Auka námskeið í sykurlausum sætindum og uppskrift!
matreiðslunámskeið
Síðustu sæti á matreiðslunámskeið með mér!
4th October 2016
Ég er flutt til LA!
18th October 2016
matreiðslunámskeið
Síðustu sæti á matreiðslunámskeið með mér!
4th October 2016
Ég er flutt til LA!
18th October 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Auka námskeið í sykurlausum sætindum og uppskrift!

sykurlaus sætindi

Námskeiðin á Gló hafa farið vonum framar og greinilegt að margir sælkerar vilja gerast sykurlausir, enda er orðið uppselt á námskeiðið “sykurlaus sætindi”  núna á miðvikudag.

Úr því held ég tvö auka “sykurlaus sætindi” námskeið! Fyrra núna á föstudaginn 14.október frá  kl:18-21 á Gló Fákafeni og síðara í Reykjanesbæ, en þó eru aðeins takmörkuð sæti laus!

Farðu hér til að tryggja þér pláss næsta föstudag 14.október frá kl: 18-21 á Gló í Fákafeni

Farðu hér til að tryggja þér pláss næstkomandi þriðjudag 18.október frá kl 17:30-20:30 í  Reykjanesbæ!

Á námskeiðinu verða útbúnir dýrindis sætubitar og hrákökur og allt verður smakkað!

Ég deili með þér hvaða náttúrulegu sætugjafar eru bestir fyrir heilsuna samkvæmt nýjustu rannsóknum. Við skoðum líka hvernig er best að skipta út sykri í hefðbundinni uppskrift en einnig kenni ég sniðugar aðferðir og leiðir til að flýta fyrir og hvernig megi svo styðja við orku og ljóma á sama tíma og notið er sætinda.

Konur jafnt sem karlar hafa verið að koma, bæði byrjendur og lengra komnir. Farðu hér til að tryggja þér pláss í sykurlausa sætinda námskeiðið núna á föstudag í Gló Fákafeni.

Eitt sem er sniðugt að gera til að slá á sykurlöngun er að njóta sætinda frá náttúrunnar hendi. Hér eru nokkrar hlýjar uppskriftir sem ég hef verið að gera með haustinu og slá á sykurlöngun

shutterstock_348783314 copy

Hlýlegt grænmeti í ofni með kanil og valhnetum

 

4 gulrætur, 1/2 rófa, 1/2 sæt kartafla

1/2 dós kjúklingabaunir

ferskt rósmarín

2 tsk kanil

smá papríkuduft

salt og pipar

1 msk kókosolía

nokkrar valhnetur

Hitið ofn við 200 gráður. Skerið grænmeti í hæfilega munnbita og setjið í eldfast mót. Bætið við  kryddum og kókosolíukekkjum yfir og hrærið vel. Mér þykir best að hræra þetta með höndunum.

Setjið inní ofn við 200 gráður í 30 mínútur.  Mér finnst gott að hræra örlítið eftir 15 mín í grænmetinu svo kóksolían dreifist vel og kveikja að lokum 30 mín á grill stillingu í nokkrar mínútur til að fá auka stökkleika. Berið fram með hummus og kínóa eða eitt og sér sem aðalrétt eða meðmæti með mat.

Ótrúlega hlýlegt og gott, kvöldmatur þarf ekki að vera flókinn. Ég deildi þessu á snapchatinu mínu um daginn og allir  urðu trylltir. Bættu mér við til að fylgast betur með, snapchat: lifdutilfulls.

IMG_4854

 Ristaðar möndlur með kanil og vanillu

 

1/2 bolli Möndlumr

1/2 bolli kókosflögur

1/2 bolli graskersfræ

1 msk kókosolía

1 tsk kanil

1/2 tsk vanilladuft

Hitið kókosolíu á pönnu. Þegar pannan er orðin heit sameinið möndlur, kókosflögur, fræ og krydd og hrærið með viðarsleif. Lækkið aðeins undir ef pannan er orðin of heit. Steikið í 3-4 mín eða þar til vel sameinað. Slökkvið á hellunni og leyfið að kólna. Geymist vel við stofuhita. Njótið sem millimál eða yfir salat.

Það eru margar sniðugar og einfaldar leiðir til þess að bæta við meiri sætleika í líf okkar, án sykurs.

Ég hlakka til að halda sykurlausa sælkeranámskeiðið næsta föstudag og vonandi sé ég þig þar, ég veit þú verður ekki vonsvikin/nn ef þú mætir.

Ef þér líkaði greinin endilega deildu með vinum!

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *