5 jurtir sem auka orku
andoxunarefni
Te eða kaffi?
2nd June 2015
sleppa sykri
Gefstu alltaf upp þegar þú ætlar að sleppa sykri? Lestu þá þetta…
23rd June 2015
andoxunarefni
Te eða kaffi?
2nd June 2015
sleppa sykri
Gefstu alltaf upp þegar þú ætlar að sleppa sykri? Lestu þá þetta…
23rd June 2015
Show all

5 jurtir sem auka orku

Bíkini og útivistatíminn er í nánd! Ertu klár…

uuhh nei takk,

Ég veit þessi tilhugsun gæti verið ögn ógnvekjandi fyrir suma. Fylgstu því með í næstu viku þar sem við erum rétt að fara hefja okkar fjórðu sykurlausa áskorun með enn flottari hætti en áður (þú vilt ekki missa af þessu).

Þangað til ætlum við að heyra frá Ásdísi Grasalækni þar sem hún deilir með okkur alveg hreint mögnuðum 5 jurtum sem gefa okkur orku í sumar og styðja meira að segja við þyngdartap og temja sykurlöngun!

 

1. Síberíu ginseng

Þessi magnaða jurt dregur úr þreytu, eykur getu líkamans til að takast á við stress, styrkir nýrnahettur og styður við ýmsa hormónaframleiðslu í líkamanum. Ein rannsókn sýndi fram á að Síberíu ginseng jók hæfni líkamans til að standast líkamlegt og andlegt álag.

Síberíu ginseng er upphaflega komin frá Rússlandi og hefur verið notað þar í landi til að auka mótstöðu gegn líkamlegri og andlegri streitu, auka orku, koma jafnvægi á hormónakerfi og auka langlífi. Athugið að Síberíu ginseng hefur ekki nákvæmlega sömu virkni og aðrar ginseng tegundir eins og Korean ginseng og Rautt eðal ginseng en flestir virðast þola betur Síberíu ginseng en hún er ekki sterk örvandi heldur meira uppbyggjandi fyrir orkuna til lengri tíma. Ekki er Síberíu ginseng æskileg fyrir fólk með háþrýsting.

 

2. Lakkrísrót

Hér er að sjálfsögðu átt við hreina lakkrísrót en hún hefur lengi verið notuð til að auka orku og er fjölvirk jurt sem einnig er bólgueyðandi, mild hægðalosandi, græðandi fyrir slímhúð í meltingarvegi og hálsi. Hún styrkir útkeyrðar og þreyttar nýrnahettur og hefur þannig áhrif á orku en nýrnahetturnar eru streitulíffærin okkar og framleiða m.a. hormónin adrenalín og kortisól sem hvoru tveggja hafa áhrif á orku og úthald.

Lakkrísrótin inniheldur efni sem heitir glycyrrhizin sem ýtir undir náttúrulega framleiðslu á kortisóli en algengt er að eftir langvarandi álag eigi líkaminn erfitt með að viðhalda eðlilegu magni af kortisóli. Lakkrísrótin dregur einnig úr löngun í sætindi en hún inniheldur virk efni sem eru í eðli sínu sæt á bragðið og geta fullnægt sætindaþörf.

Hafa ber í huga við inntöku á lakkrísrót að hún er ekki æskileg til inntöku fyrir fólk með háþrýsting, nýrnasjúkdóma, ófrískar konur og samhliða bólguhamlandi steralyfjum eða öðrum sterkum lyfjum. Ekki skal nota hana lengur en 8-12 vikur í senn, hvíla í nokkrar vikur/mánuði og byrja aftur ef þörf er á.

 

3. Maca rót

Maca-powder-and-root

 

Maca rótin er í raun eins og grænmetisrófa sem vex í Andes fjöllunum í Perú. Hún hefur verið notuð til lækninga frá örófi alda þar í landi og þá einna helst gegn blóðleysi, ófrjósemi, skertri kynhvöt, breytingaskeiði kvenna og gegn veiku ónæmiskerfi. Hún er líka gagnleg gegn síþreytu, litlu úthaldi og kraftleysi.

Það er gott að nota 1 tsk-1 msk af maca dufti í boosta, grauta, kökur og bakstur.

 

4. Ashwagandha

Oftast kölluð ‘indverka gingsenið’ en Ashwagandha er mögnuð orkugefandi jurt sem hefur verið í sviðljósinu undanfarið og margar rannsóknir verið gerðar á henni síðustu ár. Hún inniheldur fjölda virkra plöntuefna ásamt amínósýrum, fitusýrum og fjölsykrum sem eiga þátt í kröftugri virkni hennar.

Ashwagandha er gjarnan notuð gegn streitu, kvíða, vægri depurð og orkuleysi. Hún er talin hafa bólgueyðandi áhrif, aukandi áhrif á kynhvöt, ónæmisstyrkjandi áhrif og jákvæð áhrif á blóðsykur. Gott er að taka hana inn í duftformi eða hylkjum.

 

5. Þari

 

images

 

Algeng orsök þreytu er vanvirkur skjaldkirtill. Þari er joðríkur en skjaldkirtillinn þarf joð til þess að framleiða sín hormón ásamt öðrum efnum. Þarinn er því mikilvægur fyrir starfssemi skjaldkirtils en skjaldkirtillinn stýrir m.a. orkunýtingu í hvatberum frumna og efnaskiptum og hefur þannig mikil áhrif á orkuna.

Einnig inniheldur þari fjölmörg önnur vítamín, steinefni og snefilefni sem öll aðstoða við orkumyndun með einum eða öðrum hætti. Hægt er að nota ýmsar tegundir þara en sjálf nota ég gjarnan beltisþara (e. sugarkelp) og söl sem snakk milli mála eða út í boosta eða súpur þegar við á. Neyta skal þara í hófi ef viðkomandi er á skjaldkirtilslyfjum eða ef skjaldkirtill er ofvirkur.

 

Nú viljum við heyra frá þér!

Hvað gerir þú til að auka orku? Hvað af þessum jurtum höfða mest til þín?

Deildu með í spjallinu að neðan

Settu síðan þumalputtann upp og deildu á facebook ef þér fannst hún fróðleg

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Anna Guðjónsdóttir says:

    Hvar fær maður þessar gæða orkugjafa í heilsubúðum eða hvað

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *