Lifðu til Fulls slf. Skilmálar

Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.lifdutilfulls.is. Eigandi Lifdutilfulls.is er Lifðu til fulls slf., kt. 7110121090, Gulaþingi 60, 203 Kópavogi. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Lifðu til fulls annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu Lifðu til fulls teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Lifðu til fulls selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. Lifðu til fulls býður einnig kaupanda að fá vöruna senda heim til sín

Upplýsingar og verð
Verð á vefsvæði Lifdutilfulls.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Lifðu til fulls mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.
Persónuupplýsingar
Á Lifdutilfulls.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig Lifðu til fulls umgengst þær persónuupplýsingar sem Lifðu til fulls geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.

Aðgangur
Kaupandi hefur leyfi til að nota Lifdutilfulls.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Lifðu til fulls setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á Lifdutilfulls.is. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á Lifðu til fulls verður það tilkynnt til lögreglu. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að Lifdutilfulls.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.
Innskráning, pöntun og afhending
Við fyrstu innskráningu á heimasvæði Lifðu til fulls skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista Lifðu til fulls. Pöntun kaupanda á Lifdutilfulls.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Lifðu til fulls er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein þessara skilmála) og sendir kaupanda staðfestingu með tölvupósti.. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Rafræn aðgangur er sendur til viðskiptavina innan við 15 mínútum frá greiðslu með tölvupósti.

Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni/þjónustunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við stuðningsfulltrúa Lifðu til fulls. Lifðu til fulls áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 7 daga.

Samningurinn
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Lifdutilfulls.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði Lifðu til fulls. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum Lifðu til fulls.
Trúnaður seljanda
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Trúnaður kaupanda
Öll gögn og efni gefin í þjálfun eru í eign Lifðu til Fulls slf. og Júlíu Magnúsdóttur heilsumarkþjálfa. Öll gögn sem úthlutuð eru í þjálfun eru einungis fyrir persónulega notkun kaupanda og er með öllu óheimilt að deila gögnum, uppskriftum, og hljóðupptökum sem gefin eru í þjálfun, hvort sem um ræðir í hluta eða heild. Eignaréttur kemur skýrt fram á öllum skjölum sem úthlutað er í þjálfun og fylgja reglur eignaréttar samkvæmt því. Ef kaupandi brýtur á eignarétti flokkast slíkt brot undir þjófnað og viðkomandi afsalar með því rétti sínum í þjálfuninni og verður meinað að taka frekar þátt. Kaupandi er þrátt fyrir það bundin til að greiða þjálfun að fullu.

Greiðsla
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:
Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.
Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra yfir á reikning Lifðu til fulls og setja í tilvísun/stutt skýring kennitölu og netfang. Ef Ef Lifðu til fulls hefur ekki móttekið greiðslu innan tveggja daga falla kaupin sjálfkrafa niður.

Skilaréttur
Lifðu til fulls skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vörur til Lifðu til fulls innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum en ekki er skilyrði að hún sé ónotuð.. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Einnig þurfa allir aukahlutir að fylgja með vörunni.
Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Lifðu til fulls endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu – þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkortin, innlögn á bankareikning.

Skilaréttur og endugreiðsluréttur fyrir Frískari og Orkumeiri námskeið

Þú hefur rétt til að falla frá samningi innan 14 daga frá því að þú færð aðgang að heimasvæði. Frestur til að falla frá samningi rennur út 14 dögum eftir þann dag. 

Til þess að nýta réttinn þarft þú að tilkynna okkur ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu t.d. með bréfi, símbréfi eða tölvupósti á netfangið studningur@lifdututilfulls.is. Nota má til þess staðlað eyðublað, eyðublaðið er að finna hér. Ekki er tekið við úrsögnum á samfélagsmiðlum. Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.

Með því að fara inná á heimasvæðið innan 14 daga frá skráningu ertu að afsala þér rétt um að falla frá samningi um endurgreiðslu. Með ánægjuábyrgð okkar veitum við þér rétt á að fara inná heimasvæðið fylgja fyrstu skrefum námskeiðs. Finnur þú ekki fyrir meiri orku og vellíðan á námskeiðinu getur þú fallið frá samningi innan 14 daga með því að sýna fram á úfyllta leiðarvísa frá kennslu 1 ásamt því að prufa a.m.k eina uppskrift og segja okkar hvaða upskrift það var ásamt yfirlýsingu um ástæðu til að falla frá samningi. Lifðu til fulls áskilar sér þann rétt að ákvarða hvort þessum skilyrðum ánægjuábyrgar hafi verið fyllilega fylgt eftir og hvort endurgreiðsla eigi rétt á sér.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur fyrir Nýtt líf og Ný þú þjálfun

Gengið er frá greiðslu í þjálfun með því að velja greiðsludreifingu eða staðgreiðslu.
Með skráningu hefur þú tryggt þér pláss í Nýtt Líf og Ný Þú þjálfun. Ef þér líkar ekki þjálfunina, getur þú sótt um endurgreiðslu í 21 dag frá fyrsta degi þjálfunnar (20. Apríl 2022) að frátöldu staðfestingargjaldi sem eru 20.000 kr.

Til að hafa möguleika á endurgreiðslu eftir 21 dag setjum við hinsvegar skilyrði að þú að skilir inn kvittunum fyrir fyrstu vikuna í matarhreinsun, og útfylltan leiðarvísi af verkefnum sem hafa komið í þjálfun. Setjum við slík skilyrði vegna þess að við vitum að ef þú klárar hugarvinnuna og borðar fæðuna sem okkar áhrifamikla hreinsun býður upp á að þá muntu ná árangri. Ef þú vinnur vinnuna en færð ekki ávinning þá endurgreiðum við þér að fullu. Eftir 21 dag er engin endurgreiðsla og þátttakandi bundinn því að fullgreiða námskeiðið.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur fyrir 3ja daga hráfæðishreinsun og 5 daga hreinsun

Gengið er frá greiðslu í þjálfun með staðgreiðslu. Með skráningu færð þú aðgang að hreinsunargögnum ásamt matseðli og innkaupalista. Mín ósk er að sjá þig ná árangri í þyngdartapi, orku og vellíðan. Til að þú sért viss um að mér sé alvara og að hér sé ekkert plat á ferð, þá býð ég þér einstaka ánægjuábyrgð. Hreinsun er tryggð með 100% skilyrðislausri ábyrgð frá mér – ef þér líkar ekki gögnin sem þú færð hefur þú 24 klst til þess að tilkynna okkur það og við endurgreiðum þér með glöðu geði án þess að spyrja nokkurs.

Galli
Ef vara er gölluð er Lifðu til fulls skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Lifðu til fulls mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í stuðningsfulltrúa Lifðu til fulls sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Lifðu til fulls sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.

Ábyrgð
Ábyrgð Lifðu til fulls hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár s.s. rafhlöður í farsíma og getur þurft að endurnýja fyrir lok ábyrgðar. Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð eða átt við hana án samþykkis Lifðu til fulls þrátt fyrir að þar hafi verið viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur líka úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði.
Lifðu til fulls er ekki skuldbundið til að sjá um viðgerð á vöru, gefa afslætti eða skipta út vöru eftir að ábyrgðartíma lýkur. Lifðu til fulls áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála innan 7 daga. Ef vara fellur undir ábyrgðarskilmála þá er Lifðu til fulls skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.

Eignarréttur
Seldar vörur eru eign Lifðu til fulls þar til kaupverð er greitt að fullu.

Annað
Lifðu til fulls áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Lifðu til fulls telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 17 október 2019