Fæða fyrir aukna orku og kraft!
lífsstílsþættir
3 lífsstílsþættir fyrir aukna orku (spurningu svarað)
19th November 2013
svefn og heilsa
Þakklæti, svefn og heilsa
3rd December 2013
lífsstílsþættir
3 lífsstílsþættir fyrir aukna orku (spurningu svarað)
19th November 2013
svefn og heilsa
Þakklæti, svefn og heilsa
3rd December 2013
Show all

Fæða fyrir aukna orku og kraft!

 

Spurningin “hvað ætti ég að borða fyrir aukna orku og til að ná upp kröftum?” var sú sem mér barst  fyrir stuttu síðan!

En þar sem fæðan ein og sér er ekki næg fyrir varandi orku sagði ég í síðustu viku frá nokkrum lífsstílsþáttum sem hámarka upptöku réttrar fæðu og skila þér orku og krafti á varandi hátt. Sjá betur hér.

Mismunandi þættir eins og bættur svefn, útrýming eiturefna og rétt bætiefni hafa öll áhrif á orku þína en ákveðnar fæðutegundir geta einnig veitt þér mikilvæga næringu til að auka og viðhalda orku og krafti.Hér koma 3 góðar og hagkvæmar fæðutegundir fyrir aukna orku, sem nær flestum konum líkar við!

 

Möndlur og valhnetur

Hnetur eins og möndlur og valhnetur geta útvegað auka orku. Möndlur og valhnetur ertu ríkar af hollri ómettaðri fitu, sem hjálpar þér að vera södd í lengri tíma. Þær innihalda líka hæfilegt magn af seleníum, E-vítamíni, og ómega-3 fitusýrum, -næringarefni sem hjálpa líkamanum að starfa við sitt besta.

 

Dökkt lífrænt hreint súkkulaði

Þá er ég augljóslega ekki að tala um súkkulaði sem er fullt af viðbættum sykri og mjólk. Því dökkt hreint súkkulaði í sinni upprunalegu mynd er bæði koffín og próteinríkt og ekki skemmir svo fyrir að það bætir vellíðunarhormón og lyftir þannig uppi skapi.

Fáðu þér því dökkt lífrænt súkkulaði (70-85%) eitt og sér eða með góðum heitum drykk. ég kann best við Labokko súkkulaði (sjá hér) en það eru einnig til ótal aðrar girnilegar tegundir!

 

downloadGúrka

Ég verð að játa að ég er mikil aðdáendi gúrku og borða nær 4 heilar á viku og engin þeirra sett í safapressu eða blandara.

Þær eru ríkar af B-vítamíni og góðum kolvetnum sem gefa þér langvarandi orku og heilsusamlegt orku skot um morguninn, seinni part dags, eða að kvöldi til. Frískandi og vatnsríkt!

Þetta eru klárlega mínar 3 uppáhalds fæðutegundir fyrir aukna orku og kraft og neyti ég þeirra nánast daglega.

 

Borðar þú eitthvað af þessum fæðutegundum daglega? Og ef svo er; finnur þú fyrir aukinni orku við þær?

 

Mig langar að heyra frá þér svo deildu með mér í skilaboðunum hér að neðanLíkaðu síðan við og deildu með vinum þínum á facebook!

 

Sé þig í umfjölluninni hér að neðan!

Heilsa og hamingja,

 

Júlía heilsumarkþjálfi

 

 

p.s Vissir þú að áhrifarík hreinsun er ein besta leiðin að meiri orku og krafti? Taktu þekkingu þína á næsta stig og lærðu ókeypis með mér um áhrifaríka hreinsun hér.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *