Vinsælustu bloggin 2023
13th June 2024Kvöldrútína fyrir betri svefn
26th August 2024Vinsælustu bloggin 2023
13th June 2024Kvöldrútína fyrir betri svefn
26th August 2024Aukakíló, bjúgur og hægðatregða eru oft tíðir fylgifiskar sumarsins. Vissir þú að meltingargerlar gætu mögulega leyst þann vanda ?
Vegna þess að rótina má oftast rekja til of mikillar neyslu á sykri og salti eða fæðuóþols. Slíkt veldur álagi á meltinguna sem þar af leiðandi veldur meltingaróþægindum líkt og hægðatregðu, bjúg og aukakílóum.
Því er þó oftast hægt að koma í betra horf með réttum meltingargerlum.
Hvað eru meltingargerlar?
Meltingargerlar (probiotics) eru lifandi góðgerlar sem bæta eða koma jafnvægi á meltingarflóruna. Þeir finnast í gerjaðri fæðu sem og inntöku á litlum töflum. Probiotic er góði gerlagróðurinn sem heldur til í allri þarmaflórunni. Þrátt fyrir að orðið baktería eða gerill sé venjulega tengdur sýklum og veikindum þá aðstoðar þessi líkamann að viðhalda heilsunni og berjast gegn veikindum og sjúkdómum.
Af hverju að nota meltingargerla?
Rannsóknir staðfesta hvað eftir annað mikla þörf á góðum góðgerlum fyrir alhliða heilsu, betra ónæmiskerfi, bætta upptöku næringarefna og sterkara ónæmiskerfi. Það mætti því segja að heilbrigð melting sé grunnur að heilbrigðum líkama.
–
–
Hvernig gerla á að nota?
Það eru til mismunandi meltingargerlar sem þjóna mismunandi tilgangi en eiga það sameiginlegt að styrkja undirstöðuna að góðri heilsu og vellíðan. Hér eru nokkrir sem mér sjálfri finnst ómissandi að taka reglulega.
Acidophilus
Meltingargerlar eins og acidophilus stuðla að heilbrigðri starfsemi meltingarfæranna. Við laktósaóþoli er líka gott að taka acidophilus/laktasa töflur (sem brjóta niður laktósa) áður en mjólkurvara er neytt. Acidophilus er einnig mikilvæg hjálp við flestum kvillum í meltingarfærum og stór hluti af meðferð gegn sveppasýkingum. Þessir gerlar sinna mikilvægu hlutverki og hjálpa til við að byggja upp heilbrigða og vel starfandi meltingaflóru.
Acidophilus fæst m.a. frá; Terranova eða Optibac.
Lactobacillus
Lactobacillus eru sérstaklega góðir fyrir konur. Fleiri en 20 tegundir lactobacillus fyrirfinnast í leggöngum kvenna í heilbrigðu ástandi. Röskun á þessu jafnvægi, eða skortur á góðu gerlunum, getur skapað ofvöxt óæskilegra baktería eða sveppa. Margar rannsóknir hafa sýnt að það að taka inn Lactobacillus getur skilað sér í minni sveppasýkingum og bakteríum, betra sýrustigi í leggöngum sem og betri alhliða heilsu kvenna í gegnum bætta meltingu. Lactobacillus getur einnig minnkað þembu og losað vind úr meltingunni.
Lactobacillus fæst frá Mercola og Optibac.
Lesa einnig:
Bestu bætiefnin eftir fertugt (uppfært)
Mikilvægi D-vítamíns fyrir andlega og líkamlega heilsu
5 ráð fyrir konur sem vilja fasta
Góðgerlar unnir úr jurtum
Jurtir eins og ætiþistill, maríuþistill, títa (boldo), túnfífill og fjallagrös geta bætt meltinguna. Lakkrísrót og regnálmur eru græðandi og góðar við magabólgum. Til að úr verði góðgerlar úr jurtum eru þær eru gerjaðar, við gerjunina margfaldast gerlafjöldinn. Svona gerlar næra og styrkja þarmaflóruna og eru frábærir gegn bólgum og bjúg. Ég mæli hiklaust með því fyrir alla að prófa gerla úr jurtum.
Ég mæli með t.d. meltingargerlum frá Terra nova. Fæst í heilsuhúsinu.
Hvaða tíma dags og hversu mikið á maður að taka?
Meltingargerla er að gott að taka inn á fastandi maga á morgnana eða fyrir svefn. Lykilregla sem skal hafa í huga við notkun á meltingargerlum er að rótera þeim reglulega. Taka þá eina tegund í mánuð og svo aðra næsta mánuðinn. Fyrir extra búst fyrir meltinguna eða fyrir þá sem þurfa að vinna á bólgum og bjúg má taka tvær til þrjár tegundir í einu.
Ég á sjálf alltaf til nokkrar týpur sem ég rótera á milli. Gamall kennari minn líkti inntöku meltingargerla við að kasta títuprjóni í tóman brunn – þú getur aldrei tekið of mikið. Ég vísa oft í þessa góðu myndlíkingu.
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!