7 leiðir til þess að nota ferska myntu
Ertu 30 + og upplifir liðverki? lestu þetta…
3rd March 2015
Kínóasalat gegn flensu
24th March 2015
Ertu 30 + og upplifir liðverki? lestu þetta…
3rd March 2015
Kínóasalat gegn flensu
24th March 2015
Show all
Deildu á facebook
Facebook

7 leiðir til þess að nota ferska myntu

Fersk mynta

Þar sem margir í kringum okkur glíma við flensu er kjörið að styðja við heilsuna og hreinsun líkamans og ónæmiskerfi og eru ferskar kryddjurtir þá tilvaldnar.

Í dag langar mig að segja þér betur frá myntu.

Ef þú finnur þig hugmyndasnauða með hvernig þú ættir að nota hana er þessi grein aldeilis fyrir þig og færðu 7 dásamlegar leiðir frá mér til þess að nota myntu!

 

En kostir þess að nota ferska myntu eru m.a að:

-Styðja við góða meltingunni

-Aðstoða við IBS (Iðraólgu), meltingartruflanir og brjóstsviða  (ég sjálf glímdi við IBS sem barn)

-Hjálpað við að losa um höfuðverk

-Frábær uppspretta vítamína og steinefna

-Hefur náttúrulega hreinsunar eiginleika

 

DSC_1439x

 

Fersk mynta – 7 dásamlegar leiðir til að nota hana:

 

1. Myntu te fyrir bætta meltingu

Notaðu 5-10 stór lauf, fer eftir því hversu braðgmikið þú vilt hafa te-ið þitt. Rífðu laufin niður og settu í bolla og heltu mjög heitu (ekki sjóðandi) vatni ofan í bollan og leyfðu að liggja í 5-7 mín. Þú getur tekið laufin upp úr bollanum eða leyft þeim að liggja áfram. Neytið með stærri máltíðum eða eftir máltíð fyrir bestu virkni. Einnig má bæta við engifer og sítrónu.

 

2. Myntujógúrt með berjum

Ber og mynta passa mjög vel saman. Blandaðu ósætu grísku jógúrti eða fullfeitri kókosmjólk með blönduðum berjum t.d bláberjum og hindberjum og toppaðu með ferskri myntu. Þessi gæti komið þér á óvart…

 

3. Myntu og súkkulaði boost

Bættu 3-4 laufum af ferskri myntu í boozt drykkin þinn og náttúrulegu súkkulaði í próteini drykkinn þinn. Ég hef verið að nota Raw Prótein frá Garden of life. Engin furða að “after 8” súkkulaðið sé sígillt hjá mörgum, súkkulaði og mynta er frábær blanda, hvað þá náttúrulegt!

 

4. Mynta, jarðaber og balsamik

Þessi blanda er gómsæt ein og sér, sem meðlæti, ofaná brauð eða í salatið þitt. Dassaðu þessu saman, jafnvel með smá basil, ég hugsa að um 2 bollar af niðurskornum jarðaberjum, 10-20 niðurskorin myntu- og basillauf og 3-4 msk af balsamik ediki væri flott blanda.

 

5. Myntu og jarðaberja límonaði

Ekki fyrir löngu birti ég þessa uppskrift hér að svalandi og góðum límónaði drykk. Tilvalin í staðinn fyrir gos eða þegar þú ferð í næsta saumklúbb, ótrúlega svalandi 

Jarðaberja og myntu límónaði

Uppskrift fyrir 1 1/2 lítra könnu:

12 Frosin eða fersk jarðaber (ef þú notar frosin getur verið gott leyfa þeim örlítið að þiðna með því að geyma þau við stofuhita)
Handfylli af myntu
1 sítróna sneidd
1 teskeið kreist sítróna
Klakar
Vatn
3-5 dropar lífrænt stevia

Öllu skellt í blandarann og hrært saman!

 

6. Myntu pestó

Notaðu myntu í staðin fyrir basil í uppáhalds pestó þínu eða myntu og basil til helminga í pestó uppskrift. Gefur ferskan keim.

 

7. Myntu vatn eða klakar

Kryddaðu upp á vatnið þitt.

Bættu við ferskri myntu í venjulegt eða kolsýrt vatn. Þú getur líka fryst laufin í klakaboxi með vatni og boðið upp á flotta drykki með myntuklaka. Bættu sítrónu eða lime útá og þú ert komin með flotta tilbreytingu í vatnið þitt

 

Þetta ætti að koma þér af stað, láttu mig svo vita í spjallinu að neðan

Hvernig notar þú ferska myntu? Hvað af þessum hugmyndum í dag höfða til þín?

Segðu frá í spjallinu hér að neðan, alltaf gaman að heyra frá þér

Og auðvitað ef þér líkaði greinin væri ég þakklátt ef þú deildir henni á facebook og líkaðir við hér að neðan!

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *