★★★★★
„Besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá!“
Áður var ég oft orkulaus, fann fyrir liðverkjum og stirðleika í baki, sérstaklega fyrst á morgnana, og var oft með magaverk. Ég er nú orkumeiri, laus við lið- og bakverki og hef ekki liðið svona vel í maganum í langan tíma! Mér finnst auðveldara að fara á fætur á morgnana og orkan helst út daginn. Þar að auki eru 3 kg farin. Það kom mér á óvart hvað ávinningurinn kom fljótt, ég fann fyrir aukinni orku strax á degi 2. Ég fæ hrós á hverjum degi fyrir þessa frábæru rétti frá bæði börnum og eiginmanni. Þetta var besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá.
Katrín Waagfjörð
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„12 kg farin án fyrirhafnar og líkamlegir kvillar úr sögunni“
Í dag líður mér mun betur með sjálfa mig og hef mun meiri orku sem leiðir til þess að ég finn meiri gleði í lífinu. Ég hef farið framúr þeim markmiðum varðandi þyngdartap og gerði það fyrirhafnarlaust og léttist um 12 kg. Ég upplifi mig stælta og í góðu formi. Öll líkamleg vandamál hjá mér hafa lagast, magaverkir og húðvandamál eru úr sögunni og svefn minn hefur aldrei verið betri. Mesti ávinningurinn er betri líðan og meiri gleði, aukakílóin eru bónus.
Dagmar Kristjánsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Laus við hitakófin og 10 kíló. Öll breytingarskeiðseinkenni horfin“
Verð að segja ykkur frá... Ég var með mikil hitakóf og svaf ílla og þar sem ég má ekki taka hormóna varð ég að finna aðra lausn, eftir að lesa að sumar voru svona í 10 ár Nei takk. Ég skráði mig á Lifðu til fulls og eftir 2 vikur var ég alveg laus við hitakóstin og 7 kg farin, sef miklu betur. Í dag er ég búin að léttast um 10 kíló, liðverkir skánuðu og öll breytingarskeiðseinkenni hurfu, svefnleysi og svitaköst. Ég hreyfi mig meira, borða hollt, er jákvæðari og andlega líður mér miklu betur.
Dagný Ingólfsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„10 kg án þess að hafa fyrir því og jafnvægi alla daga!“
Áður en ég byrjaði hjá Júlíu var ég alltaf þreytt og uppþembd. Mér fannst ég ekki orðin nógu gömul til að líða svona. En núna hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu. Og það er bara bónus, því það var ekki eitt af markmiðum mínum. Það besta af öllu er jafnvægið, alla daga, besti árangurinn. Jafnvægi í einu og öllu, skapi, hungri/seddu, orku/þreytu og bara öllu!
Vala Ólöf Jónasdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ég hef áttað mig betur á öllu sem ég græði á því að hugsa betur um mig“
Fyrir námskeiðið var ég á nokkuð góðum stað en langaði að losna við sykurpúkann sem alltaf sótti á mig á kvöldin, auk þess sem ég var farin að finna fyrir ýmsum smákvillum. Eftir námskeiðið er sykurátið á kvöldin alveg horfið. Ég tók einnig eftir því hvað meltingin varð góð eftir aðeins nokkra daga. Ég upplifi meiri orku, meira jafnaðargeð og einnig fóru c.a. 2 kíló sem var ekkert markmið en auka plús.
Eyrún Pétursdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Vellíðan, betra skap og stress hefur minnkað“
Meira jafnvægi, betra skap og jákvæðni aukist. Hausinn er fókuseraðri og stress hefur minnkað. Ég finn fyrir vellíðan í líkamanum að því leyti að ég er minna útþanin og bólgin ásamt því að ég sef betur. Ég er að upplifa ótrúlega hluti og hugarfarið er allt annað. Fór t.d. út að borða um daginn og mig LANGAÐI að panta salat.
Sandra Ósk Jóhannsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ánægðari með sjálfa mig og náði loksins árangri“
Ég var orðin leið á því að hafa ekki stjórn á sykurlöngun og vanlíðan sem fylgdi nammiáti. Eftir að hafa lokið þjálfun er sykurlöngunin engin, sykurbumban farin að mestu og mikil vellíðan með að hafa náð að sigrast á þessu. Upplifun mín af námskeiðinu er mjög góð, hafði góðan stuðning af uppskriftunum og lærði lykilatriðin um hollari sætu. Ég er mjög sátt að hafa tekið þátt í námskeiðinu, það veitti mér aðhald. Ég skráði mig á rétta tímapunktinum og náði loksins árangri.
Helga Lárusdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Algjörlega leidd áfram með góðum stuðningi og flottum uppskriftum“
Ég var óörugg í byrjun og þekkti ekki Júlíu eða Lifðu til fulls og óviss með fjárfestinguna, því maður er svo oft vanafastur og var hrædd að þetta væri ófgar. En ég var algjörlega leidd áfram með góðum stuðningi og flottum uppskriftum. Ég hef lést um 7 kg og fötin mín passa betur, líðan hefur batnað, húðin mýkst, aukin gleði, melting betri. Ég er aldrei svöng og verkir og bólgur eru minni. Mér líður æðislega.
Bergþóra Hafsteinsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið“
Ég léttist um 10 kg, er orkumeiri, maturinn er dásamlega bragðgóður og krakkarnir elska marga af þessum réttum! Þetta er ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið síðustu ár. Ávinningurinn er það mikill að ég hvet allar sem eru að hugsa hvort þær eigi að gera þetta til að láta verða af því! Ég hélt að þetta yrði erfitt en leiðbeiningarnar eru svo góðar og þetta er miklu auðveldara en maður heldur.
Sólveig
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Líður svo miklu betur bæði á líkama og sál“
Upplifun mín hefur verið mjög góð. Mér fannst skemmtilega koma á óvart hvað maturinn var góður. Ég er miklu hressari á morgnana og ávinningurinn sá að núna hika ég ekki við að elda heilsurétti og hafa með mér í nesti daginn eftir. Það hafa líka farið 5 kíló, ég er orkumeiri, sef betur og mér líður bara svo miklu betur bæði á líkama og sál.
Brynja Rós Guðlaugsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Orkumeiri og hætt að finna fyrir verkjum!“
Ég hélt satt að segja að ég myndi aldrei geta breytt mataræðinu nema kannski í einn eða tvo daga. Eftir aðeins 12 daga af þjálfuninni líður mér dásamlega. Hafði þjáðst af vefjagigt og ég er hætt að finna fyrir verkjum! Finn svo miklu betri líðan, hressari og orkumeiri á allan hátt, svo eru farin 4,2 kg á 12 dögum sem spillir ekki.
Margrét Gróa Björnsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Meiri orka og einbeiting og sef líka rosalega vel!“
Var búin að vera að vinna með streitueinkenni og einkenni kulnunar í starfi. Var tilbúin að taka heildstæða nálgun á breyttan lífsstíl og komið var að því að taka til í mataræðinu. Í dag hef ég lést um 7 kg og upplifi meiri orku og einbeitingu. Ég sef rosalega vel og er meðvitaðari um það sem ég læt ofan í mig.
Karen Rut Gísladóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Þessi brjálaða sykurþörf sem kom oft yfir mig hvarf alveg“
Það gekk mjög vel og ég er að mestu sykurlaus í dag. Ég kann betur að velja vörur sem eru sykurlausar og er líka orðin nokkuð góð að aðlaga uppskriftir að sykurlausum lífsstíl. Mér fannst uppskriftirnar mjög góðar og ávinningurinn var aukin orka og vellíðan, maginn varð mun minna þaninn og þessi brjálaða sykurþörf sem kom oft yfir mig hvarf alveg.
Linda Björk Ólafsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Losnaði við sykurlöngun og 3-4 kg“
Áður en ég byrjaði var ég mjög sólgin í sykur og notaði gos og nammi sem umbun og uppörvun. Ég hafði einnig þyngst töluvert á einu ári og var ekki orðin sátt við ástandið. Það var því nauðsynlegt að gera eitthvað í málinu. Ég losnaði við sykurlöngun ásamt 3-4 kg og hef betra andlegt jafnvægi og minni hormónasveiflur. Það kom mér á óvart hvað mig langaði minna í nart og hvað mér fannst svona náttúrulegt nammi gott.
Arnheiður Dögg Einarsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ég hef misst 4 kg, bjúgurinn minnkað og ég upplifi betri svefn og andlega líðan“
Áður fyrr var ég orkulítil, þreytt og of þung. Ég ákvað að taka þátt í námskeiðinu til að ná tökum á sykurlöngun og mataræði. Í kjölfar þjálfunar hef ég náð að léttast um 4 kg, bjúgurinn minnkað, ég upplifi betri andlega líðan og sef betur. Ég er sátt með þá ákvörðun að hafa tekið þátt af því að ég hef fundið árangur bæði á líkama og sál.
Lára Hildur Þórsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Líður eins og á fínu veitingahúsi á hverju kvöldi.“
Ég fékk strax betri húð, líflegra hár og fallegri neglur. Ég vakna á morgnana með flatan maga, enga undirhöku og bjúgur í andliti er úr sögunni. Meltingin er komin í betra horf og fötin ekki lengur að kæfa mig. Maðurinn minn er hæstánægður með allt saman og kílóinn hans fjúku og orka hans hefur aldrei verið meiri.
Ragnheiður Guðjónssen
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Orka, orka og aftur orka.“
Orka, orka og aftur orka. Ég vakna um leið og ég heyri í börnunum, snúsa ekkert heldur fer bara strax á fætur. Þegar ég er svöng þá byrja ég alltaf að hugsa hvað er það hollasta sem ég get fengið mér núna og svo er ég byrjuð núna ósjálfrátt að kíkja á umbúðir og ef það er sykur í því þá reyni ég að kaupa eitthvað annað eða hugsa hvort ég þurfi virkilega að nota þetta matvæli.
Ísey Jensdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ég mæli sko 100% með þessu, sama hvaða afsökun þú hefur“
Ég mæli sko 100% með þessu, sama hve þreytt eða lítinn tíma þú hefur, bara sama hvaða afsökun þú hefur, það skiptir bara öllu máli að borða rétt. Ég sef MIKLU betur og vakna þar af leiðandi miklu hressari og með orku í gangi! Auðvitað mjög glöð með það og mig langar sko ekkert að snúa til baka.
Katrín Laufey
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Fannst sykurþörfin nánast hverfa á fyrsta degi!“
Fannst sykurþörfin nánast hverfa á fyrsta degi (tengi það matnum). Finn að líkaminn er mun léttari þó svo að vigtin segi annað (er þó búin að missa 3 kg). Auðveldara að vakna og sneggri framúr. Einnig er sálin léttari, stigin auðveldari og er ekki frá því að þolinmæðin hafi aukist.
Þorgerður Elín Brynjólfsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Þreytan farin, blóðþrýstingur lækkaði, liðverkir minnkuðu og 5 kg farin!“
Fyrir námskeiðið var ég að glíma við háan blóðþrýsting, þreytu og liðverki. Á námskeiðinu léttist ég um 5 kg. Þreytan farin, blóðþrýstingur lækkaði, liðverkir minnkuðu. Það sem námskeiðið hefur gefið mér er miklu meiri orka og gleði!
Laufey Jónsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Hef lést um 4 kg og öll sætindaþörf er farin“
Brjóstsviði hjá mér er horfin og mér líður miklu betur líkamlega. Ég er öll orkumeiri sem ég finn bæði í starfi og námi, hvað ég hef miklu meiri einbeitingu og næ fleiru í verk!
Jóna Fanney
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Upplifi hreina vellíðan“
Hef öðlast styrk til að standast freistingar og halda mínu striki varðandi breytt mataræði. Upplifi hreina vellíðan.
Ásdís Baldvinsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Æðisleg tilfinning að vera ekki lengur sykurfíkill!“
Þetta var auðveldara en ég hélt. Ég er farin að geta aftur vaknað hress á morgnana án þess að þurfa ‘snooza’. Svo er líka æðisleg tilfinning að vera ekki lengur sykurfíkill.
Viktoría Birgisdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Júlía gerir það auðvelt að hefja breyttan lífsstíl“
Maturinn hennar Júlíu fyllir mann orku, gleði og krafti. Uppskriftirnar eru einfaldar og fljótlegar sem gerir auðvelt að hefja breytan lífsstíl.
Yesmine Olssen, höfundur og sjónvarpskokkur
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls