7 heilsuávinningar kókoshnetunnar
Orkulaus? Hér eru 5 ástæður…
17th April 2015
Nýtt líf, ný þú lífsstílsþjálfun
5 ástæður til þess að taka EKKI þátt í “Nýtt líf og Ný þú” þjálfun
24th April 2015
Orkulaus? Hér eru 5 ástæður…
17th April 2015
Nýtt líf, ný þú lífsstílsþjálfun
5 ástæður til þess að taka EKKI þátt í “Nýtt líf og Ný þú” þjálfun
24th April 2015
Show all

7 heilsuávinningar kókoshnetunnar

Hefurðu prófað að nota kókoshnetuna?

Þú ættir að gera það því hún er alveg meiriháttar fyrir þína heilsu.

Kókoshnetan er plöntuávöxtur sem finnst gjarnan í Suður Afríku, Ástralíu og Indlandi. Kókoshnetan er ótrúlega nærandi og rík af trefjum, vítamínum og steinefnum.

Spænsku landkönnuðurnir kölluðu hana coco, sem þýðir ” apa-andlit” vegna þess að það eru þrjár dældir (augu) á hnetunni sem líkjast höfuð og andlit á apa. 🙂

Kókos pálmin er þar mikils metinn enda kölluð “Lífstréð” eða “The tree of life” og notuð í matargerði og í lækningarskyni. 

Bruce fife N.D og Josepch Mercola D.O segja að “kókosolían sé hollasta olían á jörðinni”.

Hún er líka alveg jafn kalóríurík og aðrar fitur…

Kókosolía og kókosmjólk inniheldur svipað margar kaloríur og aðrar fitur aftur a móti getur fita þeirra hjálpað til við að hraða brennslu líkamans.

 

7 heilsuávinningar kókoshnetunnar

coconut 2

 

1. Styður við þyngdartap. Uppbygging kókoshnetunar gerir okkur auðveldara fyrir að brenna henni sem orku. Hún hjálpar einnig til við að auka orkuna og upplifa meiri seddu yfir daginn.. (samkvæmt eatingwell og bbcgoodfood

 

2. Fljótfengin orka sem gefur þér góða næringu. Kókoshnetan nýtist líkamanum sem góð orka og styður við aukið þrek og getur þannig bætt frammistöðu.

 

3. Getur stutt við heilsu skjaldkirtils. Kókosolían er talin styðja við heilsu skjaldkirtils með sérstöku fitu jafnvægi sem er nærandi fyrir heilsu skjaldkirtils. Hér er grein sem segir betur frá því og hér

 

4. Minnkar sykurlöngun og bætir insúlin mótstöðu og hagnýtingu glúkósa. Holla fitan í kókoshnetunni hægir á blóðsykurskoti og hefur þannig mettandi áhrif á líkaman og löngun í sykur.

 

5. Bætir meltingu ásamt mörgum öðrum óþægindum og/eða bólgum í meltingarfærum tengd hægðatregðu og óreglu á hægðum, með því að hjálpa til við upptöku næringarefna, vítamína og steinefna, amínósýra á meðan á sama tíma veita góðar trefjar.

 

6. Styrkir ónæmiskerfið. 50% af góðu fitunni sem fæst í kókosolíu er frá svokallaðri Lauric sýru sem getur drepið sýkla, vírusa og sveppi ásamt því að bægja frá sýkingum.

 

7. Styður við heilbrigt hár og húð þar sem kókosolían verndar hárið gegn skemmdum og eykur glansa ásamt því að bæta raka í húð og vernda fyrir sólargeislum.

 

Hér eru nokkrar leiðir til að koma þér af stað með að nota kókos:

  • Bættu kókosvatni útí booztin þinn fyrir eða drekktu kókosvatn eitt og sér.
  • Prófaðu vinsæla chia og kókosgraut minn sem morgunmat eða millimál.
  • Eldaðu með kókosolíu fyrir bætta upptöku næringarefna og meltingu.
  • Gerðu mínu saðsömu kókoshrákúlu til að minnka löngun í sykur.
  • Fáðu þér teskeið af kókosolíu til að bæta ónæmiskerfið og minnka sykurlöngun.
  • Berðu kókosolíu í hárið að kvöldi og þvoðu það úr daginn eftir
  • Berðu kókosolíu á líkaman eftir sturtu.

 

Fylgstu með í næstu viku og skráðu þig á póstlistan ef þú hefur ekki nú þegar gert það því við munum fara yfir hvaða kókosvörur við mælum með og hverjar þú ættir að forðast.

 

Láttu mig svo vita í spjallinu að neðan;

Hvað af þessum ástæðum höfða til þín? Og hvernig ætlar þú að bæta við kókos í þitt daglega líf?

Alltaf gaman að heyra frá þér

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *