Síðari hluti heimsreisu minnar og jólatilboð!
21st November 2017Kanilhjúpaðar jólamöndlur
5th December 2017Síðari hluti heimsreisu minnar og jólatilboð!
21st November 2017Kanilhjúpaðar jólamöndlur
5th December 2017Súkkulaðiþynnur með myntufyllingu
Myntufylling
1 bolli kókosmjöl
1/2 bolli kasjúhnetur (lagðar í bleyti í 5 klst eða yfir nótt)
2 msk kakósmjör, brætt
3 msk hlynsíróp
1 tsk stevia með piparmyntubragði (eða bætið við 1 tsk til viðbótar af hlynsírópi)
2 dropar piparmynta
–
Súkkulaðið
1/2 bolli kakósmjör
1/2 bolli ósætað kakó
1/4 bolli hlynsíróp
4 tsk stevía með piparmyntubragði (eða notið 1 dropa af piparmyntu)
klípa af salti
–
1. Byrjið á að útbúa myntufyllingu með því að bræða kakósmjör yfir vatnsbaði. Hrærið þá saman kókosmjöli og kasjúhnetum í blandara þar til kekkjalaust. Bætið afgangs hráefnunum við þar til silkimjúkt. Varið þó að hræra deigið of mikið þar sem það gæti stífnað.
2. Hellið í botninn á hefðbundnum múffuformum og frystið á meðan þið útbúið súkkulaðið.
3. Hrærið öll hráefnin saman í súkkulaðið með písk þar til silkimjúkt. Það má einnig bræða kakósmjör í potti og hræra síðan öllu saman í pottinum. Einnig er hægt að kaupa sykurlaust súkkulaði sætað með steviu (t.d frá Balance) og bræða.
4. Takið næst myntu fyllinguna sem er í fyrsti og hellið súkkulaði yfir á aðra eða báðar hliðarnar. Frystið í 1-2 klst til viðbótar.
5. Njótið sem algjört konfekt!
–
Fyrir ykkur sem viljið læra um sykurlausa konfekt- og desertgerð mæli ég með að kíkja á námskeiðið hjá mér hér.
Námskeiðið fer fram í þínu eigin eldhúsi! Í formi myndbanda með mér, með nýjum og einföldum uppskriftum og stuðning í gegnum Facebook. Lærir þú um náttúrulega sætugjafa sem gott er að nota og hvernig á að gera hollt konfekt, hrákökur og deserta sem allir elska!
Ég vona að þú prófir Myntusúkkulaðið og segðu mér endilega frá í spjallið að neðan. Ert þú líka veik fyrir sætindum? hvað er þínar uppáhalds hátíðar kræsingar?
Segðu mér svo endilega frá í spjallið að neðan hvað þér finnst gott að útbúa fyrir jólin:) Hlakka til að heyra frá þér.
Ef þér líkar dökkt súkkulaði, endilega deildu á samfélagsmiðlum!
–
“Sjáumst” vonandi á sykurlausa konfekt- og desert námskeiðinu!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
1 Comment
Verð að prófa þessa 🙂