Hinn fullkomni Partýplatti!
Uppáhalds vörurnar mínar
7th May 2019
Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?
21st May 2019
Uppáhalds vörurnar mínar
7th May 2019
Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?
21st May 2019
Show all

Hinn fullkomni Partýplatti!

Ertu klár fyrir Eurovision?

Veitingar, drykkir og glimmer..

Hvað með að hafa Eurovision partýið í hollari kantinum í ár? Hér eru nokkrar hugmyndir  af einföldum partýmat sem mun slá í gegn.

partyplatti

Hinn fullkomni Eurovision-partýplatti

Eitthvað bragðmikið, saltað, ferskt og sætt

fersk ber (jarðaber, bláber, kirsuber, vínber)
geitaostur, brie ostur eða vegan smurostur
hummus (sjá uppskrift af bleikum hummus neðar)
glútenlaust kex bland, t.d frá Mary gone crackers og Orgran með chia, kínóa eða bókhveiti
eitthvað sætt eins og t.d súkkulaðikúlur, fylltar döðlur á 2 mín eða súkkulaðibrownies með poppuðu kínóa.

Aðrar hugmyndir:
ólífur (grænar og svartar)
popp
ferskar fíkjur
hnetublanda (t.d frá Sólgæti eða Acti)

Útbúið bleika hummusinn. Skerið ávexti. Raðið fallega á partýplattann og berið fram. Gott með með lífrænu rauðvíni, glúteinlausum bjór eða hreinum Kristal.

Bleikur og kryddaður hummus
1 stór rauðrófa, elduð (það má nota forsoðnar lífrænar rauðrófur sem fást í innsigluðum umbúðum)
1/2 bolli spíraðar baunir eða kjúklingabaunir í dós t.d frá Biona.
3 msk sólblómaolía (eða ólífuolía) t.d frá Biona
3 msk sítrónusafi (eða meira)
2 góðar lúkur ferskt kóríander
2 góðar lúkur fersk basilíka
salt og pipar eftir smekk

1. Skolið af kjúklingabaununum ef þið notið úr dós.

2. Setjið rauðrófu í blandara og maukið.

3. Bætið rest af innihaldsefnum út í og blandið vel. Geymist í allt að 5 daga í kæli.

Ég vona að þessar hugmyndir komi sér vel! Látið vita í spjallið ef þið prófið og taggið @julias.food á instagram með ykkar útfærslu!

Það er alltaf gaman að sjá myndir frá ykkur!

Ef þú ert með brennandi spurningu, tillögu að uppskrift eða viðfangsefni sem þú vilt að ég svari hér á blogginu í sumar máttu endilega senda mér það hér og hver veit nema þín ósk birtist á blogginu í sumar.

Smelltu hér til að senda mér hana!

fæðuteg leiðarvísir

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *