Kínóa salat í nestisbox
1st February 2013Orkulaus í skammdeginu?…algengar ástæður orkuleysis
9th February 2013Kínóa salat í nestisbox
1st February 2013Orkulaus í skammdeginu?…algengar ástæður orkuleysis
9th February 2013Ég fékk skemmtilegan póst alla leið frá München í síðustu viku, en það var frá Ástu Einarsdóttur. Hún hefur fylgst með fréttabréfum mínum og vildi þakka fyrir uppskriftirnar og upplýsingarnar í gegnum tíðina.
Hún deildi síðan með mér sinni persónulegu útgáfu af Kínóa morgungrautnum sem ég vil endilega koma áfram til ykkar…
Kínóagrautur Ástu:
1dl Kínóa flögur skolað vel (má líka nota hirsi eða kínóa heil fræ)
2dl vatn
1stk. applsína afhýdd og skorin í frekar litla bita
1/2 -1 tsk kanil
50gr lífræn jógúrt
1msk hlynsýropi (má sleppa)
Aðferð:
Kínóa soðið í 5-6 mín , sett í skál og látið standa smá stund . appelsínibitum blandað saman við og kanil stráð yfir. Toppa svo með jógúrtinu.
Smá hlynsýróp og svo skemma nokkrar pistasíur alls ekki fyrir 🙂
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!