Hver er munurinn á fæðuofnæmi og fæðuóþoli?
29th January 2013Kínóa salat í nestisbox
1st February 2013Hver er munurinn á fæðuofnæmi og fæðuóþoli?
29th January 2013Kínóa salat í nestisbox
1st February 2013Chia grautur
1/2 bolli Chia fræ
2 bollar vatn
1 1/2 bolli kókosmjöl
2 matskeiðar af hráu hunangi eða hunangi
Oft sniðugt að bæta við uppáhalds berjum þínum.
Blandaðu í stóra skál Chia fræjunum við vatnið og hrærðu. Láttu liggja í c.a 5 mín eða þar til vatnið er orðið gelkennt. Bættu þá kókosmjölinu saman við hunangi.
Mér finnst gott að toppa með bláberjum, kókosflögum og kanil
Þessi Chia grautur hjálpar þér í annríki dagsins með því að gefa þér aukna orku og úthald. Þú getur fengið þér grautinn á morgnana eða síðdegis og einnig getur verið hentugt að útbúa þessa uppskrift og geyma í ísskáp í lokuðu boxi svo grauturinn sé tilbúinn þegar þér hentar. Chia grauturinn geymist vel í kæli í allt upp að viku.
Lestu meira um Chia fræjinn hér!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
2 Comments
Hvernig kókosmjöl notarðu?
Hvaða lífræna kókósmjöl sem er, ég veit að homnesk hollusta er með svoleiðis 🙂