Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís
11th December 2018Svona lítur hreinsunardagur út
7th January 2019Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís
11th December 2018Svona lítur hreinsunardagur út
7th January 2019
Ég á afmæli í dag!
Í tilefni þess deili ég með þér uppáhaldi mínu þessa dagana og jafnframt því sem ég mun fá mér á jólunum.
Himnesk blómkálssteik með kókosrjómasósu og brakandi ferskum granateplum.
Steikin er öðruvísi en þú sérð á mörgum heimilum og vá hvað hún er góð!
Eftir ferðalög til Ísrael og Grikklands þarsíðasta sumar varð ég heltekin af kryddum Miðjarðarhafsins og matarhefðum Líbana. Jólin mín í ár verða því innblásin þaðan.
Ég verð nú að segja að í ferðalaginu varð ég ekkert síður heltekin af indverskri matargerð og kom ég heim með tösku fulla af indverskum klæðnaði, kryddum og borðskálum sem má sjá hér á Instagram síðu minni, en indversk jól bíða víst betri tíma.
Ég held þú verðir hrifin/nn af steikinni, enda er hún
- Stökk að utan
- Silkimjúk að innan
- Vegleg
- Seðjandi
- Ótrúlega holl
- Frískandi þegar hún er borin fram með kókosrjómasósu og granateplum
Fullkomnari hátíðarsteik gerist það ekki að mínu mati.
Blómkálssteikin eldast eins og hefðbundar steikur, hún er krydduð og sett í eldfast mót í c.a. klst og borin fram með sósu. Afar einfalt og þægilegt.
Ef þú eldar hana í heilu lagi eins og ég geri mæli ég með að velja litla og krúttlega blómkálshausa eða skera blómkálið í tvennt eða þrennt og krydda. Þannig grípur blómkálið kryddin enn betur í sig.
Uppskriftin er innblásin af blómkáli sem má finna á einum uppáhalds veitingstað mínum hérlendis, Sumac. Þar er blómkálið snilldarlega borið fram og mæli ég eindregið með veitingastaðnum fyrir þá sem hafa ekki prófað.
Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum
Bakað blómkál
1 blómkálshaus
1 msk ólífuolía eða 1 msk vegan smjör brætt
1 tsk sítrónusafi
1 tsk hlynsróp
Kryddblanda
1 tsk salt
½ tsk malað kúmen
½ tsk kóríander
kardimommuduft á hnífsoddi
múskat á hnífsoddi
Sósa
3/4 bolli kókosmjólk úr dós (eða notið Nush möndluost eða Nush kasjúhnetujógúrt án bragða sem fæst t.d í Nettó fyrir örlítið þykkari sósu)
1 msk hvítt tahini
örlítið af sítrónubörk
örlítill sítrónusafi
salt og pipar eftir smekk
Til skreytingar: Granatepli, möndluflögur, sítrónubörkur, fersk steinselja.
1. Hitið ofninn við 190°C.
2. Fjarlægið lauf blómkálsins og skerið stilkinn í burtu þannig að blómkálið geti staðið upprétt. Fyrir enn sterkara bragð má skera blómkálið í 2-4 hluta (fer eftir stærð blómkáls) og tvöfalda magn kryddblöndunar.
3. Setjið blómkálið í eldfast mót, hrærið kryddblönduna saman í skál og penslið yfir. Hyljið mótið með loki eða álpappír og eldið í 40-50 mín ef þið eldið heilt blómkál eða 20-30 mín ef þið skerið blómkálið. Eldið aðeins þar til miðja blómkálsins er orðin mjúk og hægt er að stinga hníf í gegn. Þá er álpappírinn tekinn af og blómkálið eldað í 5-10 mín til viðbótar eða þar til gyllt og örlítið stökkt að utan.
4. Útbúið á meðan sósuna með því að blanda öllu saman í skál eða blandara. Geymið í kæli.
5. Berið blómkálið fram með sósunni, granateplum, ristuðum möndluflögum, sítrónubörk og ferskri steinselju. Frábær jólasteik eða sem meðlæti.
Ég vona að þú prófir, láttu endilega vita hvernig smakkast í athugasemdum hér neðar og taggaðu mig á @lifdutilfulls á Instagram, mér finnst mjög gaman að sjá ykkar myndir!
Ekki gleyma að deila á Facebook!
Ég er afar þakklát fyrir að fá að skrifa til þín og þakka fyrir samfylgdina á liðnu ári.
Óskum við þér gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
2 Comments
Mig langar að gera mína útgáfu af þessari uppskrift. Skiptir miklu ef ég sleppi hlynsýrópinu fyrir lokaútkomuna nota enga sætu nema þá ávexti ? Hvað á ég að miða við mikið af granateplum fyrir einn skammt af uppskriftinni?Eins get ég ekki notað tahini á ég að nota annað í staðin eða get ég sleppt því?
Sæl Berglind! Það má alveg sleppa hlynsírópi ef þú vilt, bragðið verður ekki alveg það sama þó. Þú getur líka alveg sleppt tahini og notað eingöngu kókosmjólk í dós sem er uppgefin. 🙂 Ég notaði bara granateplin eins og mér þótti nægilegt og þú getur alveg breytt til eftir þörfum hvað varðar skammtinn, það má líka sleppa þeim eða nota smátt skorin fersk jarðaber í staðinn.