“12 kg farin án fyrirhafnar og líkamlegir kvillar úr sögunni og aðeins 4 mánuðum inní þjálfunina.
Áður en ég hóf hópþjálfun hjá Júlíu var ég of þung, orkulaus, sísvöng og mjög háð sykri. Ég upplifði mjög oft magaverki, kláða og hreistur í hársverðinum og ég var þurr í húðinni. Ég upplifði svefnlausar nætur og var síþreytt á daginn. Mig langaði mest til þess að líða betur og upplifa meiri lífsfyllingu og verða glaðari og sáttari með sjálfa mig en hafði enga orku í að fylgja því eftir, því eftir vinnu var ég alveg orkulaus. Og ég vissi að ég þyrfti stuðning og leiðsögn. Ég var óviss í fyrstu þar sem þjálfunin var öll í gegnum tölvu og síma sem kom mér síðan á endanum vel þar sem ég er með ungt barn. Ég var einnig óviss með lengdina og hvort ég gæti haldið þjálfuninni út en í dag tel ég það vera einn helsti kostur þjálfunarinnar – því hún tekur þið alla leið.
Með þjálfuninni og samstarfi við Júlíu er ég allt önnur og í dag líður mér mun betur með sjálfan mig og hef mun meiri orku sem leiðir til þess að ég finn meiri gleði í lífinu. Ég hef farið framúr þeim markmiðum sem ég setti mér varðandi þyngdartap og gerði það fyrirhafnarlaust og léttist um 12 kg á aðeins fyrstu fjórum mánuðum þjálfunar. Ég upplifi mig stælta og í góðu formi þrátt fyrir að hafa verið ódugleg í hreyfingu og þakka ég það mataræði og breytingum. Öll líkamleg vandamál hjá mér hafa lagast og magaverkir, húðvandamál er úr sögunni og svefn minn hefur aldrei verið betri. Í dag hef ég dustað rykið af áhugamálum mínum og er dugleg að gera hluti sem gleðja. Mesti ávinningurinn minn úr þjálfunni er betri líðan og meiri gleði, aukakíló og bætt útlit er bónus. Og þegar ég lít til baka á fjárfestingua sé ég ekki eftir krónu, besta sem ég hef gefið sjálfri mér í mörg ár."
Dagmar Kristjánsdóttir
“„Ég er glaðari, orkumeiri og minna utan við mig. Ég var alltaf þreytt og mér leið eins og ég væri miklu eldri en ég er. Þegar ég borðaði fæðu sem ég hafði óþol fyrir þá fékk ég verki í fæturnar. Þegar ég hafði hreinsað út sykur og glútein þá varð lífið svo miklu léttara. Ég er glaðari, orkumeiri og minna utan við mig. Það er gott að vera í hópþjálfun það er heilmikill stuðningur í því. Það er svo gott að geta spurt aðra þegar maður er að komast upp úr gömlum hjólförum.”
Erla Vigdís
“„Ég er svo þakklát sjálfri mér fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun, hún „bjargaði“ lífi mínu.“
Mér fannst ég stöðnuð í lífinu og var stöðugt að hugsa um hvað ég setti ofan í mig, hvort að ég væri að borða „rétt“. Þetta var mikill vítahringur og mig langaði að fá meiri fróðleik um hollari mat.
Í dag er ég með skýrari hugsun og betri einbeitingu, meira sjálfstraust, orkan meiri, hamingjusamari, opnari, veit núna að ég get alveg haldið mig í „ákveðinni“ þyngd án þess að hreyfa mig alla daga vikunnar eins og geðsjúklingur.
Ég er svo þakklát sjálfri mér fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun, hún „bjargaði“ lífi mínu og kom á réttum tíma í líf mitt.“
Kristín H. R.
“Lifðu til fulls er það besta sem ég hef kynnst á ævinni
Áður en ég kom til Júlíu var ég orkulítil og í stöðugu basli við að komast í kjörþyngd, ég hafði áhyggjur af því að eldast ekki vel og halda ekki góðri heilsu. Það virtist sem svo margir í kringum mig væru að eldast hratt. Ég hafði þurft að sækja til sjúkraþjálfara mánaðarlega vegna bakmeiðsla og verks í mjöðmum og hafði áhyggjur af hausverk, stressi, kvíða, og versnandi sjón.
Síðan ég byrjaði í 6 mánaða þjálfuninni „Lausnir til lífstíðar“ hefur líðan hjá mér aldei verið betri, bæði andlega og líkamlega! Lifðu til fulls er það besta sem ég hef kynnst á ævinni!
Eftir margra ára baráttu náði ég loks að komast í kjörþyngd á aðeins örskömmum tíma! Líf mitt er mun streituminna og daglegir hausverkir nánast horfnir. Ég heimsæki sjúkraþjálfara minn mun sjaldnar en ég gerði áður, sökum ákveðinnar rútínu sem Júlía hjálpaði mér að komast í. Auk þess er ég orðin svo miklu fróðari um hollt mataræði og gott líferni, ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt sem skilar sér í meiri orku, bættum svefni og miklu betri líðan!
Áður hafði ég fylgt ýmsum mataráætlunum sem mér var ráðlagt en ekkert hafði skilaði sér í árangri eða bættri líðan. Í dag hef ég öðlast betri skilning á hvað ég get sett á matardiskinn minn og hvað hæfir mínum sérstaka líkama og ég sakna gömlu venjanna alls ekki því ég er hreinlega ný og betri manneskja í dag!
Þegar ég horfi á fjárfestinguna í „6 mánaða lausnir til lífstíðar“, líður mér alveg stórkostlega því ég er á besta stað sem ég hef nokkurn tímann verið á. Ef þú vilt lifa til fulls, mæli ég 100 % með Júlíu, heilsuráðgjafa til að aðstoða þig við að ná þínum markmiðum.“
Guðrún Harðardóttir | Rvk, Sjálfstæður atvinnurekandi og hársnyrtir
„100% orkulaust líf, miklu meiri orka og léttari líkami!
Áður en ég kom til Júlíu var ég orkulaus, döpur og fannst ég vera of þung! Ég hafði nýlega hætt að reykja og því fannst mér allt svo vonlaust og þá aðalega ég sjálf. Ég hafði lært að lifa með verki um allan líkama og þá sérstaklega í vöðvum og liðamótum.
Í fyrstu var ég óviss með hvað ég væri að fara útí í og hrædd við að standa mig ekki vel. Að vissu leyti fannst mér fjárfestingin dýr en ég hafði heldur ekki sett mig sjálfa í fyrsta sæti áður.
Þjálfun með Júlíu var frábær og fékk ég góðan stuðning og hvatningu sem ég þurfti. Eftir hvern tíma var ég skilin eftir með góðar tillögur og fræðslu sem ég gat sett í verk!
Ég hætti að þyngjast og leið betur andlega og líkamlegir verkir minnkuðu viku eftir viku!
Í dag upplifi ég 100% verkjalaust líf, miklu meiri orku og léttari líkama! Ég er mun meðvitaðri um það sem ég geri sjálfri mér og set ofan í mig og veit að ég get lifað án verkja og orkuleysis áfram.
Ég hef fengið aukið sjálfstraust og meiri gleði í lífi mínu og hefur það fengið mig til þess að skrá mig í nám og vilja hreyfa mig! Ég veit að ég tók rétta ákvörðun að fjárfesta í þjálfuninni og í dag upplifi ég miklu meiri aga og ákveðni með sjálfa mig.
Ég mæli hiklaust með heilsumarkþjálfun hjá Júlíu og vill að aðrir upplifi það fyrir sig persónulega því við erum öll einstöki!"
Helga Jónsdóttir | Bókari
“Vöknuð á undan klukkunni og 1,6 kíló farin á 5 dögum
Ég vaknaði áður endalaust þreytt, þrútin og verkjuð á morgnanna og var þannig fram eftir degi.
Í dag er ég orkumeiri og er farin að vakna á undan klukkunni. Ég er alveg laus við að vera þrútin og ekki með eins mikla verki. Húðin er mýkri og hárið líflegra og ég missti 1,6 kíló á aðeins 5 dögum í 5 daga matarhreinsuninni.
Áhrifin eru einfaldlega betri líðan og mig langar að halda áfram með þetta mataræði. Það sem kom mér á óvart var hversu góður maturinn var og það er ekki svo mikil vinna að gera hann.”
Hólmfríður Egilson | ritari
“Brjóstsviði hjá mér er horfinn og mér líður miklu betur líkamlega.
Áður en ég byrjaði í hópþjálfun var ég óánægð með líkamsástand mitt og ég vildi breyta lífsstíll mínum og geta þá lifað jákvæðu og glöðu lífi.
Aðeins eftir fyrstu mánuðinn í þjálfunina hef ég lést um 4 kíló og öll sætindaþörf farin sem og allt nart á milli mála! Brjóstsviði hjá mér er horfinn og mér líður miklu betur líkamlega. Ég er öll orkumeiri sem ég finn bæði í starfi og námi því ég hef miklu meiri einbeitingu og kem fleiru í verk!
Ég finn að það er mikil stuðningur í hópþjálfun og þegar ég lít til baka á fjárfestingunna hugsa ég ekki um þetta sem kostnað sem slíkt heldur frekar hvað ég er að spara til framtíðar hvað varðar heilsutap og álíkan heilsubrest sem ég vill ekki eiga þátt í!"
Jóna Fanney Kristjánsdóttir | Bókari og háskólanemi
“Komin í fatastærð sem ég var vaxin upp úr og ljómi skín frá mér sem tekið er eftir.
Í hópþjálfun upplifði ég frábæran og umhyggjusaman stuðning sem er bæði fræðandi og fagmannlegur og var Júlía vakandi yfir árangri mínum og umhyggjusöm um að leiðbeina vel. Með hópþjálfun léttist ég og komin í þá fatastærð sem ég var vaxin upp úr og finn fyrir minni bjúg og þrota! Ég er orkumeiri og á léttara með að sinna vinnu minni sem er bæði krefjandi líkamlega og andlega. Ég sef einnig betur og hef meiri tíma og orku til að sinna orkumikla barnabarninu mínu með gleði! Fleiri manns hafa haft orð á því hvað sé að gerast hjá mér því ég líti svo vel út. Segja svo reyndar að ég hafi nú ekkert litið illa út áður en það stafi af mér einhver ljómi eða útgeislun núna, sjá bara hve vel mér líður. Mér finnst ég algjörlega vera á réttri leið og það sem stendur upp úr er mikil vellíðan andlega og líkamlega, betri svefn og betri stjórn á eigin lífi.
Þegar ég horfi til baka á fjárfestinguna er ég ofboðslega sátt og ánægð að hafa tekið stökkið í þjálfun með Júlíu og stuðningurinn og allt efnið sem ég hef fengið hefur nýst mér vel á þessu ferðalagi. Ég gæti ekki lagt í svona ferð án þess að hafa stuðning, þetta gerir maður ekki einn og óstuddur.“
Anna Guðrún Valdimars | Hjúkrunarfræðingur
„10 kg án þess að hafa fyrir því og jafnvægi alla daga! Ég elska það!
Áður en ég byrjaði í þjálfun hjá Júlíu var ég alltaf drepast í liðamótunum og var búin að fara í alls konar rannsóknir sem allar sýndu að ég ætti að vera við hestaheilsu, en það fannst mér ekki. Ég var alltaf þreytt og uppþembd. Mér fannst ég ekki orðin nógu gömul til að líða svona. Og markmið mitt var ekkert endilega að léttast, bara að líða betur, geta hreyft mig eins og ég vildi, þegar ég vildi, án þess að neitt myndi hindra það. Í fyrstu var ég pínu hrædd um að ég myndi ekki ná að fylgja, að þetta væri bara námskeið sem myndi enda og ég færi aftur í sama farið. Eða að 6 mánuðir væri of langur tími til að halda út, það færi inn í sumarið og þá myndi ég sennilega detta út úr þessu. En núna, eftir 4 mánuði í hópþjálfuninni, hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu. Og það er bara bónus, því það var ekki eitt af markmiðum mínum. Liðaverkirnir eru miklu minni og það koma stundum dagar sem ég finn ekkert til í líðamótunum.
Ég er mikill matgæðingur og hef alla tíð verið rosalega mikill nammigrís. Og það fór bara versnandi eftir að ég átti börnin mín. Aldrei hefði ég trúað því að ég myndi ná að hætta að borða sælgæti. En núna langar mig ekki einu sinni í það þó að það sé fyrir framan mig. Það er meira að segja hægt að gera sér „nammi“ sem er mjög hollt. Og hvort sem það eru allar girnilegu mataruppskriftirnar sem ég er að nota eða „nammið“ sem ég geri þá virkar það vel fyrir alla fjölskylduna.
Það besta af öllu er jafnvægið, alla daga, besti árangurinn. Jafnvægi í einu og öllu, skapi, hungri/seddu, orku/þreytu og bara öllu! Mér finnst þjálfunin vera stuðningsmikil, hvetjandi og skemmtileg og það er gott að vinna með Júlíu. Þegar ég horfi til baka er ég rosalega ánægð að hafa tekið þetta skref, tekið þá ákvörðun að vera með í hópþjálfuninni, því ég veit að ég hefði aldrei getað lært allt sem ég er búin að læra, bara með því að reyna að afla mér upplýsinga sjálf.“
Vala Ólöf Jónasdóttir | Innanhússarkitekt
„Frelsi!
Áður en ég kom í heilsumarkþjálfun til Júlíu var ég föst og komst ekkert áfram í átt að enn betra lífi sem ég vissi að beið mín. Mig langaði í meira frelsi og orku og vildi losna úr viðjum þess sem var að fjötra mig.
Ég var strax óviss um að fjárfestingin mundi skila sér vegna þess að mér fannst ég taka fjárhagslega áhættu og ég var heldur ekki viss um að ég myndi gefa mér tímann sem þurfti til.
Þjálfun hjá Júlíu var hvetjandi og lærði ég flottar nýjungar sem henta mér mjög vel og held ég þeim áfram til lífstíðar.
Ég lærði að þekkja sjálfa mig betur, upplifði frelsið við að hætta kaffinu og fullt af nýjungum sem henta mér vel á þeirri braut sem ég vil vera áfram á.
Verkir í baki eru horfnir og meltingin mun betri sem ég vissi ekki að gæti orðið neitt betri. Orka mín og áræðni var áberandi og vinkonurnar dáðust að mér.
Það sem stóð upp úr fyrir mig var frelsið sem ég fékk og að geta haldið áfram á þeirri braut sem ég komst á.
Þegar ég horfi aftur á fjárfestinguna hef ég enga eftirsjá þar sem ég þekki sjálfa mig betur og hvað ég má bjóða líkamanum upp á og hvað ekki.
Ég mæli hiklaust með þjálfun hjá Júlíu því þar er þekking sem sem tekur mann lengra en maður átti von á og er sérsniðin að hverjum og einum, ekki fjöldaframleidd eins og margt sem er í boði."
Auðbjörg Reynisdóttir | Hjúkrunarfræðingur og markþjálfi
“Sú allbesta fjárfesting..
Áður en en ég hóf samstarf með Júlíu leið mér mjög illa, bæði á sál og líkama, átti erfitt með að hreyfa mig og var með verki í mjöðm og fótleggjum, ekki bætti úr skák að burðast með öll þessi umfram kíló. Uppgjöf var skammt undan, síþreytt og döpur og hafði ég reynt margt í gegnum tíðina. Ég lofa þann dag sem ég kynntist Júlíu enda þakka ég henni hversu mjög líðan mín hefur breyst til batnaðar. Ég finn fyrir mikilli breytingu bæði andlega og líkamlega, hreyfigeta hefur stóraukist, ég er full af orku og bjartsýni er ríkjandi. Minnið mitt hefur stórbatnað og húðin er að verða eins og á ungabarni, mjúk og kláði og pirringur að hverfa.
Hópþjálfunin veitir mér aðhald, hvatningu og löngun til þess að halda áfram að ná lengra í heilsusamlegra líferni. Ég lít á Júlíu sem bjargvætt minn og er þetta án efa sú albesta fjárfesting sem ég hef gert. Nú upplifi ég heilbrigða sál í hraustum líkama og er það gulls gildi."
Ásgerður Guðbjörnsdóttir
„Besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá!
Áður en ég fór í þjálfun með Júlíu var ég oft orkulaus, fann fyrir liðverkjum og stirðleika í baki sérstaklega fyrst á morgnanna og var oft með magaverk.
Eftir þjálfun er ég orkumeiri, laus við lið- og bakverki og hefur ekki liðið svona vel í maganum í langan tíma! Mér finnst auðveldara að fara á fætur á morgnanna og orkan helst út daginn. Að vera laus við verki veldur líka því að manni líður mun betur og er léttari í lund. Þar að auki eru 3 kíló farin.
Það kom mér á óvart hvað ávinningurinn kom fljótt. Ég fann fyrir aukinni orku strax á öðrum degi. Það kom mér líka á óvart að liðverkirnir stafi af mataræðinu því ég taldi mig ekki vera að borða mjög óhollan mat áður.
Ég fæ hrós á hverjum degi fyir þessa frábæru rétti frá bæði börnum og eiginmanni. Þetta er besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá.“
Katrín Waagfjörð
„Orkumeiri og hætt að finna fyrir verkjum!
Ég hélt satt að segja að ég myndi aldrei geta breytt mataræðinu nema kannski einn eða tvo daga. Ég geng mikið á fell/fjöll og hef lengi langað til að skokka, en skrokkurinn minn hefur ekki leyft það.
Eftir aðeins 12 daga af þjálfuninni líður mér dásamlega. Ég var farin að skokka pínu lítið og fann ekki fyrir neinu. Hafði þjáðst af vefjagigt og ég er hætt að finna fyrir verkjum!
Ávinningurinn er svo miklu betri líðan, hressari og orkumeiri á allan hátt svo eru farin 4,2kg á 12 dögum sem spillir ekki.“
Margrét Gróa Björnsdóttir
„Æðisleg tilfinning að vera ekki lengur sykurfíkill, þetta var auðveldara en ég hélt
„Áður var ég í algjörri sykurneyslu, alltaf orkulaus og þung á mér. Ég var farin að fela nammi inni í skáp bara til að eiga útaf fyrir mig. Núna er öll þessi löngun farin og ég elska að fá mér einhverja af þessum gómsætu máltíðum sem við fengum uppskriftir af. Ég er farin að geta vaknað hress á morgnanna án þess að þurfa snooza. Svo er líka æðisleg tilfinning að vera ekki lengur sykurfíkill. Ég upplifi það að líkaminn varð allur orkumeiri og léttari og það kom mér á óvart hvað það er í raun auðvelt að tileinka sér nýtt mataræði. Þjálfunin hjálpaði mér að sjá að það er hægt að neyta orkuríkrar fæðu án sykurs."
Viktoría Birgisdóttir
,,Mun minni verkir í liðum og er léttari bæði andlega og líkamlega
Áður en ég byrjaði í þjálfun vildi ég losna við sykurinn og ég var orðin þyngri en ég hafði verið áður og vildi stoppa þá þróun. Í dag hef ég lést um 4 kíló og er með mun minni verki í liðum og mjaðmagrind og allur bjúgur farinn á kvöldin. Ég á mun auðveldar með að hreyfa mig og er léttari, bæði andlega og líkamlega. Ég upplifði mjög góðan stuðning frá Nýtt líf og Ný þú og er ánægð með fjárfestinguna.“
Ásdís Óskarsdóttir
,,Orkumikil og verð sko hress kerling fyrir 70 ára afmælið mitt með hópþjálfun Lifðu Til Fulls .
Áður en ég tók þessa ákvörðun var ég með mikla verki í skrokknum, ég er með slitgigt í baki og hálsi sem leggst á fleiri liði. Alla ævi hef ég átt í erfiðleikum með svefn, sem mikil vaktarvinna á mínum vinnuferli hjálpaði ekki með.
Ég ákvað að gefa sjálfri mér það að fara í Lifðu til fulls og verða hress kerling fyrir 70 ára afmælið mitt og hér er ég í dag og minn stærsti ávinningur er meiri orka. Ég hef einnig lést um 6,5 kíló og hreyfing er stígandi hjá mér. Ég hef einnig lært betur á líkama minn með fæðuvali, hvað hefur áhrif á líðan mína og svefnleysi. Ég þarf ekki að taka svefnlyf á hverju kvöldi, í samráði við lífsstílsbreytinguna og lækna mína. Ég er ánægð að hafa fjárfest í sjálfri mér og er viss um að þessi gamli klár heldur áfram fram á við."
Laufey Aðalsteinsdóttir
,,Hef fjárfest í því dýrmætasta sem ég á sem er heilsan.
Fyrir þjálfun var ég óánægð með sjálfa mig, ég hafði þyngst og var komin með allskonar verki. Í dag hef ég losnað við 6 kíló og verkirnir í liðum og vöðvum að mestu leiti horfnir. Ég er orðin orkumeiri og líður betur andlega og líkamlega. Ég upplifi hópþjálfunina jákvætt og finnst gott að vera með konum í hóp sem eru að glíma við sama vandamál og ég og það er gott að fá hvatninguna. Hef fjárfest í því dýrmætasta sem ég á sem er heilsan.“ "
Hanna Björnsdóttir
„Vellíðan yfir að hafa yngst um mörg ár
Ávinningar mínir úr þjálfun er m.a viðsnúningurinn í mataræðinu þ.e. að velja réttu fæðusamsetninguna. Þá samsetningu sem svínvirkar! Og maður nýtur í botn! Léttleiki tilverunnar er tekinn við. Vellíðan yfir að hafa tekist að færa mig aftur til þyngdar sem hæfir minni líkamshæð. Vellíðan yfir að fötin þrengi ekki að líkama mínum. Vellíðan yfir að hafa yngst um mörg ár. Ég er stolt, yfir að hafa tekist að losna við 10 kíló og nýt þess að vera léttstígari og passa í fötin sem biðu í fataskápnum!"
Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir
,,Komin með minn lífsstíl.
Fyrir þjálfunina var ég frekar dauf og döpur, var búin að vera á hægri leið upp í þyngd síðasta árið og hafði löngun til að breyta lífstíl mínum. Í dag eru farin 6 kíló og ávinningurinn er margþættur, ekki bara þyngdartapið heldur líður mér allri betur. Ég er tilbúin að ganga alla leið og að gera þetta að mínum lífstíl. Hópþjálfunin er fín upplifun og það er góður stuðning og aðhald. Ég er sátt með ákvörðunina mína með þessa fjárfestingu í því mér líður betur á sál og líkama.“
Hildur Tryggvadóttir
,,Lést um 7kg, sef betur og er almennt orkumeiri
Nýtt líf og ný þú þjálfun er öðruvísi á þann hátt að hún er persónulegri, meiri fræðsla og stuðningur. Mjög gott að taka þetta svona skref fyrir skref á löngum tíma. Algjör snilld að geta haft þetta á netinu. Ég hef prófaði Atkinskúrinn, Íslensku vigtarráðgjafana, djöflast í ræktinni 6 daga vikunnar,hitaeiningar taldar af miklum móð, síðan prófaði ég Danska kúrinn. Gekk vel í fyrstu en svo stóð ég bara í stað þó að það væru allmörg aukakíló enn til staðar. Í dag hef ég lést um 7 kíló, sef betur og er almennt orkumeiri. Ég kem meiru í verk og er bjartsýnni.“
Guðbjörg Hjörleifsdóttir
,,Lít á þetta sem fjárfestingu í mér en ég hef látið sjálfan mig sitja á hakanum lengi.
Áður en ég byrjaði í þjálfun upplifði ég vanlíðan, depurð og uppþembu og var orðin hálfgert sófadýr.
Í dag hef ég lést um 4 kíló, heilaþokan og seyðingurinn í höfðinu horfinn. Ég tek minna af gigtarlyfjum í samráði við læknana mína og vefjagigtin er mun betri. Ég er mun glaðari og þoli álagið heima fyrir og í vinnunni betur. Ég upplifði hópþjálfunina vel, ég er vön að gera hlutina á eigin spýtur og á hnefanum, þannig það kom mér ánægjulega á óvart. Mér líður vel með fjárfestinguna og horfi á það sem fjárfestingu í mér, en ég hef látið sjálfan mig sitja á hakanum of lengi.“
Guðrún Kr. Þórsdóttir
„Vöknuð til lífsins aftur, besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir mig
Ég var týnd og fannst ég vera fangi vegna heilsu minnar, var föst heima við og upplifði mígreni á mjög háu stigi. Ég væri innandyra í dag með dregið fyrir alla glugga og ætti ekkert líf (lifandi dauð) ef ekki væri fyrir þessa þjálfun. Ég var hrædd við að prófa og dró fæturna en sá þetta sem mína síðustu von um betri heilsu.
Í dag líður mér betur í líkamanum, hef meiri orka, jafnvægi, er léttara í lund, bjartsýni og verkir í fótum farnir. Var í þyngd 77- 78, er núna 72 kíló. Vöknuð til lífsins aftur eftir langan tíma. Þessi ávinningur hefur bjargað lífi mínu og er nýtt líf á svo marga vegu.
Þegar ég lít til baka, fæ ég tár í augun og svo mikið þakklæti fyrir að hafa þorað að prófa og ég sé ekki eftir því í dag. Ég var svo hrædd að þetta væri einhver bóla sem myndi springa. Í þetta skipti gerði ég rétt og að fjárfesta í “Nýtt líf, ný þú” hjá Lifðu til fulls er besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir mig og heilsu mína. Þjálfunin er frábær því það var tekið á öllu, farið í allt."
Bjarney Sigurlaugsdóttir
,,Orka , orka og aftur orka.
Orka, orka og aftur orka. Ég vakna um leið og ég heyri í börnunum, snooza ekkert heldur fer strax á fætur. Þegar ég er svöng þá byrja ég alltaf að hugsa um það hollasta sem ég geti fengið mér og svo er ég byrjuð núna að kíkja ósjálfrátt á umbúðir og ef það er sykur í því þá reyni ég að kaupa eitthvað annað eða hugsa hvort ég þurfi virkilega að nota þetta matvæli.“
Ísey Jensdóttir
"Þjálfunin var einföld og gaf mér styrkinn að standast freistingar og halda mínu striki áfram.
Ásdís Baldvinsdóttir
"Losnaði við sykurlöngun og 3-4 kg
Arnheiður Dögg Einarsdóttir
''Sykurþörfin hvarf á fyrsta degi og er ég 3 kílóum léttari, þolinmóðari og orkumeiri
Þorgerður Elín Brynjólfsdóttir
"Ég er 5 kílóum léttari, orkumeiri og sef betur
Brynja Rós Guðlaugsdóttir
"Gott að finna aukna orku og léttara líf
Sólveig
"Mér líður eins og sigurvegara þegar ég kem úr þjálfunartíma með Júlíu
Ég ákvað að fara í heilsumarkþjálfun til að léttast og koma rútínu á hreyfingu hjá mér. Þótt ég væri ekki yfir 30 í BMI (obesity) þá var ég með þessi leiðinlegu aukakíló, þ.e. í flokknum of þung, BMI 25-30. Ég hafði enga stjórn á mér og át allt sem sætt var og fékkaldrei nóg.
Júlía benti mér á að hugsa frekar um hvað kæmi kroppnum mínum vel en að léttast. Þá fyrst gat ég farið að breyta mínum venjum og það bara með því að breyta hugsuninni. Ég fór í algjört vínbindindi og sælgætisbindindi og eins og fyrir töfra þá bara gekk það upp. Hafði lítið fyrir því.
Síðan hafa bæst við ný markmið og það er bara þannig að alltaf á Júlía ráð þótt eitthvað klikki hjá manni. Mér líður eins og sigurvegara þegar ég kem úr þjálfunartíma
Ég hvet alla til að panta tíma, setja sér markmið og – ná Þeim. Til þess mæli ég 100% með Júlíu. Hún hefur sýnt það og sannað að hún hefur breiða þekkingu á sínu sviði og leggur mikla alúð í allt sem hún gerir."
Edda Magnúsdóttir | Matvælafræðingur og hráfæðiskokkur
"Komin yfir alla sykurlöngun og hefur einnig tekist að hrífa manninn minn með mér
Jóhanna Lovísa Gísladóttir
"Júlía hefur helgað sig því að hjálpa öðrum og að finna leiðir að lifa lífinu til fulls
Linda R. Ómarsdóttir | Ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu
,,Ávinningurinn á þjálfuninni er allsherjar vellíðunar lífsstíll.
Eftir aðeins 2 mánuði í þjálfun hjá Júlíu hef ég farið fram úr mínum eigin væntingum og náð hverju markmiði sem við settum hvað varðar þyngdarstjórnun, heilsusamlegt líferni og lífskraft. Augu mín hafa opnast fyrir mikilvægi sjálfsumhyggju og er það orðin fastur liður í mínu daglega lífi! Aldrei hafði það hvarflað að mér að hlusta og skoða undirstöðuþætti þess sem ráða matarvali mínu.
Ávinningurinn á þjálfuninni er allsherjar vellíðunar lífstíll. Júlía er bæði jákvæð og hjálpsamur leiðbeinandi, viðmót hennar er bæði vinalegt og fróðlegt og hefur verið mér gríðar mikil hjálp að heilbrigðari lífstíl.
Ég mæli eindregið með Júlíu til að aðstoða þig við að ná þínum persónulegu markmiðum
Diana Jakob´s | Rvk, Kokkur.
"Orkumeiri og betra líf, aldrei upplifað annað eins!
Áður en ég hóf hópþjálfun hjá Júlíu var ég eins og versti unglingur á morgnanna og sofnaði aftur á og þurfti að leggja mig yfir daginn því ég gat ekki haldið augunum opnum. Mér leið eins og ég væri að líða útaf.
Aðeins mánuði inn í þjálfunina og ég ætlaði varla að trúa muninum! Ég vakna hress, kát og vel hvíld og get átt rólega morgna með manninum mínum, 3 börnum mínum oghundi! Égheld síðan orkunni jafnt yfir daginn! Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður! Þegar ég horfi á fjárfestinguna í hópþjálfuninni líður mér frábærlega vegna þess að þetta virkar. Já takk, lífsstílsbreyting!“
Anný Jakobsdóttir | Stuðningsfulltrúi.
"Vá ,hvað ég lærði mikið!
Jóhanna Gunnars | húsmóðir.
"Án nokkurs efa mæli ég með heilsumarkþjálfun hjá Júlíu fyrir hvern sem er!
Áður en ég byrjaði í heilsumarkþjálfun hjá Júlíu átti ég erfitt með að finna mat sem ég gat borðað án þess að fá illt í magann. Ég hef lengi verið viðkvæm í maga og þoli ekki mat eins og hveiti, mjólk og margt fleira. Ég var að hreyfa mig en mig vantaði vissa hvatningu og hjá mér var það aðallega mataræðið sem þurfti að taka í gegn.
Strax í byrjun á 6 mánaða prógramminu setti ég mér markmið varðandi hreyfingu, bætt mataræði, úrlausn á ýmsum heilsukvillum og fleira hjá mér sem gekk mjög vel að ná og fannst mér stuðningur Júlíu ómetanlegur. Hún fræddi mig um holla fæðu sem ég varð mjög hrifin af, eins og kínóa og chiafræ, sem ég get ekki verið án í dag!
Ég lærði að skrifa matardagbók sem gerði mér kleift að sjá betur hvað égborða sem ég fer illa í mig. Í dag get ég upplifað orku,betri stjórn og jafnvægi á skapi ásamt því að vera meðvituð um langanir og hvaða fæðu og magn ég þoli og þoli ekki.
Samstarfið með Júlíu gekk mjög vel og það var ánægjulegt að fá svona mikinn stuðning og mikla tilsögn frá henni. Hún gefur af sér 100 % til að hjálpa manni og get ég án nokkurs efa mælt með heilsumarkþjálfun hjá henni fyrir hvern sem er. Það er gott að hafa einhvern til að hvetja sig og geta talað við einhvern um ýmislegt sem hvílir á manni. Ég veit meira núna og hef lært mikið af henni og mun nýta mér það í framtíðinni.”
Sigrún Guðmundsdóttir | Hjúkrunarfræðingur.
"Júlía kemur aukakílóunum niður en með allt öðrum hætti en áður og hjálpar þér að kynnast sjálfri þér og lífinu upp á nýtt og lifa til fulls.
Heimurinn í dag er oft niðurbrjótandi fyrir konur og krafan um að þurfa líta fullkomlega út er svo fjarri því að vera nauðsynleg eða æskileg. Þar af leiðandi finnst mér svo frábært að Júlía einblíni ekki bara á að koma niður aukakílóunum heldur hugsar hún fyrst og fremst um að kúnninn læri að elska sjálfan sig og verða sín eigin fyrimynd, en ekki einhver annar. Júlía hefur náð einstökum árangri á stuttum tíma og trúi ég því að hún eigi eftir að hjálpa mörgum konum að verða sáttari og ánægðari með sjálfa sig.“
Svava María Ómarsdóttir | húsmóðir og vínkona.
"Mjög sátt, hverra krónu virði.
Áður en ég hóf þjálfun hjá Lifðu til Fulls var ég orkulaus, þreytt og illa sofin vegna svitakasta, fór varla út úr húsi nema til vinnu. Í dag hef ég lést um 6 kg og er miklu orkumeiri, svitaköst mun minni og svefn betri. Ég er miklu atorkusamari þar sem líkamleg líðan er betri, stuðningurinn í þjálfuninni hélt mér við efnið og er ég mjög sátt í dag.
Kristín V. Helgadóttir | Silica hotel
"Ég mæli sko 100% með þessu, sama hvaða afsökun þú hefur
Ég mæli sko 100% með þessu, sama hve þreytt eða lítinn tíma þú hefur, bara sama hvaða afsökun þú hefur, það skiptir bara öllu máli að borða rétt fyrir þig. Ég sef MIKLU betur, áður var ég allaf að vakna og átti erfitt með að sofna aftur. Núna sef ég alla nóttina vært og vakna þar af leiðandi miklu hressari og brjáluð orka í gangi. Svo í kaupæti fóru aukakílóin. Auðvitað mjög glöð með það og mig langar sko ekkert að snúa til baka
Katrín Laufey
"Með þjálfun náði ég af um 20 kíló og enn í dag (meira en ári eftir þjálfun) hafa þessi kíló ekki látið sjá sig aftur. Ég hef fengið að kynnast svo allt annari vellíðan, meiri orku og hef miklu meira þrek og er loksins laus við verki og þreytu. Margir hafa spurt mig hvað ég hef verið að gera og segja að ég hafi yngjast því húðin er svo fín og hárið glansar alveg!
Ég hlakka til að borða matinn minn og borða það sem mér finnst gott. Ég veit að þessi matur gerir mér gott og ég veit að ég þyngist ekkert af honum, það finnst mér það flottasta! Það er ekkert bannað, þú getur valið úr öllu og þarft ekki að fara eftir megrunarplani. Ég finn heldur ekki lengur fyrir þessari svakalegu löngun í einhverja fæðu eins og í gamla daga og þarf ekkert á því að halda. Maður minn er mikil kjötmaður en hann er með mér í þessu og brosir bara að nýja lífsstílnum!
Marta Klein
,,Hef lést um 10 kg og farin að setja mér ný markmið!
Ég var óánægð með sjálfa mig, var löt og þung og átti erfitt með að ná mér upp úr sófanum. Ég var með stöðuga liðverki og vöðvabólgu sem höfðu letjandi áhrif á mig. Það sem ég er að upplifa núna er betri heilsa, aukin orka og betri svefn. Meira að segja minnið er betra, meltingin er allt önnur og magaverkir hafa alveg horfið. Með aukinni orku er ég farin að nýja og spennandi hluti það gefur mér óneitanlega meiri lífsfyllingu og gleði.
Sigrún Unnur Einarsdóttir
"12 kg farin með bættum lífsstíl, alltaf södd og hef minnkað blóðþrýstingslyfin!
Líf mitt hefur umbreyst síðan ég byrjaði í þjálfun. Ég hef minnkað blóðþrýstingslyf sem ég hef verið á lengi, það er beintengt við breytt og bætt mataræði. Mér líður allri svo miklu betur og er búin að léttast um 12 kg. Bólgur á lærum er horfnar og ég get loksins farið út í garð og sinnt garðvinnu. Ég komst ekki í garðinn minn áður, ég átti svo erfitt með stigana. Ég er meira að segja farin að slá! Ég finn ekki fyrir hungri og þetta er lífsstíll sem er komin. Þetta er það besta sem ég hef gert og maðurinn minn allsæll!
Sigurleif Þorsteinsdóttir
"Blóðsykurinn jafn og hefur lækkað til muna!
Þvílík breyting! Ég hef verið mjög rokkandi í blóðsykri og hann verið mjög hár. Nú mælist hann jafn og gildin eru yfir helmingi lægri en áður. Mér líður miklu betur, ég hef meiri orku og finnst auðveldara að hreyfa mig. Ég gekk Esjuna í fyrsta skipti á ævinni! Hef alltaf langað að fara en ekki treyst mér í það. Þvílíkur persónulegur sigur! Plús það að ég er búin að léttast yfir 8 kg!
Bryndís Steinunn
,,Nýtt líf og lífsstíll til frambúðar
Þegar ég hóf þjálfun var mitt vandamál hægðatregða, súkkulaði-sætubrauð og kex fíkill, orkuleysi og þreyta. Ég var orðin vonlaus á að líða vel í eigin líkama og fann fyrir vangetu að geta gert sjálf breytingar án aðstoðar. Með þjálfun hef ég öðlast virkari ristil, betri losun hægða, betri líðan í maga, Einnig hef ég misst 3-4 kg og sef ég betur. Í dag er ég Orkumeiri, skynsamari, sé hlutina í skýrara ljósi, meðvitaðari um hvað ég borða og meðvitaðari um hvað er hollari matur
Margrét Valgerður Pálsdóttir | Yfirþroskaþjálfi Klettaskóla
"Ég gat klárað gríðarlegt álagstímabil í vinnunni með stæl og nóg orka þegar heim var komið
Áður en ég byrjaði í þjálfun var ég komin vel af stað í hreyfingu en vantaði að komast lengra og sjá rétta leið með mataræðið og ná að léttast.
Það var gott að vinna saman í hóp, frábært að vita að ég er ekki ein, góðar og raunsæar leiðbeiningar.
Ásta Björg Guðmundsdóttir, kennari
"7 kg farin og finn fyrir meira sjálfstrausti!
Ég var búin að prufa marga kúra og gafst alltaf upp, Ég var að hugsa um að fara í magaminnkun á þeim tíma en ákvað frekar að fara í þjálfun sem ég sé sko ekki eftir. Með þjálfun hef ég lést um 7 kg og veit að ég er á réttri leið með að ná fleiri kílóum af mér. Er öll léttari bæði líkamlega og andlega og finn fyrir meira sjálftrausti. Mér finnst mjög gott að vinna í hóp, Það veitir manni aðhald og uppörvun og tel ég þessa þjálfun vera mjög góða ákvörðun!
Flórentína Óskarsdóttir | skólaritari
"Ég veit nú hvað nærir mig og gefur mér orku
Ég hóf þjálfun því mér fannst ég vera stöðnuð í vegferð að betra lífi, betri heilsu líkamlega og andlega. Ég var byrjuð en vissi að ég kæmist ekki alla leið án hjálpar. Með þjálfun hef ég lést um 3 kg og er minna þrútin í andliti og minna þaninn kviður. Húð mín er allt önnur og melting betri.
Ég hef lært að forgangsraða og set mínar þarfir í forgrunn. Mér fannst gott að kynnast hópi kvenna sem deila að miklu leiti sömu reynslu og einnig lærdómsríkt. Ég er ótrúlega stolt og ánægð að hafa valið að fjárfesta í heilsunni með eðalþjálfun, og þessu glaða, jákvæða og uppbyggjandi umhverfi.
Lilja Pétursdóttir | Rekstrarstjóri
,,Alltaf í góðu skapi, jákvæð og afslöppuð
Ég hef alveg frá fæðingu verið feitlagin og gegnum tíðina hef ég prófað óteljandi megrunarkúra, töflur og duft og gengið misjafnlega en hef alltaf sótt í sama farið aftur. Fyrir þrem árum missti ég algerlega tökin, vigtin nálgaðist óðfluga þriggja stafa tölu, ég var farin að hreyfa mig hægar og leið ekki vel, verkir í fótum og víðar í líkamanum. Það tók smá tíma að ákveða að skrá mig í "Nýtt líf ný þú" eneftir að ég tók þá ákvörðun með þjálfun hef ég ekki séð eftir því eina einustu mínútu.
Til að byrja með var ég kvíðin, sérstaklega kveið ég tölvumálunum en með góðri hjálp var þetta ekkert mál.Þjálfunin er auðveld og spennandi, frábært hvernig maður er leiddur í gegnum þetta skref fyrir skref. Námsefnið er frábært, ég hlakka alltaf til, hvað kemur næst. Eftir einn og hálfan mánuð er ég 10 kílóum léttari, verkir horfnir og þrekið miklu meira. Ég finn ég hreyfi mig hraðar og það allra besta, alltaf í góðu skapi, jákvæð og afslöppuð. Mér finnst best hvað þetta er allt auðvelt og maturinn góður og ég er mikið glaðari og jákvæðari.
Hulda Harðardóttir
"Laus við lið- og bandvefsverkir, sem hafa plagað mig í áraraðir
Áður en ég ákvað að taka þátt var ég föst í ferli sem dró mig niður. Ég er búin að þyngjast um nokkur kíló á ári síðastliðin 5 ár. Ég fylgdi einhverju megrunarplani í nokkrar vikur og léttist, en datt alltaf í sama farið og þyngist meira og alltaf varð ég óánægðari með mig. Ég hafði efasemdir um hvort að netnámskeið væri nægilega mikið aðhald fyrir mig og hvort ég væri að fá sömu þjónustu og einhver búsettur í Rvk. En Nýtt líf og Ný þú er öðruvísi á þann hátt að þetta er meiri einstaklingsmiðun og meiri hugarvinna, þ.e. grafa upp rótina fyrir vanlíðaninni.
Þegar ég byrjaði matarhreinsunin upplifði ég mikinn létti. Fyrst og fremst að ég fór að léttast en alls ekki síður að ég gerði það án þess að vera svöng.Matseðillinn var fjölbreyttur og góður en án allra öfga, svo ég fann svo skýrt að ég gat þetta. Þegar u.þ.b. vika var liðin af hreinsun áttaði ég mig á því að lið- og bandvefsverkir, sem hafa plagað mig í áraraðir, voru að mestu horfnir. .Í dag er ég 5 kg léttari, öruggari með hvað er gott fyrir mig og hvað ekki, hef ekki dottið í þunglyndisát eins og áður og er með mikið minni liðverkir og meiri orku
Hildur Stefánsdóttir
"Ef þú hefur misst trúna að geta náð aftur kjörþyngd, farðu í Nýtt líf og Ný þú
Ég var frekar lengi að ákveða mig með að fara í þessa þjálfun en sé ekki eftir því í dag. Ég var búin að vera reyna allt en ekkert gekk að koma sér í kjörþyngd og ég var nær að vera í ofþyngd. Ég svaf illa á næturnar vegna verkja í fótum og mjöðmun og orkuleysi var farið að koma fram hjá mér.
Þegar leið á viku 2 í þjálfun þá var ég kominn með orku og 2 kg farinn hjá mér. Ég svaf betur og minni verkir í líkamanum. Allt gekk þetta upp hjá mér og maturinn var virkilega góður.Núna er ég verkjalaus, sef vel og 5 kg eru farinn hjá mér. Ég hef lært á líkamann hvað ég má og hvað ekki og líður bara miklu betur og hef meiri orku. .Núna er ég farinn að gera hluti sem ég var hætt eða hafði minnkað, eins og hreyfing. Við að læra á líkama minn þá hefur svo mikið gott komið aftur inn í líf mitt. Ég er ánægð að hafa tekið þátt í þessari þjálfun og ég mæli með að fólk sem hefur misst trúna á því að geta aftur náð kjörþyngd fari í þessa þjálfun.. Það er svo vel haldið utan um okkur og allt er svo vel upp sett. Facebook hópurinn okkar var frábær og gott að leita til allra sama hvað heimskulegt spurt var alltaf fékk maður svar og hvatningu.
Kolbrún Benediktsdóttir
"Betri svefn, minni verki og meiri orka
Fyrir þjálfun var ég of þung og matur fór ekki vel í mig, bæði maga og allan líkamann.
Ég var með efasemdir um að ég ætti erfitt með að fylgja matseðli og svo var líka stutt í jól og miklar freistingar í gangi, en ég hef áður prófað allskyns megrunarkúra og breytt matarræði og líkamsrækt. Í Nýtt líf og Ný þú er mikil fræðsla, góðir matseðlar sem virka og hægt að taka þátt heima án þess að fara útaf heimilinu. Ávinningar í þjálfun er bættur svefn, minni verkir og meiri orka sem hefur þau áhrif að ég er með meiri orku til daglegs lífs og léttari á allan hátt.
Magndís Alexandersdóttir
,,Meiri orka og einbeiting og sef líka rosalega vel!
Var búin að vera að vinna með streitueinkenni og einkenni kulnunar í starfi. Var tilbúin að taka heildstæða nálgun á breyttan lífstíl og komið var að því að taka til í mataræðinu. Í dag hef ég lést um 7 kg og upplifi meiri orku og einbeitingu. Ég sef líka rosalega vel og er meðvitaðari um það sem ég læt ofan í mig.
Mér fannst mjög hvetjandi að vinna í hóp, gott að vita af stuðningi og þjálfun veitir aðhald sem ég þurfti einnig var mjög gott að geta fylgst með öðrum þáttakendum. Þetta er með betri ákvörðunum sem ég hef tekið og hefur fært mér hugmyndir að því að skapa venjur sem hafa langvarandi áhrif á líðan og heilsu.
Karen Rut Gísladóttir | Lektor, Menntavísindasvið Háskóli Ísland
"Mér líður æðislega, get mælt 100% með þjálfuninni
Áður en ég byrjaði þjálfun var ég of þung, upplifði uppþembu, verki og leiða. Ég var óörugg í byrjun og þekkti ekki Júlíu eða Lifðu til fulls og óviss með fjárfestinguna því maður er svo oft vanafastur og ég var hrædd að þetta væri öfgar. En ég var algjörlega leidd áfram í hópþjálfun með góðum stuðningi og flottum uppskriftum. ég get mælt 100% með þjálfuninni.
Ég hef lést um 7 kg og fötin mín passa betur, líðan hefur batnað, húðin mýkst, aukin gleði, melting er betri. Ég er aldrei svöng og Verkir og bólgur eru minni. Mér líður æðislega og hefur melting batnað töluvert.
Bergþóra Hafsteinsdóttir
"Lést um 12 kg, líf mitt miklu auðveldara
Áður en ég hóf þjálfun var ég búin að berjast lengi við að reyna að léttast og ekkert gekk. Ég hafði prófað alla mögulegu megrunarkúrana en gafst alltaf upp og engin árangur fékkst og ég var orðin verulega hrædd um heilsuna. Með þjálfun hef ég lést um 12 kg, andlega líðan hefur batnað og trú mín að mér takist ætlunarverkið er komið til mín.
Þetta hefur haft svo jákvæð og góð áhrif á líf mitt, hreyfing hefur aukist og orðið auðveldari. ég versla öðruvísi inn og miklu duglegri að elda mat þrátt fyrir að vera einn oft, sem ég gerð ekki áður. Mér finnst gott að vera í hópþjálfun, mér finnst stuðningurinn frábært og maður fær svör við spurningum sem vakna auðveldlega!
Ég er mjög sátt og sé alls ekki eftir að hafa tekið þessa ákvörðun, líðan er svo góð og ég hef öðlast meiri trú á sjálfri mér. Mitt daglega líf hefur orðið miklu auðveldara og ég lít bjartari augum fram á veginn
Anna Sigríður Arnþórsdóttir
"Mikið betri af liðverkjum og andleg líðan mjög góð
Áður en ég kom í þjálfun til Júlíu var ég orðin alltof þung og mjög slæm af liðverkjum. Ég hef lést um 8 kg. og er með minni liðverki og andleg líðan mjög góð. Öll verk eru mikið auðveldari í dag.
Mér finnst þetta gott að vinna í hóp, veitir manni aðhald og maður tekur sjálfur ábyrgð á heilsu sinni. Í dag líður mér mjög vel, mjög fegin að hafa tekið þátt í þjálfuninni. Góð fjárfesting og lífið miklu betra.
Lára Ólafsdóttir
"Sé ekki eftir einu einasta augnabliki
Fyrir þjálfun hafði ég þyngst nokkuð sl. 2 ár. Mig langaði að léttast aftur og líða betur í líkamanum, ég var verulega óánægð, var alltaf að lesa mig til um og hvað ég ætti að gera til að léttast aftur, en einhvernvegin sama hvað ég gerði, ég léttist ekkert. Fyrst hafði efasemdir um að þetta mundi ekki virka en með þjálfun hef ég lést um 7 kg og gigtareinkennin eru horfin! Fingurnir ekki eins stirðir og bara allt önnur líðan í skrokknum. Eins hefur blóðþrýstingurinn farið aftur í rétt horf.
Mér finnst stuðningurinn, hvatningin og allur fróðleikurinn sem ég hef fengið alveg frábær! Ég sé ekki eftir einu einasta augnabliki og hvet alla þá sem áhuga hafa á því að láta sér líða vel að fjárfesta í þessu. Mér líður svo miklu betur og lífið svo heilbrigt og skemmtilegt!
Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir
,,Besta fjárfesting sem ég hef tekið í mínu lífi
Áður en ég hóf þjálfun var ég á mjög slæmum stað. Ég gat ekki hreyft mig og var mjög illa á mig komin andlega og líkamlega, með vefjagigt, ristillinn í klessu og maginn í ólagi. Þáttakan í lífi mínu var orðin takmörkuð út af heilsufari mínu.
Með þjálfun hef ég lést um 9 kg og farin að sofa eins og engill. Verkir í líkamanum hafa minnkað og ég þarf ekki lengur að leggja mig á daginn. Í kjölfar er ég farin að leira aftur, eitthvað sem ég hafði ekki getað í mörg ár. Ég er jákvæð alla daga og andleg líðan betri. Hjónabandið hefur orðið sterkara þar sem við erum nú að gera svo miklu meira saman og ekki sakar að heyra hrós frá kunningjum eins og “þú ert stórglæsileg kona, ég ætlaði varla að þekkja þig!
Þegar ég lít til baka er ég svo hamingjusöm yfir því að hafa tekið þessa ákvörðun. Mér líkaði mjög vel að vinna í hóp og fannst gott að geta fylgst með árangri hjá hinum konunum.
Inga Dóra Jóhannsdóttir - Sölumaður
"Líðan er milljón sinnum betri og bæði andlega og líkamlega
Fyrir þjálfun var ég í slæmu ástandi, með vefjagigt og fjölvefjagigt, vantaði að ná kg niður og fá verkjalausan líkama og nýtt mataræði. Ég hafði prófað námskeið og líkamsrækt og ýmsa megrunarkúra sem virka á meðan þú er í honum en bætir svo við þig fullt af kg þegar þú hættir í kúrnum.
Í dag hef lést um 10 kg orðin alveg verkjalaus! Þetta hefur haft þau áhrif á líf mitt að ég get hreyft mig meira og er glaðari og upplifi vellíðan, þyngdartap og verkjalausan líkama. Það var mjög gott að vera í hópþjálfun og mér líður vel með fjárfestinguna, hún hefur skilað sér betri líðan og góðum ávinning og lærdómi, líðan er milljón sinnum betri og bæði andlega og líkamlega. FRÁBÆRT!
Sigrún Steinbergsdóttir
"Þjálfun er ekki skyndilausn heldur breyttur lífsstíll.
Ég hef prófað svo margt að ég get ekki talið það allt upp hér. Þegar ég byrjaði þjálfun vildi ég léttast og var blóðsykurinn of hár. Þessi þjálfun er algjör snilld! Ég er búin að léttast um 13 kg og er laus við liðverki, bjúg og mígrenni sem hefur háð mér frá barnsæsku.
Í dag á ég betra með að sinna daglegum störfum og að taka erfiðar ákvarðanir og er andlega mikið sterkari. Ég er ekki sama manneskjan í dag og þegar ég hóf þjálfunina. Mér líður bara svo miklu betur á allan hátt. Lífið er yndislegt!
Mér finnst skipta svo miklu máli í þessari þjálfun að upplifa allan þennan stuðning bæði í formi fræðslu og ekki síður stuðninginn frá hópnum. Maður er aldrei einn. Þjálfunin gefur eftirfylgni og er langtíma plan og árangur! Þetta er ekki skyndilausn heldur breyttur lífsstíll.
Margrét Baldursdóttir