Röng tímasetning og uggandi að þetta sé eitthvað fyrir þig?
20th October 2015Komdu þér framúr með þessari morgunrútínu…
10th November 2015Röng tímasetning og uggandi að þetta sé eitthvað fyrir þig?
20th October 2015Komdu þér framúr með þessari morgunrútínu…
10th November 2015Þegar við konur nálgumst miðjan aldur, á hlutfall fitu í líkamanum það til að aukast (því miður meira en á körlum) og fitugeymslan fer að færast á efri hluta líkamans í stað mjaðma og læra, eða um bumbuna. Jafnvel þótt þú þyngist í raun ekki, þá getur mittislínan stækkað um nokkra sentímetra þar sem iðrafita (í kringum líffærin) þrýstir á kviðarvegginn.
Iðrafita er bendluð við fjöldann allan af langvarandi sjúkdómum og þar á meðal hjarta- og æða sjúkdóma, astma, brjóstakrabbamein, og heilabilun.
En það eru leiðir sem þú getur farið til að minnka samansöfnun af iðrafitu. Góðu fréttirnar eru að hún umbrotnar betur í fitusýrur en fita sem leggst á mjaðmir eða lærin.
Með öðrum orðum; þá er auðveldara að losa um kviðfituna en fituna sem sest að mjöðmum og lærum.
Leiðin til að losna varanlega við iðrafitu, brenna burt bumbuna og kveðja hana fyrir fullt og allt eru skref-fyrir-skref lífsstílsbreytingar í m.a mataræði og hreyfingu.
Samhliða lífsstílsbreytingum eru nokkrar fæðutegundir sem vinna sérstaklega með því að losna við bumbuna svo þú getir upplifað mjórra mitti og bætta meltingu.
1. Chia fræ
Þessi næringarríku litlu fræ eru frábær í að stuðla að eðlilegu þyngdartapi, þar sem þau jafna blóðsykur, eru trefjarík og endurbæta insúlínviðkvæmni. Insúlín eru ein aðal fitugeymslu hormón líkamans, og að endurbæta insúlín viðkvæmnina getur minnkað magn insúlíns sem berst út í blóðstreymið, sem getur þá minnkað fituna. Chia er einnig ríkt af Omega-3 fitusýrum, próteinrík og hjálpa að draga úr sykurlöngun.
Prófaðu nokkrar matskeiðar af chia í möndlumjólk ásamt smá vanillu og stevíu fyrir gómsætan og seðjandi drykk eða bættu chia fræjum útí boozt drykkinn.
2. Cayenne
Cayenne pipar eykur hitaframleiðslu líkamans og inniheldur capsaicin, sem rannsóknir hafa sýnt að brenni fitu á maga.
Cayenne pipar er frábær til að bragðbæta flest allan mat eins og kjötrétti, fiskirétti, kínóa, grænmetisrétti, súpuna eða booztin. Passaðu þig þó að missa ekki Cayenne staupinn því lítið af honum fer langa leið.
3. Kanill
Kanill dregur úr blóðsykri, minnkar slæma kólesterólið í blóðinu, er andoxunarríkt og getur unnið gegn sveppasýkingum og bakteríumyndun í líkamanum, einnig er kanilinn þekktur fyrir að draga úr bólgum í líkamanum.
Þrátt fyrir að kanilinn mun ekki auka fitubrennslu getur hann hjálpað þér að brenna fitu sem safnast við kvið. Kanilinn getur einnig bætt insúlin viðkvæmni líkt og chia fræin gera sem styður við minni fitusöfnum.
Kanil er góður útá grænmetisrétti, á hafragraut, í boozt drykkinn og einnig fást te með kanil víða og sérstaklega núna þegar nær dregur jólum.
4. Heilir hafrar
Hafrarnir í sinni náttúrulegu mynd – sannir grófir hafrar. Rannsóknir sýna að borða hafra getur hjálpað til við að léttast. Hafrana er auðvelt að melta, þeir eru ekki líklegir til að valda uppþembdum maga. Leggðu þá í bleyti yfir nótt, hreinsaðu, bættu við vatni, steviu og smá kanil fyrir hollan hafragraut. Eldaðu Heila hafra í potti eins og þú myndir gera venjulega hafra en í 30 mín. Sjálfsagt má bæta við chia fræjum útá líka og jafnvel hnífsoddi af kanil.
5. Grænt te
Eins og við komum inná í greininni hér þá getur grænt te hvatt til oxunar á fitu sem hefur áhrif á brennsluna, grænt te er andoxunarríkt og getur lækkað kólesteról og stutt við ónæmiskerfið. Í grænu te er einnig efnið ECGC (e. epigallocatechin gallate), en það er andoxunarefni sem styður við hjarta- og taugakerfið og getur minnkað líkur á heilablóðfalli.
Grænt te getur einnig hjálpað að stjórna matarlist og matarskömmtum.
Fleiri rannsóknir á grænu te sýna að stór hluti fitubrennslu sé við kviðinn.
Gott er að drekka ekki nema 1-2 te bolla af grænu te á dag.
Hvað af þessum 5 fæðutegundum notar þú reglulega? Hver þeirra viltu bæta í mataræðið til að minnka fitu um magamálið?
Skrifaðu mér í spjallið að neðan…
Líkaðu svo við á facebook og deildu með vinum þínum fyrir léttari jól.
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
12 Comments
Takk fyrir alla hjalp. Eg drekk halft glas af vatni med halfri msk af chiafraeum a hverjum
Morgni. Eg gef lika gamla folkinu sem eg se um chiafrae. Eg se storan mun a theim.
Kaer kvedja Ragna
Frábært að heyra Ragna 😉
Sæl Eg tek chiafræ & hafra er farinn að finna mun á mér hef prufað kanill út í boozt og mér líkar það vel.? Er í kaffinu og langar að breita því og drekka meira grænt te er komin niður í 2 Bolla á dag í kaffinu ?
Frábært að heyra Stefanía, já prófaðu þá endilega að skipta út einum bolla af kaffi og bæta við grænu te í staðinn. Passa samt að drekka ekki of mikið af grænu te, þar sem það er jú örvandi líka, bara finna jafnvægið.
Takk fyrir þessi ráð, ég nota alltaf kannil útá hafragrautinn og hann elda ég úr grófu haframjöli. Einnig nota ég grófa hafra útá ab-mjólk og bæti þá útá chiafræjunu. Drænt te er ég svo að taka í töfluformi og einstaka sinnum fæ ég mér líka bolla af því.
kv Svana
Flott Svanlaug! Okkar er ánægjan 🙂
ertu að meina að þú notir Coyanne pipar til að krydda mat eða viltu fara bæta honum út í eitthvað annað daglega?
annars vil ég bæta lýsinu við listan, mér finnst það allra meina bót!
kv ig
Sæl Ingibjörg, já í mat t.d, sumir setja aðeins í vatnið sitt á morgnanna ásamt sítrónu. Alveg eins og þú kýst.
Er bara búin að vera í 3 daga í matarhreinsun. Maturinn er góður og búin að prófa allar nammiuppskriftirnar nammi namm. En er orðin dálítið þreitt.
Sæl Sigríður, gaman að heyra að þú sért ánægð, það er alveg eðlilegt að vera aðeins þreytt en líkaminn er að hreinsa sig. Leyfðu þér að slaka á og taka því rólega næstu daga ef þú getur. Orkan ætti að fara aukast 🙂 Gangi þér vel
Er farin að nýta mér þetta góðgæti sérstaklega í boostið. Nota einnig engi fer er það ekki ílagi og svolítið af svörtum pipar ? Kv Guðlaug
Sæl Guðlaug, jú það hljómar bara mjög vel, frábært að heyra 🙂