Hvernig matartími og svefn hefur áhrif á þyngdartap
3rd September 20135 fæðutegundir sem hjálpa þér að brenna bumbuna (fyrri hluti)
17th September 2013Hvernig matartími og svefn hefur áhrif á þyngdartap
3rd September 20135 fæðutegundir sem hjálpa þér að brenna bumbuna (fyrri hluti)
17th September 2013Að vigta eða telja kaloríur inntöku er eitthvað sem ég hvet engan til að gera. Það er einfaldlega ekki náttúruleg leið til að meta hvað og hvenær þú ættir að borða.
1. Minnkaðu mjólkurneysluna….ostinn, rjómann, mjólkina…
Mjólkurvörur geta verið erfiðar fyrir mannslíkamann að melta og er í raun ekki eðlileg fæða fyrir okkur mennina en við erum einu spendýrin sem höldum áfram að neyta mjólkurvara á fullorðinsárum. Þar að auki eru mjólkurvörur ein af helstu ofnæmisvaldandi fæðutegundum.
Þrátt fyrir að hafa verið auglýst sem æskileg fæða fyrir fitubrennslu í mörg ár, geta mjólkurafurðir í raun valdið því að þú þyngist. Prófaðu þig hægt og bítandi með að taka þær úr mataræði þínu og sjáðu hver munurinn verður!
2. Meira af þessu náttúrulega
Grænmeti og ávextir innihalda lítið magn kolvetna. Trefjainnihald þeirra er hátt sem gerir það að verkum að þér finnst þú vera södd, þó svo þú sért ekki að borða hundruðir hitaeininga yfir daginn. Þegar þú skiptir skyndibitanum út fyrir boozt drykk, salat, heil grjón og aðra heilsusamlega rétti minnkar hitaeininganeyslan sjálfkrafa – það er ekki flókið reikningsdæmi. Þegar fæðan er auk þessa rétt samsett mun orka þín aukast, fitubrennslan styrkjast og óhreinindi sem safnast hafa upp í líkamanum í gegnum árin hreinsast út. Einn þeirra þátta sem ég hjálpa konum með er að hætta að einblína á hitaeiningamagnið heldur hugsa um það að fylla líkama sinn af góðum og næringarríkum mat sem seður hungrið.
3. Ekki leyfa umbúðunum að blekkja þig
Lestu leiðbeiningarnar og horfðu á innihaldslýsinguna, ekki hitaeiningarnar. Þegar þú hefur fundið þína leið að eðlilegu þyngdartapi og meiri orku ættir þú í raun og veru ekki að þurfa að lesa utan á margar umbúðir.
Er það ekki hressandi að vita að þú getur lést án þess að það valdi þér miklu hugarangri?
Veldu heilnæma fæðu, fæðu sem er fersk og síðast en ekki síst veldu þá fæðu sem hentar þínum líkama. Þetta er meðal annars það sem ég hjálpa konum að gera með heilsumarkþjálfun í 3-6 mánaða umbreytingu.
Borðaðu góðan mat og láttu þér líða vel að innan sem utan!
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
4 Comments
Heil og sæl.
Ein “lítil” spurning: Er ekki vont fyrir okkur að fá of mikið af frúktósa?
Kveðja,
Auður
Sæl Auður, takk fyrir að senda okkur okkur inn þessa spurningu. Jú, of mikil neysla af frúktós hafa rannsóknir í dag sýnt fram á að vera einn helsti valdur margra mjög alvarlegra sjúkdóma. Þar á meðal sykursýki, ofitu, hjartavandamál og meira að segja krabbamein.
Taktu þó eftir að frúktós fundin í ávöxtum er aftur á móti ekki sá sami og venjulegur frúktósi, þar sem frúktós í ávöxtum inniheldur góða trefja. Almennt séð þá eru ávextir minni háttar upptaka af frúktós í samanburði við viðbættan sykur í mataræði.
Auður, vona að þetta hafi hjálpað þér að skilja betur frúktós, endilega segðu mér ef ég kom inná það sem þú hafðir í huga. Þetta er flott umræðuefni og ef það er eitthvað sem þú ert eða hefur verið að velta fyrir þér í tengslum við þetta væri ég gjarnan til í að skrifa um það í komandi bloggi. Svo endilega láttu frá þér heyra!
En hver er munurinn á frúktós fundin í ávöxtum og venjulegum og frúktos ?
Sæl Andrea
Góð spurning!
Almennt séð þá innihalda ávextir minna af frúktósa en t.d sætindi.
Frúktósi í ávöxtum inniheldur mikið af mikilvægum næringarefnum, t.d trefjar, vítamín, steinefni og ýmis andoxunarefni. Af þessum sökum tekur smá stund að borða og melta ávexti, sem verður til þess að frúktósinn berst hægt til lifrarinnar. Þar sem hann berst hægt og í litlu magni þá getur líkaminn þinn alveg ráðið við að hann, en þegar þú færð hann í miklu magni og hann berst hratt til lifrarinnar, t.d þegar þú borðað nammi og sætindi hefur það slæmar afleiðingar fyrir líkamann þinn.
Vona að þetta hafi svarað spurningu þinni