fyrir og gaman að heyra! Næringarger er óvirkt ger ríkt af B-12 og gefur gott ostabragð. Það fæst í flestum matvöruverslunum í dag, á ensku er það Nutrititional yeast.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *