Litrík og holl matarskál með avókadó, kjúklingabaunum og grænmeti
30 daga lífsstílsnámskeið

Frískari og orkumeiri á 30 dögum

Losnaðu við sykurlöngunina, fáðu meiri orku og léttari líkama, með einföldum uppskriftum sem taka undir hálftíma.

★★★★★ Þúsundir ánægðra kvenna · 13+ ár af reynslu
„Losnaði við sykurlöngun og 3-4 kg" — Arnheiður Dögg Einarsdóttir „Sykurþörfin hvarf alveg" — Linda Björk Ólafsdóttir „Orka, orka og aftur orka" — Ísey Jensdóttir „Hef lést um 10 kg " — Sigrún Einarsdóttir „Ekki lengur sykurfíkill" — Viktoría Birgisdóttir „Losnaði við sykurlöngun og 3-4 kg" — Arnheiður Dögg Einarsdóttir „Sykurþörfin hvarf alveg" — Linda Björk Ólafsdóttir „Orka, orka og aftur orka" — Ísey Jensdóttir „35 kílóum léttari" — Marta Klein „Ekki lengur sykurfíkill" — Viktoría Birgisdóttir
Kannast þú við þetta?

Þetta er nákvæmlega fyrir þig ef...

✓

Sykurinn ræður för

Á kvöldin, eftir hádegi, alltaf, og þú vilt loksins losna undan honum.

✓

Orkan er búin um miðjan dag

Þú vaknar þreytt þrátt fyrir fullan nætursvefn og dettur niður síðdegis.

✓

Þú hefur ekki tíma í eldhúsinu

Þú vilt hollan mat án þess að hann sé flókinn eða tímafrekur, allt hér tekur undir hálftíma.

✓

Þú veist ekki hvar á að byrja

Þú hefur prófað ýmislegt en vantar skýrt plan sem segir þér nákvæmlega hvað á að gera.

Af hverju að breyta?

Sykurinn veldur orkuleysi og fitusöfnun

Sykur er einn helsti orsakavaldur þreytu, vanlíðan, húðvandamála og sykursýkis ásamt ýmsum öðrum kvillum.

Of mikil neysla á sykri eða frúktósa er að auki ein helsta orsök fitusöfnunar og ofþyngdar.

Ert þú tilbúin að losa þig við sykurinn?

Af hverju þetta virkar

En af hverju er svona erfitt að hætta?

Kannski hefurðu prófað að taka sykurinn út áður en alltaf sótti í sama farið. Ástæðan er ekki agaleysi, heldur skortur á skilningi á því sem raunverulega veldur sykurþörfinni.

✓

Sykur er ávanabindandi

Sykur virkar svipað á heilann og ávanabindandi efni, því þarf að hreinsa líkamann í nægilega langan tíma af sykri.

✓

Ójafnvægi í líkamanum

Skortur á fitu eða mikilvægum steinefnum, of mikið eða lítið prótein og streita eru allt dæmi sem orsaka sykurþörfina.

✓

Sykur er ekki bara sykur

Margir staðgenglar sykurs eru alls ekkert betri kostir. Mikilvægt er að þekkja betri kostina og hvar sykur er falinn.

Ég kynni Frískari og orkumeiri
á 30 dögum

FO sölusíða skjár

Einfalt þriggja skrefa kerfi sem hjálpar þér að losna við sykurþörfina fyrir fullt og allt.

Þetta snýst ekki um að sleppa allri sætu heldur að þekkja betri kostina og koma líkamanum í jafnvægi, eina bragðgóða uppskrift í einu.

Engin kaloríutalning, þú borðar þig sadda og öll fjölskyldan getur notið góðs.

Gef mér aðgang
Árangurssaga

Yfir þúsund kvenna, laus við sykurþörfina

„Á 30 dögum breyttist allt“
Eftir að hafa lokið Frískari og orkumeiri hefur Birta misst 16 kg, fundið nýja orku og breytt matarvenjum sínum til frambúðar. Hún segir stærsta sigurinn vera að sykurlöngunin sé horfin og að heilbrigði sé orðið eðlilegur hluti af lífinu.
Birta Björnsdóttir
Fyrir og eftir
„3 kg léttari og allt önnur orka
Ég hélt að ég væri á ágætum stað áður en ég byrjaði, en námskeiðið kenndi mér að borða minni skammta og það gerir meira en maður heldur. Á rúmum 4 vikum hef ég misst 3 kg, sef betur, er orkumeiri og er hætt að vera næstum því að sofna undir stýri. Það besta er að ég fæ mér smá sætubita á hverjum degi úr uppskriftunum ykkar. Hverrar krónu virði.
Brynja Rós
Fyrir og eftir
„5kg farin - bjartsýn og jákvæð á ný!“
Ég léttist um rúm 5 kg og með námskeiðinu losnaði ég við verki í fótunum og önnur óþægindi sem höfðu fylgt mér. Ég sef betur, vakna úthvíld og mér líður svo miklu betur á líkama og sál. Mataræðið hentar allri fjölskyldunni og ég finn að ég er orðin bjartsýnni og jákvæðari. Að skrá mig á námskeiðið er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið.
Guðrún Auður Björnsdóttir
Árangurssaga - Guðrún Auður Björnsdóttir
„30 dögum síðar var ég 7,2 kílóum léttari“
Ég mæli svo sannarlega með þessu námskeiði! Ég er 7 kg léttari og laus við blóðþrýstingslyf sem ég hef tekið að staðaldri í 20 ár. Ég er mjög sátt við hvernig námskeiðið var framsett og maturinn góður.
Halldóra Gísladóttir
Árangurssaga - Halldóra Gísladóttir
„32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði“
Á aðeins 10 mánuðum missti Elín Ósk 32 kíló og endurheimti heilsuna, orkuna og lífsgleðina. Í dag eru verkirnir horfnir, heilaþokan farin og sjálfstraustið komið aftur. Það sem gleður hana þó mest er að söngröddin hennar er komin til baka og eftir 10 ára hlé steig hún aftur á svið á endurkomutónleikum sínum. Í dag segist Elín loksins vera orðin aftur hún sjálf. Hún hefur fundið jafnvægi sem hún getur viðhaldið, líður betur en hún hefur gert í mörg ár og horfir björtum augum til framtíðar.
Elín Ósk
Árangurssaga - Halldóra Gísladóttir
„6 kg léttari, laus við sykurþörf og með betri meltingu“
Á aðeins 30 dögum missti hún 6 kíló, losnaði við sykurþörfina og fann aftur jafnvægið. Í dag er hún laus við endalaust nart, sykurlöngun og stöðugt hungur. Meltingin hefur batnað, svefninn er betri og gigtareinkenni hafa minnkað. Hún hefur haldið þyngdartapinu, hreyfir sig reglulega og segist hafa fjárfest í heilsunni sinni. Í dag líður henni betur en áður og hvetur alla sem eru að velta þessu fyrir sér til að taka fyrsta skrefið.
Lóa Helgadóttir
Lóa Helgadóttir
„Meiri orka, betra hugarfar og laus við sykurþörfina á aðeins 30 dögum“
Áður en hún hóf 30 daga námskeiðið var hún föst í miklu sykursukki sem hafði áhrif á orkuna, skapið og andlega líðan. Á aðeins einum mánuði fann hún mikinn mun hugarfarið komst í jafnvægi, orkan jókst, húðin batnaði og hún fann aftur gleðina í daglegu lífi. Hún losaði sig við mikinn uppsafnaðan vökva strax fyrstu vikuna og segir ferlið hafa kennt sér hvernig hægt sé að byggja upp heilbrigðan lífsstíl til framtíðar. Í dag líður henni betur en áður og hvetur alla sem eru að íhuga að taka fyrsta skrefið til að láta slag standa.
Gunnhildur Guðnýjardóttir
Gunnhildur Guðnýjardóttir
Lesa fleiri árangurssögur ↓
Líklegir ávinningar

Á næstu 30 dögum gætir þú líka upplifað...

✓

Óbilandi orka yfir daginn

Vaknaðu hress og haltu orkunni alla leið á kvöldið, án þess að snooza á morgnana.

✓

Léttari líkami

Margir þátttakendur upplifa áreynslulaust þyngdartap í leiðinni.

✓

Skýrari hugsun

Losaðu þig við heilaþoku og náðu betri einbeitingu.

✓

Betri svefn

Bættu gæði svefnsins og vaknaðu úthvíld, alla daga.

✓

Frelsi undan sykurþörf

Sykurlöngunin hverfur oft á fyrstu dögum. Þetta kemur fólki á óvart.

✓

Minni bólgur og verkir

Margar upplifa minni liðverki og magaverki strax í byrjun.

Tilbúin að gefa líkamanum óbilandi orku og vellíðan?

Veldu þá leið sem hentar þér, sama frábæra námskeiðið í kjarnanum.

Já takk, meiri orka
Hvernig virkar þetta?

Þrjú einföld skref

1

Komdu orkunni af stað

Gefðu þér 3-5 daga til að undirbúa hug og líkama ásamt því að versla inn eftir fyrsta innkaupalista.

2

30 daga matseðill

Fylgdu skipulagi frá morgni til kvölds sem losar þig við sykurþörfina, fyllir líkamann orku og léttleika.

3

Finndu þitt nýja jafnvægi

Að lokum hjálpa ég þér að finna jafnvægi sem virkar fyrir þig svo þú getur haldið árangrinum við.

Innifalið í námskeiðinu

Allt sem þú þarft til að ná árangri

Tafarlaus aðgangur um leið og þú skráir þig, allt á einum stað.

Litríkur og hollur matur
Hollur réttur
Fljótlegur og ferskur réttur
✓

30 daga matseðill

Bæði vegan og hefðbundinn, sérsamsettur til að slá á sykurþörfina og hentar allri fjölskyldunni.

✓

Yfir 80 uppskriftir

Einfaldar og fljótlegar, flestar undir hálftíma í eldamennsku.

✓

Innkaupalisti fyrir vikuna

Skipulag sem munar um. Ekkert vesen, þú finnur allt í hefðbundinni matvörubúð.

✓

Myndir af sykurlausum vörum

Þú veist nákvæmlega hvað á að kaupa og hvað á að forðast. Enginn tími fer til spillis.

✓

22 kennslu- og matreiðslumyndbönd

Skref-fyrir-skref leiðsögn, eldaðu réttina beint frá matseðlinum.

✓

Tilbúnir kostir úti í búð

Myndband sem sýnir tilbúna, sykurlausa kosti úti í búð þegar enginn tími gefst til að elda.

✓

Lokaður Facebook stuðningshópur

Hvatning, ráðgjöf og aðhald frá teyminu alla leiðina.

✓

A-Ö skipulag og tafarlaus aðgangur

Þú þarft ekki að hugsa um neitt sjálf, bara fylgja dagskránni.

Bónusar

Sem taka heilsuna lengra

Bætiefni, prufumynd
Bónus

Bætiefni gegn sykurlöngun

Kennsluupptaka og leiðarvísar um bætiefnin sem vinna best gegn sykurlöngun.

Hollar fæðutegundir, prufumynd
Bónus

20 helstu fæðutegundir

Fallega myndskreyttur leiðarvísir um fæðuna sem heldur sykurlönguninni í burtu.

Ráðabankinn, prufumynd
Bónus

Falin nöfn sykurs og fleiri ráð

Ráð við öllu sem snýr að sykurlöngun, þ.á.m. öll 40 falin nöfn sykursins.

Afsláttarkort, prufumynd
Bónus

Afsláttarkort Lifðu til fulls

Afsláttur af helstu sykurlausu vörunum hjá samstarfsaðilum okkar.

Skráðu þig í dag

Veldu þína leið

Tvær leiðir, sama frábæra námskeiðið í kjarnanum. Annaðhvort 5 mánaða aðgangur eða lífstíðaraðgangur með einkatímum.

Hvað er innifalið? Námskeiðið5 mánaða aðgangur Betri leiðinTakmörkuð pláss
30 daga matseðlar og innkaupalistar (29.900 kr virði)
✓
✓
Yfir 80 uppskriftir (19.900 kr virði)
✓
✓
Myndir af sykurlausum vörum (9.900 kr virði)
✓
✓
22 kennslu- og matreiðslumyndbönd (29.900 kr virði)
✓
✓
Lokaður Facebook hópur og A-Ö skipulag (19.900 kr virði)
✓
✓
Bónusar gegn sykurlöngun (29.990 kr virði)
✓
✓
Sérsniðið plan yfir fæðutegundir og bætiefni (19.900 kr virði)
✕
✓
Extra aðhald og 5 einkatímar með heilsumarkþjálfa (119.000 kr virði)
✕
✓
Kostnaðarvænn vikumatseðill og nýjar uppskriftir (19.900 kr virði)
✕
✓
Lífstíðaraðgangur að námskeiðinu (79.900 kr virði)
✕
✓
Veglegur heilsupakki sendur heim að dyrum (19.900 kr virði)
✕
✓
Fullt verð71.490 kr257.900 kr
Verð í dag með 30% afslætti9.990 krí 5 mánuðieða 49.900 kr staðgreitt179.900 krstaðgreitteða 29.990 kr í 6 mánuði

Tafarlaus aðgangur · Mörg stéttarfélög endurgreiða · Sjá hér

100%ánægju­
ábyrgð

Engin áhætta fyrir þig

Prófaðu fyrstu skrefin. Finnir þú ekki meiri orku og vellíðan innan 14 daga frá skráningu færðu fulla endurgreiðslu, engin áhætta, hvora leiðina sem þú velur.

Júlía, stofnandi Lifðu til fulls
Stofnandi Lifðu til fulls

Hæ, ég heiti Júlía

Lengi vel var ég föst í vítahring sykurs, orkulaus og ósátt við líkamsímynd og líðan. Það var ekki fyrr en ég uppgötvaði þrjú einföld skref sem gerðu mér loks kleift að losna við sykurþörfina, fyrir fullt og allt. Orkan jókst, meltingin batnaði og ég komst loks í sátt við sjálfa mig.

Síðustu 13 ár hef ég leitt þúsundir kvenna í gegnum þessi sömu skref með Frískari og orkumeiri á 30 dögum, og nú gætir þú orðið næst.

Engar fleiri frestanir. Ef þú ert á þessari síðu er líklega kominn tími til að kveðja sykurþörfina fyrir fullt og allt og taka við algjörri vellíðan í eigin skinni. Þú getur þetta, og ég leiði þig skref fyrir skref.

Árangurssögur

Þær tóku af skarið og breyttu lífi sínu

Raunverulegar sögur, raunverulegar konur. Þetta er það sem bíður þín.

★★★★★
„Besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá!“
Áður var ég oft orkulaus, fann fyrir liðverkjum og stirðleika í baki, sérstaklega fyrst á morgnana, og var oft með magaverk. Ég er nú orkumeiri, laus við lið- og bakverki og hef ekki liðið svona vel í maganum í langan tíma! Mér finnst auðveldara að fara á fætur á morgnana og orkan helst út daginn. Þar að auki eru 3 kg farin. Það kom mér á óvart hvað ávinningurinn kom fljótt, ég fann fyrir aukinni orku strax á degi 2. Ég fæ hrós á hverjum degi fyrir þessa frábæru rétti frá bæði börnum og eiginmanni. Þetta var besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá.
Katrín Waagfjörð
Katrín Waagfjörð
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„12 kg farin án fyrirhafnar og líkamlegir kvillar úr sögunni“
Í dag líður mér mun betur með sjálfa mig og hef mun meiri orku sem leiðir til þess að ég finn meiri gleði í lífinu. Ég hef farið framúr þeim markmiðum varðandi þyngdartap og gerði það fyrirhafnarlaust og léttist um 12 kg. Ég upplifi mig stælta og í góðu formi. Öll líkamleg vandamál hjá mér hafa lagast, magaverkir og húðvandamál eru úr sögunni og svefn minn hefur aldrei verið betri. Mesti ávinningurinn er betri líðan og meiri gleði, aukakílóin eru bónus.
Dagmar Kristjánsdóttir
Dagmar Kristjánsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Laus við hitakófin og 10 kíló. Öll breytingarskeiðseinkenni horfin“
Verð að segja ykkur frá... Ég var með mikil hitakóf og svaf ílla og þar sem ég má ekki taka hormóna varð ég að finna aðra lausn, eftir að lesa að sumar voru svona í 10 ár Nei takk. Ég skráði mig á Lifðu til fulls og eftir 2 vikur var ég alveg laus við hitakóstin og 7 kg farin, sef miklu betur. Í dag er ég búin að léttast um 10 kíló, liðverkir skánuðu og öll breytingarskeiðseinkenni hurfu, svefnleysi og svitaköst. Ég hreyfi mig meira, borða hollt, er jákvæðari og andlega líður mér miklu betur.
Dagný Ingólfsdóttir
Dagný Ingólfsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„10 kg án þess að hafa fyrir því og jafnvægi alla daga!“
Áður en ég byrjaði hjá Júlíu var ég alltaf þreytt og uppþembd. Mér fannst ég ekki orðin nógu gömul til að líða svona. En núna hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu. Og það er bara bónus, því það var ekki eitt af markmiðum mínum. Það besta af öllu er jafnvægið, alla daga, besti árangurinn. Jafnvægi í einu og öllu, skapi, hungri/seddu, orku/þreytu og bara öllu!
Vala Ólöf Jónasdóttir
Vala Ólöf Jónasdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Ég hef áttað mig betur á öllu sem ég græði á því að hugsa betur um mig“
Fyrir námskeiðið var ég á nokkuð góðum stað en langaði að losna við sykurpúkann sem alltaf sótti á mig á kvöldin, auk þess sem ég var farin að finna fyrir ýmsum smákvillum. Eftir námskeiðið er sykurátið á kvöldin alveg horfið. Ég tók einnig eftir því hvað meltingin varð góð eftir aðeins nokkra daga. Ég upplifi meiri orku, meira jafnaðargeð og einnig fóru c.a. 2 kíló sem var ekkert markmið en auka plús.
Eyrún Pétursdóttir
Eyrún Pétursdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
★★★★★
„Vellíðan, betra skap og stress hefur minnkað“
Meira jafnvægi, betra skap og jákvæðni aukist. Hausinn er fókuseraðri og stress hefur minnkað. Ég finn fyrir vellíðan í líkamanum að því leyti að ég er minna útþanin og bólgin ásamt því að ég sef betur. Ég er að upplifa ótrúlega hluti og hugarfarið er allt annað. Fór t.d. út að borða um daginn og mig LANGAÐI að panta salat.
Sandra Ósk Jóhannsdóttir
Sandra Ósk Jóhannsdóttir
Þátttakandi hjá Lifðu til fulls
Samanburður

Af hverju þetta virkar þegar annað bregst

Það sem skilur Frískari og orkumeiri frá öðru.

Hefðbundnir kúrar

  • ✕Öllu sætu sleppt, líka ávöxtum, algeng ástæða uppgjafar.
  • ✕Flóknar uppskriftir með hráefnum sem nýtast illa.
  • ✕Uppskriftir sem fjölskyldan borðar ekki. Þú endar á að elda tvíréttað.
  • ✕Kaloríutalning og svelti.
  • ✕Hugurinn er ekki með þér og þú gefst fljótt upp.
  • ✕Ekkert aðhald, þú dettur auðveldlega út.
  • ✕Sykurþörfin kemur fljótt aftur og þú dettur í sama farið.

Frískari og orkumeiri á 30 dögum

  • ✓Ákveðnir ávextir og náttúrulegir sætugjafar notaðir í uppskriftum. Þú lærir hvaða staðgengla sykurs er best að velja og hverja á að forðast. Einfaldar og fljótlegar uppskriftir með tilbúnum innkaupalista og myndum. Allt fæst í einni matvöruverslun, einfalt skipulag sem sparar tíma og minnkar matarsóun.
  • ✓Yfir 80 barna- og fjölskylduvænar uppskriftir. Þú borðar þig sadda alla daga og öll fjölskyldan nýtur góðs.
  • ✓Hver uppskrift er samsett með fæðutegundum sem slá á sykurþörfina. Algengt er að sykurþörfin hverfi fyrstu dagana og bragðlaukar þróast í að vilja holla fæðu.
  • ✓Þú byrjar á hugarvinnu sem heldur þér við breytt mataræði og útrýmir uppgjöf.
  • ✓Lokaður stuðningshópur og aðhald alla leiðina.
  • ✓Þú öðlast skilning á sykurþörfinni og finnur takt til frambúðar svo sykurþörfin komi ekki aftur, ekki tímabundinn kúr heldur lífsstílsbreyting.
Spurningar og efasemdir

Algengar spurningar

Strax. Þú færð tafarlausan aðgang að öllum gögnum um leið og þú skráir þig, engar fastar dagsetningar.
Fyrstu vikuna mæli ég með að gefa þér rúmlega klukkustund til að hlusta á fyrstu kennslu og kynna þér gögnin. Vikuna þar eftir byrjar þú á matseðlinum, uppskriftirnar þar taka flestar undir hálftíma og skipulagið sparar þér vissulega tíma.
Á námskeiðinu tökum við út hvítan sykur og hvítt brauð, en notum sætu úr ávöxtum sem eru lægri í frúktósa og betri náttúrulega sætugjafa. Að námskeiði loknu hjálpa ég þér með framhaldið, hvort sem þú velur sykurminni eða sykurlausan lífsstíl, án þess að detta í gamla farið og missa árangurinn.
Alls ekki. Allar uppskriftir á matseðlinum eru lausar við mjólkurvörur og glúten, en ég sýni þér hvaða mjólkurafurðir og brauðmeti má nota og gef aukauppskriftir fyrir slíkt ef þú vilt.
14 daga ánægjuábyrgð fylgir. Finnirðu ekki meiri orku og vellíðan eftir fyrstu skrefin færðu fulla endurgreiðslu. Öll áhættan er okkar megin, ekki þín.
Námskeiðið er aðeins opið fyrir skráningar næstu daga og óvíst er hvenær það opnar aftur.
Já. Þú færð aðgang að bæði 30 daga vegan matseðli og hefðbundnum matseðli með kjöti og fiski.
Já, margar hafa tekið þátt á meðgöngu eða með barn á brjósti með góðum árangri. Ef þú ert í vafa er gott að ráðfæra sig við ljósmóður eða lækni.
Nei. Námskeiðið byggir á venjulegum, fáanlegum mat. Bætiefni eru aðeins valkvæð viðbót sem fjallað er um í bónusefninu.
Þú hefur aðgang í 5 mánuði frá kaupum. Yfir þann tíma heldur þú aðgangi að gögnunum og stuðningshópnum. Þú byrjar þegar þér hentar og getur tekið námskeiðið með þér, og við hjálpum þér að finna tíma og einfalda ferlið.
Mörg stéttarfélög endurgreiða að hluta eða fullu. Skoðaðu þessa síðu.
★★★★★

Þín árangurssaga
byrjar í dag

Umsögn
Umsögn
Umsögn
Umsögn
Umsögn
Umsögn
Umsögn
Umsögn

Þúsundir kvenna hafa þegar breytt lífi sínu. Nú er komið að þér, án áhættu, með 14 daga ánægjuábyrgð.

Já, ég vil byrja
Fjallað um í Nýtt Líf Vísir Gestgjafinn MAN ÍNN
Frískari á 30 dögum
14 daga ánægjuábyrgð
Skrá mig