Ekki leyfa glútenfríu vörunum að plata þig!
Glútenlaust brauð
Glútenlaust brauð með grænu te, ávöxtum og hnetum
25th March 2014
Burt með sætindaþörfina, muffin toffee jógúrtið sem ég geri fyrir kallinn!
8th April 2014
Glútenlaust brauð
Glútenlaust brauð með grænu te, ávöxtum og hnetum
25th March 2014
Burt með sætindaþörfina, muffin toffee jógúrtið sem ég geri fyrir kallinn!
8th April 2014
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Ekki leyfa glútenfríu vörunum að plata þig!

glútenfríir fæðukostir

Glútenfrítt kex! Það hlýtur nú að vera hollt

…En er það virkilega?

Allt þetta glútenfrí tal í umræðunni hlýtur að fá þig til að horfa á glúten með bannvænum augum eða allavega spyrja sjálfa þig hvort þú ættir nú að hleypa þessari fæðu innan um varir þínar eða ekki.

En eru glútenfríu vörurnar virkilega eins hollar og þær virðast vera?

Ef betur er gáð geta sumar  glútenfríir fæðukostir verið jafnvel óhollari en glútenvaran sjálf sem þú varst svo samviskusamlega að reyna að forðast.

Ég gerði mér ferð í búðina til að sýna þér í svörtu og hvítu hvernig þú getur valið “réttu” afurðina af glútenfríu vörunni og hvað þú getur gert til þess að forðast að kaupa óholla glútenfría vöru út í búð.

Því langur listi af innihaldsefnum í sumum þessara vara fá mann til að spyrja sig hvort varan sé raunverulega holl eða ekki.

Ég trúi því að bara með því að skilja hvað innihaldslýsingarnar eru raunverulega að segja þér getur það ráðið úr ýmsu þegar kemur að búðarinnkaupum þínum og fæðuvali.

Skoðum eitthvað sem flest heimili í dag kaupa inn, eitthvað sem við notum mörg sem hollt og fljótlegt millimál

Hrökkbrauð!

Hér sjáum við mjög algenga afurð af hrökkbrauði “Burger Spelt”. Þetta hrökkbrauð inniheldur glúten en skoðum betur innihaldið

 

Screenshot 2014-03-24 13.40.07

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4 innihaldsefni! frábært!

 

Screenshot 2014-03-24 13.40.42

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í tilraun að skipta út hrökkbrauðinu, sem inniheldur glúten, fyrir glútenlaust þarf að fara gætilega að því annars geta umbúðirnar platað þig.

Hér sérðu glútenlaust hrökkbrauð sem virðist ósköp hollt ekki satt….

 

Screenshot 2014-03-24 13.38.43

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En skoðum nánar hvað innihaldslýsingin segir:

 

Screenshot 2014-03-24 13.39.25

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað þýðir allt þetta?

Maísterkja = Sem fyrsta innihaldslýsingin þýðir það að varan inniheldur mest af því. En hvað er maísterkja raunverulega. Hún er búin til úr fræhvítu sem er í miðju maískjarnans. Til þess að ná til fræhvítunnar, er maísinn unninn þannig að allt ytra lag er fjarlægt. Fræhvítan er síðan hökkuð niður í fínt hvítt duft sem við þekkjum sem maíssterkju. Lykilorðið hér er unnið og unnið á þann hátt að næringarefni eru tekin frá maísnum.

Sukker/sykur = Viðbættur sykur inniheldur engin næringarefni og getur verið stór partur af þyngdaraukningu og orkuleysi. Sykur getur skapað insúlínviðnám og er skref í átt að efnaskiptakvillum og sykursýki.

E464 = Hýdroxýprópýlmetýlsellulósaasetatsúksínat er útbúið úr sellulósa, helsta fjölsykra og uppistaða úr tré og öllum plöntum. Stórir skammtar geta leitt til vandamála í þörmun, eins og uppþembu, hægðatregðu eða niðurgangs.,

E471 = Þó svo að jurtaolíur séu aðallega notaðar, er notkun dýrafitu (t.d svína) einnig til staðar. Sumir hópar af fólki, eins og grænmetisætur, múslímar og gyðingar forðast þessar fitursýrur. Aðeins framleiðandinn sjálfur getur gefið nákvæmar upplýsingar um uppruna fitusýra. Efnafræðilega eru fitusýrur frá jurtum og dýrum eins uppbyggðar.

Ekki eru þó allar glútenlausar vörur eins og þessar, en gæta þarf að staldra við kerruna og líta á innihaldslýsinguna

Skoðum þá næst aðra tegund af glútenlausuhrökkbrauði; “organic chestnut”

 

Screenshot 2014-03-24 13.41.56

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað segir innihaldslýsingin?

 

Screenshot 2014-03-24 13.41.27

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

3 innihaldsefni takk fyrir! Svona á þetta að vera

Hrísgrjónahveiti (unnið úr heilum hrísgrjónum), kastaníuhnetu hveiti og sjávarsalt

Engin aukaefni eða erfðabreytt innihaldsefni í þessari vöru og því mun ákjósanlegri kostur!

Hvort þú sért með glútenóþol eða ekki, þarf ekki að vera fyrir vissu að glútenlausavaran sé ákjósanlegasti kosturinn fyrir þig!

Því þegar betur er skoðað getur glútenfría varan verið enn skaðlegri en varan með glúteni.

Næst þegar þú ferð í búðina, notaðu þessar 3 lykilreglur þegar þú skoðar innihaldslýsinguna!

3 lykilreglur Júlíu:

  1. Fyrsta innihaldið á innihaldslýsingunni er það sem mest er í vörunni, það ætti því að vera ákjósanlegt.
  2. Að varan innihaldi í mesta lagi 10 hluti.
  3. Ef þú getur ekki sagt nafnið á innihaldinu þá var það trúlega unnið á rannsóknarstofu og kemur ekki frá móðir náttúru.

Ekki leyfa glútenfríu vörunum að gabba þig, nú veist þú betur.

Deildu með vínkonu á facebook svo hún látti ekki gabbast í búðinni og líkaðu við greinina ef hún vakti þína athygli!

En aftur til þín

Hefur þú keypt glútenfría vöru bara því það stóð glútenfrítt? (ég hef gert það) Ef svo er hvað vakti mest áhuga þinn í greininni hér að ofan?

Skrifaðu mér í comment hér neðar og köfum dýpra

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

 

 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

16 Comments

  1. Adda says:

    takk, góð ábending.

  2. Ragna Fanney Óskarsdóttir says:

    Takk fyrir þetta – flott að lesa eða ekki !!! en góð ábending. Ég er glútenlaus og er að læra að lesa þetta allt saman og er það að síast inn svona smátt og smátt en glútenlaust verður það að vera og best að búa til eitthað sjálfur bara í þeim efnum 🙂

  3. Svana Hall says:

    Þetta er mjög áhugavert …..Takk fyrir ég seiji bara það er mjög erfitt að lesa á þetta allt saman og mikill lærdómur.

    • Júlía, heilsumarkþjálfi says:

      Sæl Svana, já það er það. Notaðu bara þumalregluna að halda þig við 10 hluti í mesta lagi í innihaldslýsinginni og þú ættir að vera í góðu lagi.

  4. Steinþ. Fjóla Jónsdóttir says:

    Gott að vita, það er svo mikið um vörusvik

  5. Talk fyrir godar skyringar.

  6. Aslaug says:

    Takk kærlega fyrir upplýsingarnar. Mjög gagnlegt, les oft innihaldslýsingar en stundum áttar maður sig ekki á svona hlutum. Hef keypt allar þessar tegundir af hrökkkexi en finnst sú síðastnefnda langbest og gott að það er líka hollast. kv. Áslaug Þ.

    • Sara Barðdal, Heilsumarkþjálfi LTF says:

      Sæl Áslaug, takk fyrir commentið, já það er alveg satt, pakkningar geta oft verið mjög villandi.

  7. sirryp@gmail.com says:

    takk fyrir þetta.
    ég hef það fyrir reglu að lesa á pakkana og ef það er minst á sykur eða salt sem þriðja efni set ég pakkann aftur í hilluna.
    hef ekki prófað gluten laust nema hrökkbrauðið sem þú telur upp síðast, þetta með 3 innihaldsefnunum.

    • Sara Barðdal, Heilsumarkþjálfi LTF says:

      Sæl Sirrý, það er mjög góð regla, alltaf best að hafa sem fæst innihaldsefni og helst eitthvað sem við vitum nákvæmlega hvað er.

  8. Bjarney Sigurlaugsdóttir says:

    Ótrúlegt Hrökkbrauðið sem ég kaupi bæði spelt og einnig með Kúmen,hélt að það væri í lagi þegar það kémur fram að það sé Glútenfrítt en takk fyrir þetta

    • Sara Barðdal, Heilsumarkþjálfi LTF says:

      Sæl Bjarney, já maður þarf að vera ótrúlega vakandi þegar kemur að innihaldslýsingum, þó svo að eitthvað líti út fyrir að vera í lagi. Gott að við gátum hjálpað 🙂

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *