Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?
Hinn fullkomni Partýplatti!
14th May 2019
Af hverju sumarið er BESTI tíminn að taka heilsuna í gegn
4th June 2019
Hinn fullkomni Partýplatti!
14th May 2019
Af hverju sumarið er BESTI tíminn að taka heilsuna í gegn
4th June 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?

Játning…

Lengi vel þoldi ég ekki frasann “að vera besta útgáfan af sjálfum sér”. Mér fannst merking hans vera óljós og frasinn vera ofnotaður… Fyrr en kl. 21:22 fyrir tæpum mánuði.

Á þeim tíma var ég að halda ókeypis fyrirlesturinn minn 3 skref til að losna undan vítahring sykurs og tvöfalda orkuna – með yfir 150 manns og setti glæru upp á skjáinn með mynd af konu sem sat í hugleiðslustellingu í kyrrðinni við morgunsólina.

Myndin var eitthvað svo friðsæl og heilbrigð.

besat

Það var eins og eitthvað smylli hjá mér og ég áttaði mig loks á því hvað það að “vera besta útgáfan af sjálfum sér” þýðir.

Þýðingin er einföld en þegar við náum að tileinka hana getur hún haft stórvægileg áhrif á líf okkar, til hins betra.

Eins og ég skildi þá þýðir það “Að vera besta útgáfan af sjálfri sér” einfaldlega…

Að velja á hverjum degi að næra þig fyrst og gefa þér þær tilfinningar sem þú leitast eftir.

Það er svo oft sem við förum í gegnum daginn og leyfum aðstæðum að stjórna líðan okkar, á meðan hamingjan kemur innan frá og hefst með vali á hverjum degi.

Jú suma daga munum við vera of upptekin og leyfa hungri eða aðstæðum að stjórna, hreyta í krakkana okkar eða svara samstarfsaðilum í pirruðum tón.

En ef við reynum að hefja alla daga á því að velja þær tilfinningar sem við viljum finna eins og gleði, hamingju, tilhlökkun, þakklæti og setja heilsuna í forgang…

..Þá erum við besta útgáfan af sjálfum okkur.

DSCF2643

Þessi uppljómun fékk mig til að hugsa aftur til baka þegar ég var að byrja Lifðu til fulls, fyrir tæpum 7 árum og það var kona í þjálfun hjá mér sem hét Guðrún.

Í sameiningu ákváðum við Guðrún, að hún skyldi byrja alla daga á því að skrifa niður 3 hluti sem hún var þakklát fyrir.

Viku síðar heyrði ég aftur í Guðrúnu og tók hún eftir meiri jákvæðni og að hafa hlegið meira yfir vikuna. Þessu var líka tekið eftir og hafði samstarfskona hennar orð á því hvað hún hefði góða nærveru! Það besta er að Guðrún sagði að skrifa þessa hluti hafi ekki tekið hana nema 2 mínútur aukalega á morgna!

Þvílík áhrif sem þessar 2 mínútur höfðu. Ekki bara fyrir Guðrúnu heldur einnig þeirra í kringum hana.

Þakklæti er aðeins eitt af mörgu sem hjálpar okkur að verða besta útgáfan af okkur.

Lykilatriðið sem ég vill skilja eftir er að það “að vera besta útgáfan af þér” það byrjar með vali. Daglegu vali.


Nú langar mig að heyra í þér..

Tengir þú við dæmisöguna um Guðrúnu? Hvað gerir þú til að vera besta útgáfan af þér?

Láttu mig vita í spjallið.

Endilega deildu á samfélagsmiðlum og sérstaklega til vinkvenna sem er annt um heilsuna.

Talandi um fyrirlesturinn sem ég hélt um daginn, ég er að bjóða á hann aftur 28.maí kl 20 gegn skráningu hér!

Lærðu um 5 fæðutegundir sem auka orkuna, fáðu uppskrift sem slær samstundis á sykurlöngun og próf sem sýnir þér hvar heilsan er stödd og hvað er til ráða svo þú getir orðið besta útgáfan af þér!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Erna Grétarsdóttir says:

    Ég byrjaði á þessu frábæra námskeiði um sykurlaust fæði hjá ykkur þann 31. apríl og hef haldið mig að mestu við uppskriftirnar frá ykkur og alveg án sykusr ég vil þakka ykkur kærlega fyrir, ég er miklu orkumeiri en ég hef verið í mörg ár og hefði ekki trúað því áður hvað sykur skemmir mikið fyrir heilsu og orku, ég hef hugsað mér að halda þessu áfram um alla framtíð, þetta er aldeilis frábært.

    • Þjónustufulltrúi says:

      Sæl Erna,

      yndislegt að heyra og til hamingju með glæsilegan árangur! Það er nefninlega alveg ótrúlegt hvaða áhrif sykurinn hefur á mann og maður finnur svo sannarlega fyrir því þegar maður tekur hann út hvað hann hefur verið að gera manni. Glæsilegt hjá þér að halda áfram á þessari braut og fá að upplifa þá heilsu, orku og vellíðan sem þú átt skilið 😉

      kv Katrín

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *