Jólatilboð

Jólatilboð Lifðu til fulls

Spennandi tilboð á sykurlausu myndbandsnámskeiði og uppskriftabók í jólapakkann þinn

Lestu meira um sykurlausu myndbandsnámskeiðið...

Vilt þú læra að gerast hrákökusnillingur án þess að þurfa að fara út úr húsi?

Nú getur þú lært leyniráð mín á bakvið hrákökugerð, úr þínu eldhúsi og eftir þinni hentisemi, með myndbandsnámskeiði mínu um sykurlaus sætindi!

Myndbandsnámskeið í sykurlausum jóla- eftirréttum

Sem fyrrum sykurfíkill deili ég með þér í þessu nýja sykurlausa myndbandsnámskeiði ráðum að því hvernig hægt er að skipta út sykri og hvaða náttúrulegu sætuefni eru betri kostur en önnur. Þar að auki lærir þú flýtileiðir og leynitrix á bak við sykurlaus sætindi ásamt ráðum um hvernig megi breyta lífsstílnum svo hann innihaldi meiri orku og ljóma.

Námskeiðið er frábært fyrir byrjendur í hráfæðisgerð sem og lengra komna. Margir eru sammála því að það að auka hlut hráfæðis í mataræði hjálpi til við að viðhalda kjörþyngd og upplifa vellíðan og orku!

Myndbandsnámskeiðið er í heildina tveir og hálfur tími og í því er kennt að búa til holla, girnilega og ómótstæðilega sætubita fyrir hvaða tilefni sem er. Innifalið í námskeiðinu eru fimm myndbönd, það fyrsta inniheldur fróðleik um sykur en í hinum fjórum er farið í gegnum uppskriftirnar sjálfar ásamt því að svara algengum spurningum.

Þú lærir að búa til:

  • Rawsome köku sem allir elska
  • Fylltar döðlur með hesilhnetum og súkkulaði
  • Karamellu- og pekandraum
  • Blönduð ber, granola og himneskan rjóma sem stuðlar að vellíðan og ljóma

Einnig:

  • Hvernig skipta eigi út sykri
  • Hvaða hráefni gott er að eiga svo alltaf sé hægt að gera hollt “nammi”
  • Að þekkja hvaða sætuefni ætti að velja

Einnig:

  • 5 kennslumyndbönd með Júlíu sem þú getur horft á hvenær og hvar sem er frá tölvu/ipad eða síma. Hvert myndband einfaldar þér að horfa á aðeins eina uppskrift í einu og þeim fylgja prentvænar uppskriftir og leiðarvísir!
  • Lokuð Facebook hópsíða fyrir stuðning og svör við spurningum þínum og athugasemdum
  • Prentvænt uppskriftahefti með uppskriftum sem farið er yfir í hverju myndbandi
  • Prentvænn innkaupalisti
  • Hráefnalisti með myndum af þeim hráefnum sem ég nota og mæli með
  • Bónus uppskriftir!

Hvað þátttakendur hafa að segja um námskeiðið:

"Fannst skemmtilegtað horfa á hversu einfalt þetta er. Nú er ég meira tilbúin að prufa sjálf heima!“ - Röfn Friðriksdóttir

"Námskeiðið sýndi mér hversu létt þetta er og lærði ég inn á ýmis ný hráefni. Mjög góð upplifun og get ég mælt með námskeiðinu.“ - Ragna Fanney Óskardóttir

"Sé hvað þetta er einfalt og hjálpar það mér að minnka sykurinn í fæðunni. Skemmtilegt að smakka þessar gómsætu kökur.“ - Rósa Sævarsdóttir

"Ég er mikill matgæðingur og nammigrís. Aldrei hefði ég trúað því að ég myndi geta hætt að borða sælgæti en núna langar mig ekki einu sinni í það þótt það sé fyrir framan mig. Það er meira að segja hægt að búa til „nammi“ sem er mjög hollt. Allar girnilegu mataruppskriftirnar og nammið virkar fyrir alla fjölskylduna. Auk þess hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu frá Júlíu..“ - Vala Ólöf Jónasdóttir

"Allt námskeiðið stóð uppúr fyrir mig og ávinningur þess að geta fengið mér nú heima holla og góða köku. Mæli með námskeiðinu fyrir aðra.“ - Elínrós Sigmundsdóttir

"Sé fram á að geta gert þessar kökur heima og vanið fjölskylduna á hollari lífsstíl“ - - Sóley Jóhan

Smelltu á hnapp hér fyrir neðan til að tryggja þér sykurlausa myndbandsnámskeiðið og/eða bók á jólatilboði