5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg
5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst
7th August 2018
Losnaðu við orkuleysið og aukakílóin á morgun! Örfá sæti laus…
21st August 2018
5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst
7th August 2018
Losnaðu við orkuleysið og aukakílóin á morgun! Örfá sæti laus…
21st August 2018
Show all
Deildu á facebook
Facebook

5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg

Uppþemba, bjúgur og bólgur er svo sannarlega ekki eitthvað sem maður vill finna fyrir dagsdaglega, en því miður er það ótrúlega algengt!

Sérstaklega eftir sumarið eða frí!

Til að koma þér stax af stað eftir ævintýri sumarsins deili ég með þér í dag 5 óvæntum fæðutegundum sem draga úr bólgum og bjúg.

fæðutegunsdir bólgur og bjúg

..
Bólgur og bjúgur geta haft aukaverkanir eins og þyngdaraukningu, síþreytu og króníska verki eða aukningu á verkjum. Það sem gæti þó komið á óvart er að bólgur og bjúgur eru talin einn helsti orsakavaldur margra sjúkdóma og kvilla eins og sykursýkis, blóðþrýstingsvandamála og liðagigt. Hér koma því 5 góðar fæðundir sem ég á alltaf til heima!

..

Lesa einnig:
4 heilbrigðar leiðir að þyngdartapi
Hvað þýðir að vera besta útgáfan af sjálfri þér?
Hvernig má draga úr bólgum á sólarhring!

..

fæðutegunsdir bólgur og bjúg

..

Brokkólí

Flestir þekkja Brokkolí en það er í mismiklu uppáhaldi hjá fólki. Brokkólí hefur bara of marga kosti til að sleppa því. Það er ein besta uppspretta andoxunarefnisins súlfórafan sem hefur öflug bólgueyðandi áhrif. Brokkolí hefur gjarnan verið talin ofurfæða enda er það stútfullt af A, C, E, K vítamínum, B-vítamín og fólinsýru.

Ég frysti oft brokkólí og nota í búst eða drykki. Brokkolí má borða hrátt, gufusoðið, bætt útí salöt, núðlurétti eða súpur.

fæðutegunsdir bólgur og bjúg

..

Ber

Það eru gleðifréttir að berin séu bólgueyðandi ekki satt? Sæt og ljúffeng og allskonar möguleikar í boði! Þar á meðal hindber, brómber, bláber og jarðaber. Íslensku berin eru alltaf dásamleg og um að gera að nýta sér þau á haustin. Ber innihalda andoxunarefni, C-vítamín, anthocyanin og glútaþíon sem öll hafa bólgueyðandi eiginleika.

Ber eru auðvitað góð ein og sér, útí búst eða morgunverðarskálina.

fæðutegunsdir bólgur og bjúg
..
Hempfræ

Það eru ekki allir sem þekkja hempfræin, en þau eru þess virði að kynna sér því þau eru ótrúlega holl og mild á bragðið. Þau eru rík af próteini, omega 3, 6 og GLA (Gamma-Linolenic acid) sem er einstaklega bólgueyðandi sem hefur góð áhrif á vöðva, liði og hitastig líkamans  (því mjög gott fyrir konur með fyrirtíðarspennu eða þá sem glíma við gigt).  GLA er einnig frábært fyrir þá sem glíma við of háan blóðþrýsting. Hempfræin eru talin geta bætt meltingu, dregið úr sykurlöngun og aukið orkuna.

Hempfræjunum má bæta útí búst, dreifa yfir salöt eða morgunmatinn.  Mér finnst gott að lauma þeim yfir kókosjógúrt eiginmannsins og gera hempmjólkina sem ég á alltaf heima í kæli.

DSC_5656
..
Lax og hnetur

Holl fita er nauðsynleg og mjög mikilvægt að hafa jafnvægi á inntöku hennar. Við höfum gott aðgengi að góðum lax og öðrum feitum fisk hér á Íslandi og um að gera að nýta okkur hann. Lax og hnetur eru sérlega ríkar af Omega-3 fitusýrum sem og próteinum sem hjálpa að draga úr bólgum og hafa góð áhrif á heilastarfsemi og meltingu! Laxinn er einnig mjög ríkur af B12 sem er nauðsynlegt fyrir orku.

Nú er góður tími til að skella lax á grillið og nýta sér alla kostina sem hann býður uppá. Hnetur eru tilvalið snarl og halda blóðsykri í jafnvægi og sykurlöngun í skefjum.

DSC_5635
..
Laukur og hvítlaukur

Tvær uppáhalds bólgueyðandi fæðutegundirnar mínar í eldhúsið enda væri matreiðsla frekar bragðlaus án þeirra! Hvítlaukur hefur lengi verið þekktur fyrir að hafa góð áhrif á ónæmiskerfið og draga úr bólgum og bjúg. Laukurinn hefur hreinsandi eiginleika og inniheldur quercetin, öflugt andoxunarefni sem dregur úr bólgum og bólgumyndum.

Möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að lauk og hvítlauk, enda henta þessar tvær fæðutegundir í nánast alla grænmetis- eða fisk rétti, hægt er að gera allskonar dásamlegar dressingar úr hvítlauk og bæta lauknum útí salöt.

Finnur þú fyrir bólgum og bjúg eftir frí?

Fyrir innblástur að hreinum lífsstil fylgdu okkur á Facebook og Instagram.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *