
Heimagert kanilmúsli stökkt, einfalt og ótrúlega gott
5th October 2026
Hindberjadraumur með súkkulaðibotni
19th October 2026
Heimagert kanilmúsli stökkt, einfalt og ótrúlega gott
5th October 2026
Hindberjadraumur með súkkulaðibotni
19th October 2026Ég get varla talið þau skipti sem ég hef gert mér þetta ljúffenga salat með lambi og rótargrænmeti.
Það er einhvern veginn fullkomið. Ferskt, einfalt, næringarríkt og skilur líkaman eftir í algjörri vellíðan.
Mataræðið mitt hefur aðeins breyst með árunum. Áður borðaði ég að mestu grænmetisfæði og forðaðist mjólkurvörur því mér fannst ég ekki þola þær vel. Í dag nýt ég þess að hafa bæði íslenskt lambakjöt og smjör á matseðlinum. Smjör yfir heitt lambið er eitt að því sem gerir þessa uppskrift einstaklega góða að mínu mati.
–
–
Lesa einnig:
Holl Grillsósa
Fyllt sæt kartafla með hvítlaukssóu
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
–
–
–
–

–
Lambasalatið
1-2 bitar lambafillet
Salt og pipar
Fersk tímían, val
Rótargrænmetið (sjá hér)
Handfylli ferskt dökkt salat eins og íslenskt grænkál, klettasalat eða spínat
½ Gúrka
1 Tómatur
Grískur fetakubbur skorin
Íslenskt smjör eftir smekk
–
Aðferð
1. Hitið ofninn við 180°C. Takið kjöt úr kæli á meðan þú undirbýrð rótargrænmetið.
2. Skerðu rótargrænmetið samkvæmt leiðbeiningunum hér og setjið í ofninn. Munið að hræra í því af og til svo það bakist og karamellist jafnt. Kryddið lambið vel á báðum hliðum með salti og pipar. Takið blöðin af tímíangreinunum og dreifið yfir kjötið.
3. Hitið útigrillið vel og leggið lambið fyrst á grillið með fituhliðina niður. Snúið kjötinu reglulega þegar það byrjar að brúnast og eldið þar til það hefur náð þeirri eldun sem þið kjósið. Ef notaður er kjöthitamælir má miða við 58–60°C kjarnhita fyrir bleikt lambakjöt. Takið kjötið af grillinu og látið það hvíla í um 10 mínútur áður en það er skorið. Sjá einnig athugasemdir hér að neðan ef þið viljið frekar elda lambið á pönnu og í ofni.
4. Á meðan kjötið eldast, setjið salatið á disk. Skerið gúrku og tómat niður og hafið tilbúið til hliðar.
5. Þegar lambið hefur fengið að hvíla, skerið það í þunnar sneiðar og setjið örlítið af íslensku smjöri yfir á meðan kjötið er enn heitt.
6. Setjið síðan salatið saman. Dreifið rótargrænmetinu yfir salatblöðin, bætið við fetaosti, lambinu með smjörinu, gúrku og tómat. Að lokum má toppa með nokkrum pekanhnetum eða valhnetum fyrir smá extra kröns.
–
–
Athugasemdir:
Ég er mjög hrifin af grískum fetaosti í kubbi og vel hann gjarnan frekar en fetaost sem kemur tilbúinn í olíu. Þannig get ég sjálf valið hvaða olíu eða fitu ég nota með salatinu.
Ef þú vilt elda lambið á pönnu og í ofni:
Bræðið vel af smjöri á pönnu og hitið pönnuna vel. Leggið lambið fyrst á pönnuna með fituhliðina niður og brúnið vel.
Snúið kjötinu og brúnið á öllum hliðum. Ausið brædda smjörinu af pönnunni reglulega yfir kjötið á meðan. Þannig fær lambið fallega og bragðgóða skorpu.
Setjið lambið síðan inn í 160°C heitan ofn með kjarnhitamæli í miðju kjötsins. Eldið þar til kjarnhitinn nær um 58–60°C. Takið þá kjötið úr ofninum og látið það hvíla í um 10 mínútur áður en það er skorið.
–
Hver er þín uppáhalds leið til að matreiða lambakjöt? Deildu henni endilega með okkur í spjallinu hér að neðan.
Og ef þú prófar uppskriftina, mundu að tagga @lifdutilfulls á samfélagsmiðlum við elskum að sjá ykkar útfærslur!

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



