Nýtt ár og nýtt fjarnámskeið!
gómsæt uppskrift
Heilræði og gómsæt uppskrift
17th December 2013
fitusöfnun
Því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnunin hverju sinni!
21st January 2014
gómsæt uppskrift
Heilræði og gómsæt uppskrift
17th December 2013
fitusöfnun
Því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnunin hverju sinni!
21st January 2014
Show all

Nýtt ár og nýtt fjarnámskeið!

Gleðilegt Nýtt ár !!

Já það er vissulega komið nýtt ár og í gær kvöddum við jólin til fulls og getum tekið við því nýja sem árið hefur upp á að bjóða!

Fyrir mitt leyti lít ég spennt á árið 2014, ég veit ekki hvað mér býðst en ég sé aðeins bjarta hluti framundan!

Þar sem við fáum það sem við setjum hug okkar á hvet ég þig til þess að vera jákvæð, vænta þess góða og búa þig undir stóra hluti þetta árið!

Líttu því á 2014 sem árið þar sem þú…

…sækir ekki aftur í skyndilausnir eða megrunarkúra, heldur árið sem þú nærð heilbrigðum lífsstíl!
…gefst ekki upp heldur léttist og heldur þér þar!
…nærð að sigrast á sykurpúkanum án þess að líða fyrir það!
…nærð að koma hreyfingu og mataræði í góða rútínu og skipulag!
…finnur virkilega fyrir aukinni orku á hverjum degi!
…nærð jafnvægi á hormónin og útrýmir svitaköstum og þess hátta kvillum!
…færð að finna fyrir vellíðan í líkama þínum í stað liðaverkja og þreytu!
…bætir lífsgæði þín og gerir meira af því sem gefur þér gleði!

Þú gætir verið að ranghvolfa augunum að mér núna en ég vil segja þér að þú getur vel öðlast þetta allt saman og það á þessu ári!

OG mig langar að segja þér frá svolitlu leyndó (jæja kannski ekki alveg leyndó þar sem ég sendi þetta til þín og vel yfir 1000 annarra kvenna, en allavega mjög spennó 🙂

Þetta er ókeypis fjarnámskeið núna í janúar þar sem ég mun deila með þér nákvæmlega þeim skrefum sem konur hjá Lifðu til Fulls hafa tekið og notað til að léttast um 7-17 kg, margfalda orku sína og finna fyrir vellíðan í líkama og sál…og ekki bara í stuttan tíma heldur alla daga, alltaf!

Þetta er engin skyndilausn, töfrakúr eða megrun, bara svo þú vitir… því skrefin eru þau þrep sem konur og karlar hafa tekið á 6 mánaða tímabili og á fjarnámskeiðinu færð þú hollráð og fræðslu frá hverju einasta skrefi (5 skref talsins) sem þú getur notað til þess að setja náttúrulegt þyngdartap, meiri orku og vellíðan strax í framkvæmd og forgang í þínu daglega lífi! 

Og það besta er, að ég vil segja þér frá þessu ókeypis!

Þú vilt ekki missa af þessu! Tryggðu þér pláss strax;

https://lifdutilfulls.is/fjarnamskeid/

Ég hef beðið spennt eftir að segja þér frá þessu fjarnámskeiði, þú verður ekki svikin.

Hlakka til að ‘sjá’ þig 23.janúar!!

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

p.s Fjarnámskeið hjá mér fyllast nokkuð hratt, og í þetta sinn takmörkum við aðgang svo ekki bíða með að skrá þig fimmtudaginn 23.janúar heldur tryggðu þér stað strax =https://lifdutilfulls.is/fjarnamskeid/

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *