Vertu sykurlaus í október með okkur!
heilsumarkþjálfi
Af hverju ég varð heilsumarkþjálfi
7th October 2014
sykuráskorun
Þær tóku þetta alla leið, ert þú tilbúin?
21st October 2014
heilsumarkþjálfi
Af hverju ég varð heilsumarkþjálfi
7th October 2014
sykuráskorun
Þær tóku þetta alla leið, ert þú tilbúin?
21st October 2014
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Vertu sykurlaus í október með okkur!

hollráð að heilsu

Hollráð að heilsu

Við hjá Lifðu til fulls erum ótrúlega spennt fyrir fréttunum sem við höfum fyrir þig í dag! Vegna frábærra undirtekta höfum við ákveðið að vera aftur með átakið:  Sykurlaus áskorun!

Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað við erum að tala um þá héldum við sykurlausa áskorun síðastliðinn júní þar sem yfir 5000 manns tóku þátt og voru sykurlaus með okkur í 14 daga.

Það var ótrúlega skemmtilegt og við vorum að sjá frábæran árangur frá mörgum þátttakendum eins og þennan:

 

“Mér bara líður einfaldlega miklu betur og er búin að missa 5 kíló!”

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir

 

“Þetta opnaði augu mín algjörlega fyrir öllum leyndu gildrunum og ég tók skápana alveg í gegn og breytti innihaldi þeirra, mér hefur liðið alveg rosalega vel og finnst maturinn þinn alveg hreint snilldarlega og syndsamlega góður.”

Lovísa Vattnes

 

“Það borgar sig að sleppa sykrinum, ég er miklu duglegri og ekki sifellt þreytt og það eru bara 3 dagar liðnir og ég búin að missa 3 kg, er þetta eðlilegt segi ég nú bara”

Guðveig Hrólfsdóttir

 

Vá! Þetta gaf okkur svo mikinn innblástur að gátum við ekki annað en hjálpa fleirum að vera sykurlausir, sektarlausir og sáttir í sínu skinni!

anægð

 

Farðu hér og tryggðu þér þátttöku ókeypis : https://lifdutilfulls.is/14-daga-sykurlaus/

Eins og síðast þá munum við senda út 5 gómsætar og girnilegar uppskriftir í hverri viku sem munu styðja þig við að takast á við sykurpúkan, ásamt því að fá hollráð að heilsu og stuðningi yfir þessa 14 daga.

Einnig ætlum við að hafa skemmtilegan facebook leik á meðan áskorunin stendur yfir, það er því margt til þess að vinna.

Ef þú skráðir þig í sumar, þarftu ekki að skrá þig aftur, netfangið þitt er vistað hjá okkur og þú færð nýjar uppskriftir sendar frá og með 23.okt. 

Ef þú ert óviss hvort þú ert skráð eða ekki til þátttöku, getur þú farið hér og skráð þig og ef þú færð upp skilaboð sem segja, “þú ert nú þegar skráð á listan” ertu í öruggum höndum 😉

 

Við skorum því á þig að sleppa sykri á hverjum degi…í 14 daga!

 

Eina sem þú þarft er hreint hráefni og 10 mínútur aukalega í eldhúsinu á hverjum degi! Sykurlaust líferni hefur aldrei verið eins skemmtilegt!

Skráðu þig hér: https://lifdutilfulls.is/14-daga-sykurlaus/

Hlökkum til þess að hafa þig með okkur!

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi og Lifðu til fulls teymið

P.s Líkaðu þér síðasta sykurlausa áskorun? Skoraðu á vínkonu eða vin sem gæti viljað vera með í sykurlausri áskorun með því að deila með þeim á facebook

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *