
Ljúffengt lambasalat með ofnbökuðu rótargrænmeti
13th October 2026
5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum
26th October 2026
Ljúffengt lambasalat með ofnbökuðu rótargrænmeti
13th October 2026
5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum
26th October 2026Fersk hindber, silkimjúkt krem og ljúffengur súkkulaðibotn með döðlum og valhnetum. Þessi hindberjakaka er algjört lostæti þegar þig langar í eitthvað sætt og ferskt.
Hún er dásamleg í saumaklúbbinn, sem eftirréttur í matarboði eða einfaldlega til að eiga í frystinum og njóta þegar vel liggur á.
Hráefnin eru einföld og kakan er án hvíts sykurs og hveitis. Hún inniheldur heldur engar dýraafurðir og hentar því þeim sem kjósa vegan mataræði.
Það er einfalt að útbúa hana og enginn bakstur þarf til. Mundu bara að leggja kasjúhneturnar í bleyti fyrirfram og gera kökuna daginn áður svo hún nái að stífna í frysti.
Þú getur gert eina fallega köku í smelluformi eða litlar stakar kökur sem er sérstaklega gaman að bera fram í veislum.
Hindberin gefa ferskt og örlítið súrt bragð á móti sæta súkkulaðibotninum og útkoman er silkimjúk, fersk og ótrúlega góð.
–

–
Vegan hindberjaostakaka með súkkulaðibotni
Gefur 16 litlar bollakökur, eða eina köku í 23 cm smelluformi.
Botn:
1 bolli valhnetur
1 bolli döðlur (steinlausar)
2 msk kakó
smá sjávarsalt salt
Krem:
3 bollar kasjúhnetur (lagðar í bleyti í um það bil 1-2 klukkustundir eða yfir nóttu)
1 dós (400 ml) kókosmjólk, notið þykka/fasta hlutann sem sest ofan á (ca. 1 bolli)
1/2 bolli hlynsíróp
1/2 bolli rauðrófusafi (má sleppa, sjá athugasemdir neðst)
1 bolli hindber og aðeins aukalega, fersk eða frosin (ef þið notið frosin er gott að afþýða)
4 msk sítrónusafi
1/2 tsk salt
–
Aðferð
1. Setjið öll hráefnin fyrir botninn í matvinnsluvél og vinnið þar til deig hefur myndast og hráefnin loða vel saman. Þjappið botninum niður í 23 cm smelluform eða skiptið honum á milli 16 bollakökumót. Gott er að nota múffuform undir.
2. Skolið kasjúhneturnar undir hreinu vatni. Setjið þær ásamt kókosmjólk, hlynsírópi, rauðrófusafa, hindberjum, sítrónusafa og salti í öflugan blandara eða matvinnsluvél. Blandið þar til kremið er orðið alveg silkimjúkt.
3. Hellið kreminu yfir botninn í smelluforminu eða skiptið því jafnt á milli litlu botnanna.
4. Skreytið með nokkrum heilum hindberjum ofan á.
5. Frystið yfir nótt eða þar til kremið hefur stífnað alveg.
6. Takið kökuna úr frysti og látið standa við stofuhita í um 10–15 mínútur, eða aðeins lengur eftir þörfum, áður en hún er borin fram.
–
Athugasemdir
Kókosmjólkin sem ég nota er frá Coop og fæst meðal annars í Nettó. Mér finnst áferðin á henni henta sérstaklega vel í þessa uppskrift. Gott er að kæla dósina áður en hún er notuð, ef kostur gefst, svo auðveldara sé að ná þykka hlutanum frá vökvanum.
Rauðrófusafinn gefur kökunni þennan fallega bleika lit. Hægt er að kaupa tilbúinn rauðrófusafa en skoðið innihaldslýsinguna og veljið helst hreinan rauðrófusafa án viðbættra hráefna.
–
Lesa einnig:
Bleikar bollakökur fyrir bleikan október
Bleikar uppskriftir fyrir bleikan október
Rauðrófusafi fyrir bleikan október
–
Einnig er hægt að nota rauðrófuduft í stað safans. Þá má byrja á ½–1 tsk. og bæta við eftir því hversu sterkan bleikan lit þið viljið.
Ef þið eigið hvorki rauðrófusafa né rauðrófuduft er ekkert mál að sleppa því alveg. Kakan verður aðeins ljósari á litinn en alveg jafn ljúffeng.
Ef notuð eru frosin hindber er gott að leyfa þeim að þiðna áður en þau fara í kremið.
–
Ég vona að þú njótir þess að prófa þessa uppskrift jafn mikið og ég. Hún er dásamleg þegar mann langar í eitthvað sætt og ferskt og ekki skemmir fyrir hvað hún er falleg á borði.
Ef þú prófar kökuna, láttu mig endilega vita hvernig þér líkaði í spjallinu hér að neðan.
Ekki gleyma að deila með okkur á samfélagsmiðlum og tagga @lifdutilfulls við elskum að sjá ykkar útfærslur.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



