5 dýrkeypt mistök þegar við ætlum að hætta sykri
Vegan lasagna úr 5 hráefnum
5th February 2019
7 ráð til að minnka sykurneyslu
26th February 2019
Vegan lasagna úr 5 hráefnum
5th February 2019
7 ráð til að minnka sykurneyslu
26th February 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

5 dýrkeypt mistök þegar við ætlum að hætta sykri

DSC_1305

 

Af hverju er svona erfitt að halda sig við sykurleysið?

Í dag deili ég með þér 5 algengustu mistökunum þegar við ætlum að sleppa sykri eða halda áfram í sykurminna mataræði.

Mistökin eru vissulega dýrkeypt enda er sykur ávanabindandi og ef við höldum áfram að borða hann án þess að gera okkur grein fyrir því, losnar líkaminn aldrei fyllilega við hann og orkuleysi, slen og aukakíló sitja eftir. Með grein dagsins muntu þó sjá að það er vel hægt að forðast mistökin.

Í næstu viku held ég ókeypis fyrirlestur frá netinu “3 einföld skref til að tvöfalda orkuna, losna við sykurlöngun og auka brennslu náttúrulega” þar sem ég deili ráðum og uppskriftum gegn skráningu hér!

Þú færð sent sykurpróf sem sýnir þér besta úrræði og hversu lengi þú ættir að sleppa sykri. Þú vilt ekki missa af þessu, smelltu hér til að tryggja þér stað enda takmörkuð pláss í boði.

 

5 algeng mistök þegar hætt er að borða sykur

 

DSC_1300ADAL

 

Að hunsa sykurþörfina

Þetta hljómar kannski undarlega í samhenginu –  að losna við sykurfíkn, en það að sneiða algjörlega hjá öllu sætu er ekki góð lausn til lengdar og ýtir undir það að við gefumst upp og borðum yfir okkur af sætindum. Við þurfum öll eitthvað smá sætt til að gefa lífinu lit. Svo í stað þess að hunsa algjörlega sykurþörfina veldu frekar hollari sætabita sem eru sætaðir t.d með kakó, kanil, steviu, kókos, rúsínum, berjum eða banana.

 

Að forðast eingöngu nammi

Því miður er það ekki svo einfalt að sykur sé bara í nammi. Góðar líkur eru á því að eitthvað af matvörunum sem þú kaupir séu fullar af sykri án þess að þú vitir af því t.d dósamatur, sósur, keypt múslí, morgunkorn og ávaxtasafar. Það hljómar kannski yfirþyrmandi að þurfa að lesa aftaná allar umbúðir en það þarf alls ekki að vera þannig. Enda er margt af því sem við kaupum í dag gert af vana, gefðu þér smá tíma í búðinni til að velja betri kosti og þá ert þú strax betur sett/ur.

 

Að þekkja ekki leyninöfn sykurs

Ekki nóg með það að sykurinn leynist víða heldur gengur sykurinn líka undir hinum ýmsu nöfnum! Það tekur ekki nema 1-2 mín aukalega að lesa á  innihaldslýsingar og oftast er þá tekið fram “sugar” eða “fructose” ef varan inniheldur sykur en til eru ótal dulnefni yfir sykur. Smelltu hér til að kynna þér ókeypis fyrirlestur frá netinu þar sem ég gef dulnefni sykurs ásamt 3 sannreyndum skrefum við að sleppa sykri!

 

Að vinna ekki á rót sykurlöngunarinnar

Eins og í mörgu öðru, þá er besta lausnin á vandanum að finna rót hans og byrja þar. Það gæti komið þér á óvart að sykurlöngun stafar af ójafnvægi í næringu, t.d skortur á svefni eða vöntun á hollri fitu og steinefnum. Í stað þess að snúa mataræðinu skyndilega við og sneiða algjörlega hjá sykri, byrjaðu á því að spyrja sjálfa/n þig hvað gæti verið að valda sykurlönguninni? Gæti þig vantað steinefni? Eru einhver vítamín sem þú ert ekki að fá nóg af?

Ef þú kemst að því hvað líkama þínum vantar, er svo margfalt auðveldara að losna við sykurpúkann. Við erum öll einstök og höfum mismunandi þarfir, sykurfíknin gæti einfaldlega verið að segja þér að líkamann vanti járn! Ef þú vilt fá smá hjálp komdu endilega á ókeypis fyrirlesturinn hér þar sem ég deili m.a helstu fæðum sem vinna geng sykurlöngun til lengdar.

 

Að sækja þér ekki stuðning

Mörg okkar gefast upp á sykurleysinu einfaldlega vegna þess að okkur skortir stuðning og utanumhald. Fáðu fjölskyldu og samstarfsaðila með þér í að minnka sykurinn enda er svo oft sagt að við séum líkust þeim sem eru í kringum okkur.

 

Ef þú vilt fara skrefinu lengra þá er Frískari og orkumeiri á 30 dögum lífsstílsnámskeið sem hjálpar þér að losna við sykurfíknina og hefja heilbrigðara og léttara líf á mettíma. Námskeiðið hefur slegið í gegn síðan ég byrjaði með það fyrir ári síðan og opnum við fyrir skráningu núna með nýtt og betrumbætt námskeið!  

 

„Ég hélt satt að segja að ég myndi aldrei geta breytt mataræðinu nema kannski í einn eða tvo daga. Eftir aðeins 12 daga líður mér dásamlega.  Hafði þjáðst af vefjagigt og ég er hætt að finna fyrir verkjum! Finn svo miklu betri líðan, hressari og orkumeiri á allan hátt svo eru farin 4,2kg á 12 dögum sem spillir ekki.“ – Margrét Gróa Björnsdóttir

 

Ef þú hefur áhuga og vilt vita meira, getur þú skráð þig í ókeypis fyrirlestur HÉR – og komist þannig að því hvort námskeiðið gæti hentað þér. Fyrirlesturinn verður stútfullur af fróðleik og aðeins takmarkaður fjöldi sem kemst að, svo tryggðu þér stað í dag.

 

Er sykurlöngunin að fara með þig_

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *