10 ráð til að hreinsa líkamann! (Birt í Vísir og fréttablaði)
12th April 2013Besta leiðin til að léttast á fimmtugsaldri
30th June 201310 ráð til að hreinsa líkamann! (Birt í Vísir og fréttablaði)
12th April 2013Besta leiðin til að léttast á fimmtugsaldri
30th June 2013Sá sem uppgötvaði hráfæðis-ís er snillingur – þetta er bara besti ísinn! Með sumarið framundan verður að vera ís að mínu mati og hráfæðis ís kemur þar sterkur inn.
Þessi er ótrúlega einfaldur og góður.
Aftur á móti hefur mér alltaf fundið jarðaber og bananar hrikalega góð blanda og akkurat ástæða þess að ég fór að fikra mig áfram með mig áfram með frosin ber og hnetur og úr því verð þessi æðislegi sumarís með aðeins 3 innihaldsefnum!
Besti ísinn
Hráfæðis sumarís:
1 bolli frosin jarðaber
2 frosnir bananar
2 matskeiðar af isoa möndlu og hrísmjólk (eða hnetu mjólk að eigin vali)
1. Sameinaðu innihaldsefni í matvinnsluvél þar til þú færð þykkt sorbet-legt útlit. Varist að hræra ekki of mikið.
2. Frystu í 2 klukkustundir áður en borðið er fram
*Ég bar fram með maukuðum hindberjum.
Undirbúningur: 5 mín
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!