6 einfaldir hlutir sem slá á sykurþörfina strax!
4th August 2016Chia búðingur með hnetusmjöri og sultu
16th August 20166 einfaldir hlutir sem slá á sykurþörfina strax!
4th August 2016Chia búðingur með hnetusmjöri og sultu
16th August 2016Ein girnilegasta sykurlausa myndatakan hingað til er nýafstaðan! Nú er málið að sleppa sykrinum!
Ætlar þú að taka þátt í áskoruninni með mér?
Í gær mynduðum við ómótstæðilegan, sykurlausan mat fyrir nýjustu 14 daga sykurlausu áskorunina (sem er þér alveg að kostnaðarlausu) sem ég veit þú vilt taka þátt í!
Með þátttöku þinni getur þú aukið orkuna, lést og losnað við sykurpúkann í eitt skipti fyrir öll!
Ég skora því á þig að sleppa sykrinum með mér í 14 daga og gefa líkama þínum næringuna sem hann raunverulega kallar eftir!
Ég sendi þér uppskriftir, innkaupalista og allskonar ráð, það eina sem þú þarft að gera er að prófa eina nýja, ljúffenga og sykurlausa uppskrift á hverjum degi!
Tryggðu þér þátttöku hér og komdu þér í stellingar, við byrjum næsta mánudag, 15.ágúst!
Sjálf var ég algjör sykurfíkill hér áður og þekki vel hversu erfitt er að reyna sleppa sykri. Ég vildi því gera þetta eins auðvelt og hægt væri, en líka ótrúlega djúsí!Það er ekkert spennandi að sleppa sykri til þess eins að sitja eftir með kálhaus.
Uppskriftirnar eru þannig samsettar að þær slá á sykurþörfina og eru vegan að auki. Markmiðið er að þú gerir þitt besta, eina sem ég legg til er að þú verslir inn og prófir eina uppskrift á dag eða farir alla leið ef það er það sem þú vilt.
Þegar ég byrjaði að borða þennan mat var ekki aftur snúið því ég upplifði þvílíka vellíðan, einbeitingu og orku. Ég er handviss um að þessi dásamlegi matur úr áskoruninni smakkist betur en sykraða fæðan sem ég neytti hér áður og nú er komið að þér að prófa!
Hvað segirðu, 14 dagar af þessum 365 á árinu, þetta mun líða hraðar en þú getur ímyndað þér!
Ég vona að þú fáir alla vini þína með þér, og að saman skapið þið nýjar og heilsusamlegri venjur.
Smelltu hér til að skrá þig, innkaupalistinn verður sendur út á fimmtudag.
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
P.s. Ég verð á snapchat:lifutilfulls í fullu fjöri á meðan áskorun stendur! Bættu mér við og fylgstu með…
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!