
6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið
14th September 2026
Ljúffengt lambasalat með ofnbökuðu rótargrænmeti
13th October 2026
6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið
14th September 2026
Ljúffengt lambasalat með ofnbökuðu rótargrænmeti
13th October 2026Það er fátt betra en að eiga krukku af heimagerðu múslí tilbúna í skápnum sérstaklega þegar það er stökkt, örlítið sætt og með dásamlegu kanilbragði.
Þetta kanilmúslí er ein af þessum einföldu uppskriftum sem er gott að eiga til. Mér finnst það dásamlegt út á jógúrt eða skyr, með berjum og smá hnetusmjöri. Svo er það líka hættulega gott þegar mig langar í eitthvað stökkt.
Kanillinn gefur múslíinu ekki bara yndislegt bragð heldur inniheldur hann einnig ýmis plöntuefni með andoxunarvirkni. Kanill hefur lengi verið notaður bæði í matargerð og hefðbundnum lækningum og rannsóknir hafa meðal annars skoðað möguleg áhrif hans á blóðsykur og blóðfitur.
Einn stærsti kosturinn við að gera múslíið sjálf er að þú veist nákvæmlega hvað fer í það. Þú getur líka auðveldlega lagað uppskriftina að þínum smekk og því sem þú átt hverju sinni.
–

—
Heimagert múslí með kanil og möndlum
Þurrefni
1⁄4 bollar hafrar eða glútenlausir hafrar
1⁄2 bolli kókosflögur
1⁄2 bolli möndlur skornar smátt
1⁄2 bolli apríkósur og/eða rúsínur
1 tsk kanill eða meira
Blautefni
3 msk hunang
1⁄4 bolli + 2 msk kókosolía, brædd í vatnsbaði
1-2 vanilludropar
–
Aðferð
1. Hitið ofninn í 180°C. Ef þið eigið þurrkofn er einnig hægt að nota hann.
2. Blandið þurrefnunum saman í stórri skál.
3. Hrærið því næst blautefnunum saman í minni skál en skiljið 2 msk. af kókosolíunni eftir. Hellið blautefnunum yfir þurrefnin og blandið vel saman með trésleif þar til öll blandan er orðin vel húðuð.
4. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið múslíblöndunni jafnt yfir. Dreypið síðustu 2 msk. af kókosolíunni yfir og hrærið örlítið í blöndunni.
5. Bakið í um 30 mínútur eða þar til múslíið er orðið fallega gyllt og stökkt. Gott er að hræra einu sinni til tvisvar á meðan svo það bakist jafnt.
6. Ef þið viljið hafa múslíið extra stökkt má slökkva á ofninum og leyfa því að standa þar í 1–2 klukkustundir. Hafið þó í huga að múslíið verður stökkara þegar það kólnar.
7. Ef þið notið þurrkofn er múslíið þurrkað í um sólarhring og hrært í því 2–3 sinnum á meðan, eða þar til það er orðið alveg þurrt og stökkt.
–
Lesa einnig:
Berjabúst fyrir breytingaskeiðið
Orkugefandi hnetusmjörsþeytingur sem vinnur á sykurþörf
Himneskur Mangó Lassi drykkur
–
Athugasemd
Leyfið múslíinu að kólna alveg áður en það fer í krukku. Þannig helst það stökkt lengur. Geymið það síðan í hreinni, loftþéttri glerkrukku.
Þú getur líka leikið þér með uppskriftina eftir því hvað þú átt til – til dæmis skipt möndlunum út fyrir pekanhnetur eða valhnetur, bætt við fræjum eða notað aðra þurrkaða ávexti.
Mér finnst það sérstaklega gott með grískri jógúrt eða skyri, ferskum berjum og smá hnetusmjöri.
–
Ef þú prófar uppskriftina þætti mér ótrúlega gaman að heyra hvernig þér líkar! Deildu endilega með mér í spjallinu hér að neðan hvað þú setur helst út á múslíið þitt.
Ef þú deilir mynd á samfélagsmiðlum, mundu að tagga @lifdutilfulls við elskum að sjá ykkar útfærslur.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



