10kg farin og orkan hefur margfaldast!
6th February 20207 fæðutegundir sem efla ónæmiskerfið
13th March 202010kg farin og orkan hefur margfaldast!
6th February 20207 fæðutegundir sem efla ónæmiskerfið
13th March 2020Þurrburstun er frábær leið til þess að koma blóðflæði líkamans af stað og auka flæði sogæðakerfisins, sem hjálpar að hreinsa burtu óþarfa eiturefni og fitu sem hafa safnast upp í líkamanum. Einnig dregur þurrburstun úr appelsínuhúð.
- Takið þurrbursta eða grófan þvottapoka og standið nakin inná baði. Gott að gera fyrir sturtu. Ekki er mælt með að setja þurrbursta undir vatn í sturtu.
- Burstið húðina með hringlaga hreyfingum í átt að hjarta og þar til húðin er orðin örlítið bleik (hægt að gera á annað hvort þurra eða raka húð).
- Endurtakið yfir allan líkamann og sérstaklega yfir fætur, rass og handleggi.
- þegar þið eruð að bursta líkamann, horfið á líkamann og segið “ég elska þig”. Horfið í spegilinn og segið “ég elska þig” og/eða horfið á þá líkamsparta sem þið eruð ánægð með. Gerið í 2 mín í senn.
Fyrir bestu útkomuna notið þurrburstun þrisvar sinnum í viku (má gera tvisvar sinnum á dag).
Ég vona að þú prófir þessa þurrburstun og að það, hjálpa þér að hugsa fallegra til þín líkama þíns.
Skrifið mér svo endilega í spjallið ef þið prófið og hvað þið viljið sjá meira af á blogginu.
Ekki gleyma svo að deila með vinkonu, sérstaklega þeirri sem gæti þurft á smá sjálfsumhyggju að halda!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!