Einföld og holl millimál til að taka með í ferðalagið
13th June 2017Uppáhalds kókosjógúrtið mitt
21st June 2017Einföld og holl millimál til að taka með í ferðalagið
13th June 2017Uppáhalds kókosjógúrtið mitt
21st June 2017–
Morgunverður er ein af uppáhalds máltíðum mínum og reyni ég alltaf að gefa mér góðan tíma til að borða gott á morgnanna.
Þegar kemur að ferðalalögum eða útilegu finnst mér nauðsynlegt að hafa eitthvað sem er bragðgott og fljótlegt því oft er minni tími og færri valkostir í boði.
Það er svo miklu skemmtilegra að vera vel nærður og er undirbúningur því algjört lykilatriði. Í dag deili ég með þér hollum morgunverðsuppskriftum sem eru tilvaldar í útileguna, fyrir hótelgistinguna eða sumarbústaðinn.
–
Hollur morgunverður til að grípa með í Nettó
–
Þegar þú tekur hollan morgunverð er sniðugt að hafa hringlótt BPA laust plastbox eða glerkrukkur. Það má einnig ferðast með morgunblöndunar hér neðar í litlum plastpokum og reyna að finna kaffibolla úr plasti eða glerílát þegar komið er á áfangastað.
–
Morgunverður tilvalinn fyrir útilegu
Kínóagrautur
Það má nota forsoðið kínóa og borða kalt eða hita örlítið upp með prímus eða heitu vatni. Yfir það má strá hnetublöndu, rúsínum, banana eða bláberjum. Það má nota hafra í staðinn en kínóa er ótrúlega bragðgott og sérstaklega próteinríkt. Yfir má setja möndlu- eða hnetumjólkina. Ég setti saman í graut með kakó, banana og jarðarberjum!
–
Músli og möndlumjólk
Múslíblöndur og möndlumjólk er auðvelt að kaupa og taka með í ferðalagið. Ef þú vilt útbúa þína eigin múslíblöndu er ég með nokkrar í Lifðu til fulls bókinni t.d mínútu múslí og gráfíkju-og kínóa múslí. Hér má sjá myndskeið með nokkrar tegundir af möndlu- og hnetumjólk sem eru án sykurs
–
–
Kókosjógúrt
Ef þú ert með kælitösku getur þú gert heimagerð jógúrt eða chia grauta tilbúna og haft meðferðis þér í ferðalagið. Ég geri þetta oft og tek þá helst kókosjógúrtið með jarðaberjum og banana hér.
–
Hafra- eða bókhveitigrautur
Vinkona mín er sniðug og gerir stóran skammt af morgungraut og ferðast með. Hún blandar þá bókhveiti eða höfrum, hörfræjum og chia saman í skál og fær sér af þessu á hverjum morgni. Þetta er sniðugt í stærra íláti ef þú hefur aðgengi að kæli. Einnig má hafa þetta meðferðis í plastpoka og blanda við vatni þegar á áfangastað er komið.
–
Chiagrautur í ferðalagið
Ég tek alltaf með mér chia, hamp og kakónibbur í poka eða BPA laust tupperware box ef ég er að ferðast. Það þarf þá einfaldlega að viðbæta köldu vatni og hrista. Svo má bæta útí ferskum bláberjum, sneiddum banana (notið það sem þið hafið til að skera). Það sem mér þykir þægilegt við chiagrautinn er að það má alltaf sleppa því að borða þetta ef bjóðast hollir kostir á áfangastaðnum og grauturinn er ávallt kaldur.
Chia fræ eru einnig sérstaklega trefjarík sem bætir meltinguna. Alltaf gott í ferðalagið.
Ef ég er t.d. að gista í bústað þá útbý ég grautinn kvöldið áður og geymi í kæli. Að morgni bæti ég útá hann bláberjum og/eða bananasneiðum. Þetta borðum við hjónin með bestu lyst og fyllumst orku til hádegis.
–
Ofurfæðis-ferðafélaginn
3 msk chiafræ
2 msk hempfræ
1 msk kakónibbur
1 bolli vatn
–
Setjið innihaldsefnin í skál eða krukku og hrærið með skeið. Látið standa í 10 mínútur, hrærið af og til eða látið liggja í bleyti yfir nótt. Setjið bananasneiðar og ber út á og njótið.
–
Morgunverður að þínum hætti:
Blandið eftirfarandi í plastpoka eða krukku og grípið með:
Grunnur (veljið 1-2): Forsoðið kínóa, hafrar, bókhveiti eða bókhveitiflögur, kínóaflögur, múslí
Viðbót: Hnetur, fræ, hamp fræ, chia, kakónibbur, kanil, kókosmjöl/flögur
Eitthvað sætt: Rúsínur, þurrkaðir ávextir, sykurlaus sulta, kakó, banani, fersk bláber, hnetusmjör, epli
–
Blandið ykkar grunn, viðbót og einhverju sætu í plastpoka eða krukku. Þegar þið hafið náð á áfangastað má bæta við köldu eða volgu vatni og njóta!! namm
Lesa einnig:
Einföld og holl millimál til að taka með í ferðalagið
Hollari valkostir fyrir óholla ánægju
5 nýjar hugmyndir að hollum morgunmat
Ég vona að þessar tillögur komi sér vel í sumar!
Láttu vita hvernig blöndu þú færð hugmynd af fyrir ferðalagi í spjallinu að neðan! Alltaf gaman að heyra frá þér.
Ef þér líkaði greinin deildu endilega á Facebook til vina.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!